Tímarit Máls og menningar - 01.03.1938, Page 22
öðlazt, og sem ekki sízt gerði hann að einstökum höfðingja sinna
samtíðarmanna síðustu áratugi í ríki andans og skáldskaparins,
bœði á íslandi og i Brétaveldi.
Sigfús Halldórs frá Höfnum.
Hin nýja bók Þórbergs Þórðarsonar.
Viðtal við höfundinn.
Hverskonar bók er það, sem Heimskringla ætlar að gefa út
eftir þig, og svo margir tala nú um?
Þetta mitt auðmjúka bókarkorn er að mestu leyti frásagnir
af lifandi fólki, sem eitt sinn leitaði guðsríkis og þess réttlætis,
en nú hefir livílt sig um stund við hangna bringukolla og súrs-
aða hrútspunga jarðlífsins.
Bókin fjallar í raun og veru ekki um neina stéttabaráttu. En
hún fjallar samt um baráttu. Hún lýsir baráttu einstaklingsins
við sjálfan sig og hið þykkskinnaða umhverfi sitt. Hún lýsir lífs-
stríði einstaklinga, ekki stétta. En það er einmitt þessi hildar-
leikur, sem er undirrót stéttabaráttunnar.
En ég hygg, að bók min sé samt sem áður nokkur nýjung í
íslenzkum bókmenntum. Hún er að því leyti nýjung, að hún
mun vera einhver fyrsta tilraun, sem gerð liefur verið hér á
landi til að lýsa nafngreindum samtiðarmönnum, eins og þeir
e r u eða hafa komið höfundinum fyrir sjónir. Að því leyti
stingur hún mjög í stúf við flest eða jafnvel öll önnur skrif, sem
sést hafa hér á landi um lifandi samtíðarfólk. Iíún er hvorki
lof né last, heldur lætur hún fólkið lýsa sér sjálft með hugs-
unum sinum, orðum og gerðum. En til þess að valda ekki að
óþörfu hneykslunum, þá hef ég valið þann frásagnarhátt, að
segja þetta flest eins og í góðlátlegu gamni, sem lesandanum
er sjálfum ætlað að grilla í gegnum.
í hvaða sambandi standa þessar endurminningar þínar við
þá atburði, sem nú eru að gerast eða eru yfirvofandi? Fasista-
herir gera innrás í hvert landið af öðru, Abessiníu, Spán, Ivína.
Tortíming er leidd yfir saklausar og friðsamar þjóðir, Hið vold-
uga lýðræðisríki, England, gerir bandalag við fasistaríkin og
ætlar sér sinn hluta af bráðinni. Austurríki er selt í hendur
fasismans. Vilji og réttur alþýðunnar er traðkaður i svaðið.
Valdhafarnir gera sér kaldan leik að því, að misþyrma og tor-
tíma lifi hennar, og sjálf stendur hún ráðvilt, tvistruð og svikin.
16