Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1938, Page 25

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1938, Page 25
Þetta segir skáldið i upphafsljóði sínu: Söguhetjur íslands. Og í Vestmenn er þetta erindi: Þeir feta og skima um fylgsni og rauf, en feril yargsins hvergi sjá. — í fauskum skrjáfar, skelfur lauf, og skuggar tíu elta þá. Og fyrr en varir flýgur steinn, og folcsnöggt vopni brugðið er. Þeir hnigu í rjóðrin einn og einn, — i undrun dauðans bylta sér. Skógarmaður er ákaflega áhrifamikið kvæði. Þungt á fletið fallast lætur fjallabúinn, — tautar rær, fálmar eftir faðmi, grætur, fleygir sér á grúfu, lilær. Einn um daga, einn um nætur, — allt það sama í dag og gær. í Tveir bræður er þetta erindi: Friðsaman fuglinn við kjósum fremur en útlendan her. — Grunsöm hjá Gvendi bróður gjafmildin stundum er. Þeir auðugu svíkja allir, — en alþýðan fylgir mér. Eigi skal höggya er geysimikið kvæði, formfast og sterkt í áhrifum. .... En það er tilgangsiaust að telja; bókin er öll svona út í gegn, eitthvað við flest kvæðin og ekkert af þeim iélegt. Og þegar lestrinum er lokið, þakkar maður i huganum og fer að hlakka tii næstu bókar eftir Jóhannes úr Kötlum. Jón H. Guðmundsson. Jóhannes úr Kötlum: Fuglinn segir .... (Heimskr. 1938). Þegar Jóhannes úr Kötlum gaf út „Jólin koma“ 1932, og „Ömmusögur" árið eftir, eignaðist hann marga aðdáendur meðal æskulýðs landsins. Börn og unglingar tóku fagnandi hinum gömiu þjóðsögnum, sem skáldið færði í léttan Ijóðabúning. Nú sendir Jóhannes æskulýðnum dálitla bók i óbundnu máli. Það eru þrjár fuglasögur: Lítill lómur, Vísindalegar rannsóknir og Ung- inn eini. Segir þar i ævintýraformi frá lifnaðarháttum fugla og nábýli þeirra við mennina. Höf. þekkir auðsjáanlega það, sem 23

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.