Tímarit Máls og menningar - 01.03.1938, Síða 15
að auki, þá getur stundum dregizt frá mestur hluti af bókar-
verðinu. ViS viljum hiSja félaga í Mál og menning, að snúa sér
fyrst um sinn til umboðsmanna okkar á hverjum stað, og spyrj-
ast fyrir hjá þeim um hækurnar. En auðvitað afgreiðum við pant-
anir með afslætti til allra félagsmanna framvegis, en Heims-
kringla getur ekki allt af tekið á sig fullt burðargjald, a. m. k. ekki
þegar um pöntun einnar bókar er að ræða.
Stephan G. Stephansson, Þórbergur Þórðarson og Halldór K. Lax-
ness eru höfundar að næstu bókum,sem út koma hjá Heimskringlu.
Það er vert að benda félagsmönnum sérstaklega á þær bæk-
ur, sem Heimskringla gefur út i vetur og vor. Fyrst er VI. og
þar með lokabindið af Andvökum, eftir Stephan G. Stephansson.
Skáldinu entist ekki aldur til að ljúka að fullu undirbúningi út-
gáfunnar, og hefir hún dregizt fram á þennan dag. Nú geta menn
loks eignazt í heiiu lagi skáldverk þessa mikla sniliings, sem
íslendingar hafa ekki enn kynnzt sem skyldi. Fyrstu þrjú bind-
in af Andvökum hafa lengi verið uppseld, en til munu þó vera
nokkur eintök óseld i Ameríku, sem Heimskringla mun ef til
vill siðar 'geta útvegað. Af IV. og V. bindi er talsvert til, og
mun Heimskringla veita afslátt á þeim, ásamt VI. bindinu.
Þá er í prentun hin langþráða bók eftir Þórberg Þórðarson,
og er ekki að þvi að spyrja, hvað mikið snilldarverk hún verð-
ur. í þriðja lagi kemur ný bók, Höll sumarlandsins, eftir Hall-
dór Kiljan Laxness, og er hún framhald af Ljósi heimsins.
Iíristinn E. Andrésson.
Happdrætti
Háskóla íslands
Fimmti hver miði að meðaltali
fær vinning á ári, 5000 vinningar
af 25000 númerum fá samtals
eina milljón og fimmtíu
púsund krónur. — Hver vill
ekki verða ])átttakandi í þessari
stóru vinningsupphæð?
9