Tímarit Máls og menningar - 01.03.1938, Síða 10
og menning, að geta ekki fengið bækur félagsins frá byrjun.
Samt höfum við verið mjög tregir að láta eftir þeim óskum
nýrra félagsmanna, að endurprenta bækurnar. Við höfum nú
fulla reynslu af því, hvað bækurnar kosta. Við vitum, að end-
urprentun ber sig ekki með minna en 1100—1200 kaupendum.
Nú eru komnir um 300, sem hafa beðið um bækurnar, og við
heyrum allstaðar að frá umboðsmönnum okkar, að nýir menn
eru óánægðir að ganga i félagið, nema þeir fái bækur þess frá
byrjun. Við getum þvi búizt enn við allhárri kaupendatölu að
bókunum. Og nú höfum við ákveðið að gefa mönnum kost á
endurprentun þeirra, ef 600 félagsmenn í viðbót hafa óskað þess
fyrir 1. maí í vor. og greiða bækurnar fyrir þann tíma, eða
skuldbinda sig til að greiða þær um leið og ákvörðun um end-
urprentun hefir verið tekin. Verði þessi kaupendatala ekki kom-
in 1. mai, getur ekkert orðið úr endurprentun bókanna næsta
sumar. .
Bókafjöldinn og bókastærðin.
Er við gerðum áætlun okkar um útgáfu 2, 4, 6 bóka með fé-
lagatölunni 1000, 2000, 3000, þá gerðum við ráð fyrir, að hver
bók yrði að jafnaði 10 arkir að stærð miðað við Skírnisbrot, en
það er sama brot og á Rauðum pennum. Örkin i því broti er
16 blaðsiður, og tiu arka bók því 160 bls. En t. d. í broti Vatna-
jökuls er örkin 8 bls. og 80 bls. eða 10 arka bók jafndýr i prent-
un og 160 bls. i stærð Rauðra penna.
Við rekum okkur strax á tvennt i þessu sambandi: að erfitt
verður að hafa bækurnar miklum mun stærri en ráðgert var
fyrir jafn lágt verð og illt að þurfa að binda sig við ákveðna
stærð i vali bókanna. Það er að visu hægt að jafna arkafjöld-
anum til, en þá hljóta sumar bækurnar að verða litlar. Það er
ennfremur til sú leið, að binda sig ekki allt af við bókafjöld-
ann, heldur arkatöluna. En ég geri ráð fyrir, að félagsmenn
yrðu með hvorugt ánægðir. Eftir að hafa fengið i hendurnar
jafn myndarlegar bækur og Vatnjökull og Rauða penna, þá er
ekki að búast við að þeir geri sig ánægða með nein smákver.
Og eigi að fara að draga úr bókafjöldanum, þá er lika hætt við
að það valdi hjá mörgum vonbrigðum. En, góðir félagsmenn, við
þessu öllu er eitt óbrigðult ráð og það er að gera Mál og menn-
ing að svo fjölmennu félagi, að það geti ekki einungis gefið út
sex 10 arka bækur á ári fyrir tíu krónur, heldur sex úrvals bæk-
ur, án þröngs tillits til stærðar og kostnaðar.
4