Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1938, Blaðsíða 26

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1938, Blaðsíða 26
hann skrifar um, og þykir mér líklegt, að hann haldi þeim vin- sældum, sem hann hefir aflað sér á þessu sviði. G. M. M. Sigurður Einarsson: Líðandi stund. (Heimskringla 1938). Öllum kemur saman um það, að Sigurður Einarsson á snjallan penna. Menn geta verið á allt annarri skoðun en hann, hinu neitar enginn, að tilþrif eru i því, sem hann skrifar. I>að liefir líka í mörg ár staðið gustur um nafn hans. Landfræg varð á svipstundu grein hans „Nesjamennska“, þar sem hann hjó eins og berserkur á hinar seigu taugar þröngsýni og þykkskinnungsháttar í landinu. Fjölmargar ritgerðir hans aðrar, og erindi, hafa vakið almenna athygli hver á sínum tíma. Sigurður er einn af þeim fáu, sem haldið hefir uppi menningar- legri gagnrýni af nokkrum krafti, og alltaf er hress og vakandi. Nú er að koma lit allstórl ritsafn eftir Sigurð, er hann nefnir Líðandi stund. Þar er úrval af eldri ritgerðum, sem birzt hafa á við og dreif i timaritum og blöðum, t. d. Nesjamennska, Um listir, Ogmundur Sigurðsson, Tæknikönnun, Járnöld hin nýja, ritdómar um Guðmund Kamban, Halldór Kiljan Laxness, Jó- hannes úr Kötlum o. fl. Þá er einnig margt af ritgerðum og erindum, sem hvergi hafa birzl áður, eða eru nýsamdar. Þar má nefna langa ritgerð um Hermann Vildenvey, norska Ijóð- skáldið, Svipi liðinnar tíðar, og fslenzka ættjarðarást. Nýjustu ritgerðirnar og þær, sem mesta athygli munu vekja nú, eru Átök- in í andlegu lífi nútímans og Bær hinna rauðu blóma. Þegar menn fá þannig ritgerðir Sigurðar saman i einni bók, og þó ekki sé nema úrval þeirra, ])á sést bezt hve rösklega og víða hann hefir látið til sín taka í íslenzku þjóðlífi. Það eru margskonar hitamál dagsins, sem orðið hafa tilefni ritgerðanna, þær tillieyra hver fyrir sig hinni líðandi stund. Þær bera þess flestar merki á einn eða annan hátt, hafa ekki blæ nákvæmr- ar útfærslu eða yfirlegu, brestur sumstaðar nokkuð á vandvirkni, en á móti eiga þær kraft og hita, hressandi dirfsku og mál- kynngi. Þar sem Sigurður vandar sig eða tekst bezt, eru rit- gerðir hans með því snjallasta, sem liér er skrifað, bæði að máli og stíl. Hér er ekki staður til að leggja dóm á rithöfundarferil Sigurðar Einarssonar, eins og bann endurspeglast í Líðandi stund. Ég vil aðeins taka fram, að þegar maður les þessa bók hans, greinar frá mörgum árum í samhengi, þá er alstaðar að finna siheitan bardagamann, stöðugar. ádeilur á þröngsýni, 24

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.