Tímarit Máls og menningar - 01.09.1938, Blaðsíða 30
ins þar síðastliðinn vetur og ferðalög hans. Hún er nijög ólík
öðrum ferðabókum, sem ég hefi lesið uní Sovétríkin, þar á með-
al fyrri hók Halldórs. Hún er skrifuð af miklu fjöri og andríki,
segir hispurslaust frá öllu, jafnt kost og löst. Virðist nú höfund-
urinn sjá allt í öðru ljósi en áður, og fá menn hér alveg nýja
mynd af Sovétríkjunum, er mörgum kann að koma talsvert á
óvart, ekki síður þeim, sem hafa dýrkað þau, en hinum, er ekki
hafa mátt heyra þau nefnd. Ennfremur er i prentun barnabók,
Fuglinn segir . . eftir Jóhannes úr Kötlum. Það eru þrjár sög-
ur um líf fuglanna, og verður bókin með teikningum eftir Tryggva
Magnússon. Þá er verið að prenta eitt af snjöllustu ritum Len-
ins: Ríki og bylting. Það er eitt af hinum fyrstu verkum hans,
er út kemur á íslenzku. Eftir Guðmund Böðvarsson, höfund að
Kyssti mig sól, kemur út ný Ijóðabók. Kyssti mig sól var tekið
afbragðs vel og er þegar uppseld. Guðmundur er eitt af heztu
ljóðskáldunum okkar. Loks er í undirbúningi að gefa út Þulur
eftir Theodóru Thoroddsen. Fyrri þulur hennar eru löngu upp-
seldar, og síðan hefur hún ort allmargar. Verða þær nú allar
gefnar út í heild, þær fyrri með teikningum eftir Guðmund Thor-
steinsson og þær nýrri með nýjum teikn'ingum eftir son Theo-
dóru, Sigurð Thoroddsen. Þetta verður mjög falleg útgáfa og
verulega skennntileg eign. Af Ljóðum eftir Stein Steinarr kem-
ur innan skannns önnur útgáfa. Sú fyrri var aðeins prentuð i
150 tölusettum eintökum handa áskrifendum og seldist strax upp.
Þar sem Steinn vandar sig að yrkja, eru ljóð hans verulega góð,
gersamlega laus við alla mærð, tær, einföld, hugsuð að formi
og byggingu, nýtízkuleg og fögur. Menn ættu að veita þessu unga
skáldi athygli, þó að Ijóð þess séu ekki gamaldags samanbarið
rím og stuðlafarg. Þá er rétt að minna á það, að báðar bækur
Halldórs Kiljan Laxness frá þvi i fyrra, Ljós heimsins og Dag-
leið á fjöllum eru komnar í annarri útgáfu. Sýnir það bezt hina
vaxandi eftirspurn eftir bókum Ilalldórs, að þær skulu orðið
seljast upp á fyrsta ári.
Menn sjá af þessu, að úr nógu er að velja af útgáfubókum
Heimskringlu, en af þeim öllum fá félagsmenn Máls og menn-
ingar 15% afslátt.
Kr. E. A.
Enn um Menntaskólann.
í síðasta hefti „Máls og menningar" i vetur var smágrein
um nemendatakmörkunina í Menntaskólanum. í vor við inn-
tökuprófin kom fram sterkari óánægja með þessa takmörkun
28