Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1938, Blaðsíða 16

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1938, Blaðsíða 16
dr. phil. JÓN ÓFEIGSSON - MINNINGARORÐ • Dr. phil. Jón Ófeigsson yfirkennari andaðist að heimili sínu Hólavallagötu 3, 27. febrúar siðastl., og liafði þá verið vanheill um nokkur ár. Doktór Jón fæddist 22. april 1881, að Stóranúpi í Hreppum, en fluttist kornungur að Læknisnesi og átti síðan heima þar og í Reykjavík til dauðadags, nema þau árin, sem hann dvald- ist erlendis. Doktór Jón kom í lærða skólann 1895 og útskrifaðist þaðan með ágætiseinkunn 1901. Sama ár sigldi hann til Khafnar, og lagði þar stund á málfræði; var aðalgrein hans þýzka, en auka- greinar enska og franska. Hann lauk kandidatsprófi með 1. eink- unn 1908, og kom þvi næst heim. Upp frá þvi stundaði hann kennslu hér í bæ, sumpart í heimahúsum, sumpart í skólum. Hann varð stundakennari við Menntaskólann 1911, og skipað- ur aukakennari 1914. En þótt kennslan væri aðalstarf dr. Jóns, sýslaði hann þó margt fleira. Iiér skal aðeins drepið á hið helzta: Hann samdi kennslubækur i þýzku og dönsku, og gaf út lesarkasafn til að nota við islenzkukennslu; var það mikið verk, fullar 100 arkir i átta blaða broti. Hann átti mjög mikinn þátt í orðabók dr. Sigfúsar Blöndals, og bafði meðal annars aðalumsjón með prentun þeirr- ar bókar. En síðasta stórvirkið lians er þýzk-islenzk orðabók, sem kom út 1935, mikið verk og merkilegt, og hafði hann liaft hana í smíðum í því nær fjórðung aldar. Hér er einungis drepið á liið allra helzta, en það ætti þó að nægja til þess að sýna, hver afkastamaður dr. Jón var, enda féll honum aldrei verk úr hendi. En þó var kennslustarfið aðalstarf hans, og i þvi ætla ég, að hann hafi verið flestum mönnum slyngari. Hann hafði trú á starfinu og sí-vakandi áhuga; þekkingin var traust og eljan og lægnin við að skýra viðfangsefnin alveg óbilandi. En að vísu krafðist hann mikils af lærisveinum sínum, og var slíkt ekki að undra um annan eins starfsmann og dr. Jón var. Dr. Jón var glæsilegur á velli að sjá, með stærstu mönnum á vöxt, svipmikill í andliti og allur hinn vörpulegasti. Hann var alvörumaður, hreinlyndur og hið mesta prúðmenni, einarð- 10

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.