Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.2013, Blaðsíða 11

Ægir - 01.06.2013, Blaðsíða 11
11 T Æ K N I Þ R Ó U N F I S K V I N N S L U sett okkur að ná fram með línunni. Þessi áhersluröðun er einnig sú sem skilar fiskiðn- aði mestum fjárhagslegum ávinningi og á hraðastan hátt,“ segja Kristján Hallvarðs- son, þróunarstjóri Marel og Rúnar Birgisson, vinnsluþró- unarstjóri, en þeir leiða tækniþróun í fiskiðnaðarsetri Marel sem stofnað var árið 2010. Tilgangur með stofnun þess var að skerpa enn frekar á áherslum í vöruþróun og tæknilausnum Marel fyrir fiskiðnað og er skipulags- breytingin grunnur að því stóra skrefi sem nú er ráðist í með hönnun nýrrar fisk- vinnslulínu. „Við teljum að enn séu mikil tækifæri til að auka nýt- ingu í hvítfiskvinnslu og meðal leiða til að nýta þau er að auka áherslu á kælingu í gegnum alla vinnsluna. Á síð- ustu árum hefur áhugi á hrá- efniskælingu almennt aukist í fiskveiðum- og fiskvinnslu, sem og rannsóknir á gildi kælingar. Mikilvægi þessa þáttar er síðan undirstrikað í nýju línunni þar sem þess verður gætt að hafa góða stjórn á kælingu allt frá upp- hafi vinnslu þar til afurðir eru komnar í pakkningar.“ Lausnir fyrir stóra sem smáa framleiðendur Vinnslulínur á borð við þá sem nú er hafin hönnun á hjá Marel eru fyrst og fremst ætl- aðar stærri vinnslufyrirtækjum en Kristján og Rúnar leggja áherslu á að með þróunar- starfinu muni minni og sér- hæfðari vinnslufyrirtækjum líka opnast ný tækifæri. „Vinnslulínan kemu til með að verða samsett af mörgum vinnslulausnum sem geta staðið sjálfstætt hver á sinn hátt. Þannig geta ein- stakir hlutar línunnar komið minni fyrirtækjunum að góð- um notum í þeirra afurðaþró- un fyrir viðskiptavini. Marel hefur alla tíð lagt áherslu á jafnt stóra framleiðendur sem smáa og þannig munum við einnig vinna nú. Við teljum að nú sé tími kominn til að stíga stórt tæknilegt framfaraskref með fiskiðnaðinum og styðja at- vinnugreinina til framþróun- ar, betri nýtingar á auðlindum hafsins og bættrar samkeppn- isstöðu á matvælamörkuðum heims. Okkar hlutverk er sem fyrr að vera leiðandi á þessu sviði.“ Kristján Hallvarðsson, þróunarstjóri Marel. Rúnar Birgisson, vinnsluþróunarstjóri Marel. Smiðjuvegi 66 • 200 Kópavogi • Sími 580 5800 • www.landvelar.is Sameinar það besta í rafsuðu

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.