Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.2013, Blaðsíða 32

Ægir - 01.06.2013, Blaðsíða 32
32 H A F N I R Engar nýframkvæmdir eru á döfinni hjá Hafnarfjarðarhöfn en þar á bæ safna menn kröftum eftir stórframkvæmdir á undanförnum árum. Talsvert verður um viðhaldsfram- kvæmdir og aðrir fjármunir fara til rekstrar og þess að greiða niður skuldir. Már Sveinbjörnsson hafnarstjóri kveðst reikna með að næstu fimm árin verði lítið um ný- framkvæmdir í Hafnarfjarðar- höfn. Viðhaldsverkefnin nú felast í viðgerðum á bökkum og bryggjum sem gefa eftir og slitna, eins og gengur. „Við erum reyndar að skipta um dekkin á bryggjun- um í Straumsvík og setja þar upp svokallaðar blaðþybbur. Þetta eru varnir á bökkunum sem koma í veg fyrir skemmdir á skipum þegar þau nuddast utan í bakkana. Þetta eru sterkar, lóðréttar plötur sem eru gúmmíklædd- ar og innbyggt í þær eru demparar sem taka við högg- um og hnjaski,“ segir Már. Hann segir að umsvifin í Hafnarfjarðarhöfn séu nú mjög svipuð og þau hafi ver- ið undanfarin ár. Mesta um- ferðin um höfnina hafi verið að sumarlagi en minni að vetrarlagi og segir hann að svipað virðist ætla að verða í sumar. „Það er mikið að gera núna og höfnin full af skip- um. Við vonum til að þetta endist fram í september. Mest eru þetta togarar en einnig eru fragtskip þarna á milli.“ Tíu skemmtiferðaskip eru bókuð í Hafnarfjarðarhöfn í sumar og er eitt þeirra þegar komið og farið. Þann 30. júlí leggjast þrjú skemmtiferða- skip að bryggju í bænum og má búast við fjölmenni í Hafnarfirði þessa daga. Tvö skipanna eru með um 250 farþega en það þriðja 600 far- þega. Í heildina leggja 200 til 250 skip að bryggju í Hafnar- firði í sumar og segir Már það mjög svipaða umferð og ver- ið hefur í allmörg ár. Talsvert er um komur rússneskra tog- ara og togara frá löndum eins og Grænlandi, Noregi, Fær- eyjum og Danmörku. Einnig slæðast inn togarar frá Kan- ada og öðrum löndum, sem og íslenskir togarar. „Við fjárfestum fyrir tvo og hálfan milljarð króna í hafnar- svæðinu okkar og hluti af láninu hefur vaxið eftir hrun- ið og það hefur dálítið dregið úr okkur máttinn. Við erum því fyrst og fremst að ein- beita okkur að því að greiða niður lán og safna kröftum. Framkvæmdirnar koma enda í bylgjum og framkvæmdirnar sem við fórum í á Hvaleyrar- svæðinu voru risastórar á okkar mælikvarða,“ segir Már. Hafnarstjórnin hefur sett fram tillögu um að brjóta nýtt land vestan Straumsvíkur sem verði framtíðarhafnarsvæði Hafnarfjarðar. En grundvallar- ákvarðanir liggja ekki fyrir þannig að hægt verði að skipuleggja svæðið í þaula. „Það er trú hafnarstjórnar að þetta sé mjög góður kost- ur til hafnargerðar,“ segir Már. Togarar í löngum röðum í Hafnarfjarðarhöfn. Menn að safna kröftum fyrir næstu framkvæmdir Már Sveinbjörnsson, hafnarstjóri í Hafnarfirði, segir umsvifin í höfninni svipuð og verið hefur í allmörg ár.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.