Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1938, Blaðsíða 14

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1938, Blaðsíða 14
Anna Borg hóf leikstarfsemi sína í Reykjavík, og ef hún hefði haldið ])ar áfram, er ekki víst, að hún hefði skarað neitt sér- staklega fram úr. En nú, þegar hún kom heim, eftir dvöl sína í Danmörku, kom óðara í Ijós, að leikur hennar var ekki að- eins miklu hetri, lieldur hreint og beint annarrar tegundar en hinna heimaöldu leikenda. Með vandvirkri þjálfun og fullkomn- unina sifellt fyrir augunum, að leiðarstjörnu, var lnin orðin að þroskaðri leikkonu á Evrópu-mælikvarða. Hún hafði tileink- að sér þá tækni, sem talin er sjálfsögð i erlendum leikhúsum og fengið þá almennu og hókmenntalegu þekkingu, sem er nauð- synlegt skilyrði þess að geta túlkað persónur á réttan og á- hrifarikan hátt. Þegar lnin svo kom aftur fram á leiksviðið í Iðnó, eftir að hafa fengið þessa skólun, hreif hún áhorfend- urna umsvifalaust, eins og sjaldgæf opinberun. Sérstalcúr fengur var þó að því, að sjó Paul Reumert. Hann er óvenjnlega mikill leikari, fjölhæfur og slórhrotinn, enda tal- inn einhver mikilhæfasti leikari á Norðurlöndum. Paul Reumert er jafnvígur á allt svið mannlegra tilfinninga, allt frá dýpstu örvæntingu til léttuslu gamansemi. Framsetningin er óvenjulega Ijós, örugg og sterk. En það, sem gerir leik hans ógleymanleg- an, er hinn mikilúðlegi pcrsónuleiki hans, hið óskilgreinanlega, er gefur allri túlkuninni hið fíngerðasta líf. Reumerts-hjónin sýndu íslenzkum leikhúsmálum mikla velvild með komu sinni, og svo mikill er áhugi þeirra i þessum efn- um, að þau gáfu Þjóðleikhúsinu ágóðann af sýningunum. Það fé kann að hrökkva skammt til að fullgera þessa miklu bygg- ingu, sem nú hefir staðið árum saman hálfgerð og tóm, sem tákn þeirrar yfirborðsmennsku og tóinlætis, er rikt hefir í ís- lenzkum menningarmálum að undanförnu. — En gjöf þessara ágætu leikara her fyrst og fremst að skoða sem ákveðna hvatn- ingu um að hefja leiklistina i þann virðingarsess, sem henni ber hjá hverri menningarþjóð. Gísli Ásmundsson. Að endurreisa Þingvelli. Þingvellir eru einstök töfraveröld. Þegar maður kemur niður i gjána og útsýnin opnast yfir vellina, Blóskóga, fjallahringinn og vatnið, þá er eins og maður sé kominn í æðra heim, — eða er það aðeins hámark jarðneskrar fegurðar og tignar? Auk þess sem Þingvellir eru hið mesta náttúruundur og augasteinn feg- urðarinnar, ])á vill svo til að þeir eru í sterkari tengslum við sögu þjóðarinnar en nokkur annar staður á landinu. Nú heyri 12

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.