Tímarit Máls og menningar - 01.09.1938, Blaðsíða 4
og getur það vonandi orðið fyrri partinn í október. Eru allir
félagsmenn, sem vilja eignast bækur fyrra árs, beðnir að senda
til okkar pantanir hið allra fyrsta. Bækurnar eru ekki endur-
prentaðar í hærra upplagi en það, að þær geta auðveldlega
selzt upp á skömmum tíma. Er þá leiðinlegt, að elztu félags-
mennirnir fari á mis við þær.
Tvær sögur eftir John Galsworthy,
enska Nobelsverðlaunaskáldið, varð önnur bók félagsins í ár.
Við höfðum gert ráð fyrir riti Björns Franzsönar um efnis-
heiminii i ágúst, en urðum að skipta um röð á bókunum, vegna
þess að höfundinum vannst ekki tími lil að ljúka verkinu svo
snemma. Nafn Galsworthys er fjölda mörgum kunnugt hér á
landi, og eru fáir enskir rithöfundar, sem meira hafa verið lesn-
ir hér síðustu árin af þeim, sem geta notið ritverka hans á frum-
málinu. Við vorum svo heppnir að fá Boga Ólafsson, ensku-
kennara við Menntaskólann, til að velja handa okkur tvær af
beztu smásögum Galsworthys, er hann hefir snúið á íslenzku.
En Bogi Ólafsson er, eins og kunnugt er, einkar snjall þýð-
andi, þarf ekki annað en minna á Bakteríuveiðar, er Þjóð-
vinafélagið gaf út í þýðingu hans.
Rit Björns Franzsonar
er ennþá ekki fullsamið, en langt komið. Efnið er afar um-
fangsmikið og höfundurinn sérstaklega vandvirkur, og honum
var ekki einu sinni ætlað fullt ár til samningar bókarinnar.
Ég held ])að megi fullvissa félagsmenn um, að hér er merki-
legt ril á ferðinni, sem borgar sig að bíða eftir einum til tveim
mánuðum lengur. Það er varla til skemmtilegra efni, þegar vel
er farið með það, heldur en lýsingar á þeim niðurstöðum, sem
vísindi nútímans hafa komizt að uin efnisheiminn. Bókin verð-
ur allslór, yfir 200 hlaðsiður í sama broti og Rauðir pennar,
með nokkrum teikningum.
Rauða penna IV
verður reynt að gera sem allra bezt úr garði. Þeir verða eins
að frágangi og svipaðir að stærð og i fyrra, en efnið verður
fjölbreyttara og allmargir nýir höfundar, sem skrifa í þá. Einn
frægasti kvæðaflokkurinn, sem til er í enskum bókmentum, Ballad
of Reading Goale eftir Oscar Wilde, birtist þar allur i heild
i íslenzkri þýðingu eftir Magnús Ásgeirsson. Þetta listaverk eitt
2