Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.2013, Blaðsíða 8

Ægir - 01.06.2013, Blaðsíða 8
8 F I S K V E I Ð A R Með endurskoðaðri fiskveiði- stefnu Evrópusambandsins, The Common Fisheries Policy, sem tekur formlega gildi þann 1. janúar 2014, er markmiðið að koma böndum á viðvarandi brottkast og freista þess þannig að snúa af þeirri þró- un sem leitt hefur fiskveiðar innan ESB í ógöngur. Flestir stofnar eru nú ofveiddir og sumir komnir undir það sem skilgreint er sem hættumörk. Talsverð nýmæli felast í endurskoðaðri stefnu, m.a. aukinn sveigjanleiki en skort- ur á honum hefur einmitt verið einn helsti galli núver- andi fyrirkomulags. Ákvarð- anir hafa verið teknar einu sinni á ári og því ógerlegt að bregðast við breyttum að- stæðum með skjótum hætti. Auk banns við brottkasti og krafna um sérhæfðari veiðar- færi verður framsal kvóta heimilað á milli einstakra ríkja og hugsanleg tilfærsla á milli ára einnig leyfð til að stemma stigu við því að fiski sé kastað. Meðafli er óhjá- kvæmilegur við tilteknar veiðar, en lagt er ofurkapp á að veiðarfæri séu þannig að sem minnstar líkur séu á öðr- um tegundum en þeim sem sóst er eftir. Sömu markmið – mismunandi árangur Ole Poulsen, einn helsti sér- fræðingur Dana í sjávarút- vegsmálum og fyrrverandi sviðsstjóri í sjávarútvegsráðu- Ole Poulsen fyrir utan Norræna húsið í Reykjavík þar sem hann flutti vel sóttan fyrirlestur. Ole Poulsen, danskur sérfræðingur í fiskveiðistefnu ESB: „Klárlega hagur allra sjómanna að virða bann við brottkasti“

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.