Tímarit Máls og menningar - 01.03.1938, Blaðsíða 20
hlaðnir vikurveggir, og þar næst komið fyrir miðstöð og ofn-
um. Það verður haldið stanzlaust áfram með verkið, og eru
möguleikar til þess að byggingunni verði lokið 1. október 1940.
Byggingin kostar eins og liún stendur 525 þús. krónur, en full-
gerð rúml. 1 milljón króna. Ivostnaður við að slétta og afgirða
lóðina verður sennilega á 2. hundrað þúsund krónur.
Tekjurnar af Ilappdrætti háskólans eiga að nægja til að stand-
ast allan kostnaðinn. Á fyrstu 4 árunum hefir það gefið 600 þús.
krónur. Á þeim 6 árum, sem við eigum eftir, ætti það að gefa
900 þús. kr. En fyrir þetta fé byggjum við líka atvinnudeild
háskólans.
Innréttingu byggingarinnar verður flýtt eins og hægt er. Mest
liggur á að koma þar fyrir bókasöfnum háskólans, safni Bene-
dikts Þórarinssonar og Finns Jónssonar. Verður þar rúm fyrir
200 þús. hindi. Lestrarsalur verður fyrir 32 menn. Þá verða i
hinum nýja háskóla 16 vinnuherbergi fyrir kennara og enn-
fremur vinnustofur fyrir þá nemendur, er búa sig undir vís-
indaleg próf. Gert er ráð fyrir kennaradeild á efstu hæð, en
innrétting hennar verður látin bíða.
í háskólanum eru nú 225 stúdentar, en ef bætist við verzlun-
armanna- og kennaradeild og atvinnudeild nemenda, þá líður
ekki á löngu að tala slúdenta kemst upp í 300. En háskólabygg-
ingin nýja hefir nægilegt rúm, og má gera ráð fyrir, að hún dugi
fyrir ísland næstu 200 árin.
Vér gleðjumst yfir því, hvað máli þessu er vel á veg komið,
og hugsum, hve mikil viðbrigði það verða fyrir stúdenta og
kennara að flytja í hin nýju liúsakynni. En á leiðinni frá pró-
fessor Alexander Jóhannessyni göngum vér fram hjá Mennta-
skóla Reykjavíkur. Þar stendur hin gamla bygging, sem orðin
er allt of þröng fyrir æskulýð bæjarins. Að reisa nýjan Mennta-
skóla er annað mikilvægt verkefni, sem biður úrlausnar liið allra
fyrsta.
UMSAGNIR UM BÆKUR:
Stephan G. Stephansson: Andvökur VI.
Dr. Rögnvaldur Pétursson var í hópi þeirra vina Stephans
G. Stephanssonar, sem gáfu út þrjú fyrstu bindin af Andvökum
1909. Haustið 1923, þegar Stephan varð sjötugur, gaf dr. Rögn-
valdur, einn að kalla má, út fjórða og fimmta bindið. Þá átti
Stephan tæp fjögur ár eftir ólifað. Á þeim árum orti hann all-
14