Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.2013, Blaðsíða 30

Ægir - 01.06.2013, Blaðsíða 30
30 „Við erum að klára að steypa þekju á Mávagarði sem er ný olíubryggja hérna. Þetta hefur verið heilmikil framkvæmd og er splunkuný hafnaraðstaða. Það á að færa olíubirgðastöð- ina yfir á Mávagarð. Þetta er 65 metra langur kantur og það var mörg þúsund rúm- metrum dælt upp til þess að búa til land þarna,“ segir Guðmundur M. Kristjánsson hafnarstjóri á Ísafirði. Alls eru þarna á svæðinu þrjár lóðir. Byrjað var á fram- kvæmdinni í hitteðfyrra. Heildarkostnaður hleypur á um 150 milljónum króna. Eins og Ísafjarðarbær hefur þróast var olíubirgðastöðin komin inn í miðjan bæinn og því mikil þörf á nýrri að- stöðu. Á þessu ári verður hún flutt á nýja svæðið þar sem verður aðstaða eins og boðið er upp á í Reykjavík, Akur- eyri og Neskaupstað þar sem hægt er að taka olíu beint um borð í skipin frá birgðastöð. Útgerðirnar hafa fengið olí- una á lægra verði ef hægt er að dæla henni þannig beint frá birgðastöðvum. Um leið losnar um verð- mætt svæði í bænum þegar olíubirgðastöðin flytur sig um set. Gert er ráð fyrir því að þær tvær lóðir sem losna verði mjög verðmætar því þær eru á ákjósanlegum stað á hafnarsvæðinu og miðbæn- um. Gríðarleg aukning er að verða í komum skemmtiferðaskipa til Ísafjarðar, enda eftir mörgu að sækjast í þeirri miklu náttúrufegurð sem þar gefur að líta. H A F N I R Ísafjarðarhöfn: Olíubirgðastöðin að flytja á nýjan Mávagarð Mávagarður, framkvæmd upp á um 150 milljónir króna. Þar verður olíubirgðastöð bæjarins í framtíðinni.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.