Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1938, Qupperneq 16

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1938, Qupperneq 16
smekk fyrir því aö leiða hingað framandi gesti, en um hitt þarf ekki að fara í grafgötur, hvern vitnisburð erlendir menn kjósa menningarsligi þjóðar, sem hefur helgasta stað lands sins i því- líkri óvirðingu, En ef við reyndum nú að bjarga Þingvöllum úr klóm alkóhól- ista og annarra siðleysingja og gerðum þá aftur að stað, sem væri samboðinn islenzkum almenningi! Ég sting upp á að vinir siðmenningar á íslandi skeri upp herör gegn því virðingarleysi og niðurníðslu, sem þessi höfuðstaður íslenskrar náttúru og is- lenzkrar sögu hefir verið ofurseldur. Ég sting upp á þvi, að Þingvellir séu friðaðir fyrir alkóhólistum. Ég sting upp á að Þingvellir verði aftur gerðir að þingvöllum, samkomustað þjóð- arinnar og öðru heimili. Við erum lýðræðisríki og þingræðis. Fyrir utan sjálfl löggjafarþing okkar eru í landinu ýmis fé- lög og stofnariir almennings, flokkar og hópar miklu ráðarídi um ólikustu þjóðhagsmál og menningar. I lýðræðislandi hafa almenn félög og sambönd, sem sameinast um ýmis verkefni þjóðlífsins ekki síðra gildi en löggjafarþingið sjálft; eru meira að segja í eðli sínu yfirboðarar þess. Ég sting upp á því, að hinir ýmsu féiagsskapir þjóðarinnar leggist á eilt um að gera Þingvelli að þingstað sínum á ný, stofni með sér samtök um að láta reisa þar þinghöll, sem sé staðnum samboðin, með rúm- góðum sölum og gistimöguleikum. Það virðist að vísu ekki bera brýna nauðsyn til að gera Þingvelli að almennum gististað ferðamanna, þar sem fjarlægðin til Reykjavíkur er nú farin á klukkutíma, en samt er full ástæða til að búið sé svo í haginn á þessum fræga stað, að nokkrir dvalargestir geti hafzt þar við bæði á sumri og vetri við sæmilega aðbúð. Við eigum enn ekkert sumarhótel, sem fullnægi skilyrðum, sem gerð eru til þriðja flokks gistihúss á Norðurlöndum, hvað þá meira. Þing- vellir mættu gjarna vera hið fyrsta, þar sem við gætum kinn- roðalaust boðið erlendum gesti inn, án þess að þurfa sjálfir að lúta lægri kröfum um híbýlakost en þeim, sem fátækur al- menningur gerir heima hjá sér. Af þeim félögum innanlands, sem mér þætti sennilegt að vildu vinna Þingvelli á ný úr þessu ófremdarástandi og veita staðn- um uppreisn, skal fyrst fræga telja stjórnmálaflokka landsins og þau félög, sem tilheyra þeim, iþróttafélög, ungmennafélög, kvenfélög, verklýðsfélög, samvinnufélög, stúdentafélög og mennta- félög allskonar, presta-, kirkju- og trúarbragðafélög af ýmsu tagi, búnaðarfélagið, góðtemplararegluna. Með samvinnu fjölda^ félaga og félagssambanda um land allt, framlögum eftir efnum 14

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.