Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1938, Qupperneq 21

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1938, Qupperneq 21
veitulán í öðrum löndum og fá það með hefðarkjörum. Mætti af þessu ætla, að Guðmundur væri löglega undanþeginn. því, að yrkja fögur ljóð eða leggja hinum fátæklegu bókmenntum Is- lands nýstárleg og stórfengleg skáldverk. En það liggur ekki við að Guðmundur fari almanna götur í þessu. Eftir því sem árin færast yfir hann og annir hins borg- aralega lífs 'verða meiri, verður hann mikilvirkari og merkilegri rithöfundur. Og það ætla ég að sé skrumlaust mál, að með þess- ari síðustu bók sinni, Sturlu i Vogum, hefur Guðmundur ekki einungis skrifað merkilegustu bók sína, heldur og bók, sem er stórum eflirtektarverð i bókmenntum okkar, og fullkomlega oka- tæk á mælikvarða hvaða bókmenntaþjóðar sem er. Sturla í Vogum er sagan um drenginn, sem alinn er upp á sveit. Einhvernveginn hafa örlögin gefið honum í vöggugjöf ó- drepandi j>rek og manndóm, sem hið versta uppeldi hefur ekki getað drepið úr honum. Hann verður einyrkjabóndi i Vogum, notadrjúgri jörð til lands og sjávar, og berst áfram við öfund og fjandskap mannanna og óblíðu náttúrunnar af dæmafárri karl- mennsku. Undir þessu hrjúfa yfirborði cr heit og viðkvæm mann- lund. Hann elskar konuna sína, litlu umkomulausu telpuna, sem hann hafði hjálpað í erfiðri raun á drengjaárum sinum, en sem nú reynist honum hin ómetanlega hjálparhella í öllum mann- raunum, og uppspretta heitrar dulinnar gleði, sem streymir i gegn um allt líf hann og gegnumvermir það. En hann missir þessa konu, með hörmulegustu atvikum, missir hlöðurnar sinar, missir heyið sitt, missir tiltrú mannanna fyrir óþjálni sína og öfund illra manna. En Sturla lætur ekki bugast. Hann er ís- lenzkur einhyggjumaður, liyggur sér allt fært og á aðeins eitt boðorð: að gefast aldrei upp, bogna aldrei, biðja aldrei um neitt. Og Sturla biður aldrei um neitt. En lífið kennir honum að þiggja. Hann lærir að lokum þá erfiðu lexíu, að þiggja vinarhug og greiðasemi mannanna, þiggja aðstoð þeirra. Einhyggjumanninum karlmenninu Sturlu í Vogum verður það að lokum ljóst, að það er ekki líft í þessum heimi án mannanna. Samlijálpin, samtökin eru honum i bókarlok éins og óljóst markmið, sem hann að- eins eygir, úrræði sem kann að duga, þegar jafnvel ])reki hins sterkasta er ofboðið. í bókinni er fjöldi af aukapersónum, öllum vel gerðum og svo yndislegar lýsingar á börnum, að ég minnist varla að hafa les- ið aðrar fegurri. Ógleymanlegir eru barnið Doddi og gamli mað- urinn Björn í Vogum, sem talar mál, sem að vísu hefur verið til á vörum íslenzkra alþýðumanna, en enginn hefur bókfest 1 9

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.