Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.2013, Blaðsíða 10

Ægir - 01.06.2013, Blaðsíða 10
10 T Æ K N I Þ R Ó U N F I S K V I N N S L U Marel hefur í áratugi verið leiðandi í tækniþróun fyrir fiskiðnað og hefur innleitt margar af þeim lausnum sem nútíma fiskvinnsla byggir á. Leiðarljós í þessari þróun hef- ur frá upphafi verið að auka virði afurða, bæta nýtingu hráefnis og auka sjálfvirkni. Tæknilausnir sem byggja á þessum markmiðum hefur Marel frá upphafi þróað í ein- stökum vélum og einnig í heildstæðum vinnslulínum fyr- ir hvítfiskvinnslu. Marel stendur nú á merk- um tímamótum - fagnar 30 ára afmæli og er enn á ný að leggja upp í nýja landvinn- inga á tæknisviðinu. Í byrjun þeaa árs hófst hönnun á nýrri vinnslulínu fyrir hvítfisk sem ætlað er að marki tímamót í fiskiðnaði líkt og fyrirtækið er þekkt fyrir í sögunni. Línan mun m.a. byggja á nýjustu tæknilausnum Marel, ítarleg- um rannsóknum á hráefni og vinnslutækni og óskum kaup- enda um vinnslu, m.a. hvað varðar beinlausar afurðir, bitavinnslu og fleira. Nýja vinnslulínan á að skila fram- leiðendum auknum gæðum og verðmætari afurðum. Fyrsti áfangi vinnslulínunnar mun koma á markað síðari hluta árs árs 2014. Í fararbroddi með nýjungar Fyrsta flæðilína Marel kom á markað árið 1992 og vakti mikla athygli fyrir sjálfvirka vigtun og möguleika á einstaklings- bónus starfs- manna. Ný kyn- slóð af línunni kom fram fimm árum síðar en þá hafði fyrirtækið þróað nýja skurðarvél sem gjör- breytti möguleikum til bita- vinnslu á fiski sem jók verð- mæti afurða. Skömmu eftir aldamótin endurhannaði Mar- el flæðilínuna og hóf einnig byltingarkennda þróun á röntgenbúnaði sem getur greint bein í fiskafurðum. Fyrirtækið hefur haldið þeirri þróun áfram á síðustu árum og nýjasta verkefnið er þróun á tækni til að fjarlægja beina- garð sjálfvirkt úr hvítfiski. Sérstakt rannsóknarteymi inn- an Marel hefur þetta verkefni með höndum og vinnur að því í samstarfi við sjávarút- vegsfyrirtækin Norway Sea- food og Samherja hf. en þessi tæknilausn kemur til með að verða hluti nýju vinnslulínnar frá Marel og stærsta tæknilega framfara- skref hennar. Áformað er að beinaskurðartæknin verði markaðssett síðari hluta árs 2014 sem fyrsta skref nýju vinnslulínunnar. Hugbúnaðurinn Innova frá Marel hefur verið í stöðugri framþróun síðustu ár og á honum mun öll stjórnun nýju vinnslulínunnar frá Marel byggjast. Þá verður í hönnun línunnar lögð rík áhersla á kælingu hráefnisins í gegnum allan vinnsluferilinn en Marel hefur á síðstu árum aukið áherslu á þennan þátt í fram- leiðslu hágæðaafurða í fisk- iðnaði, m.a. með samstarfi við fyrirtækið Skagann hf. um svokallaða „Super Chilling“ tækni. Byggt á vísindum og nýjustu tækni Í hópi starfsmanna sem vinna að hönnun nýju hvítfisk- vinnslulínunnar hjá Marel eru auk tæknimanna fyrirtækis- ins, sérfræðingar í matvæla- verkfræði, örverufræði og fleiri þáttum sem undirstrikar þá áherslu sem fyrirtækið leggur á að ná fram auknum gæðum afurða með nýjum út- herslum í meðferð hráefnis í gegnum vinnsluna. Á þessum þáttum mun að hluta byggjast aukin nýting, hluti línunnar verður ný forsnyrting, áður- nefnd tækni við að fjarlægja beingarð úr afurðunum verð- ur einnig í línunni og ný tækni við bitavinnslu og pökkun á ferskum afurðum. Framleiðendum verður því gert kleift að bjóða viðskipta- vinum sínum beinlausar af- urðir og aukna fjölbreytni í skurði og bitavinnslu, lagað að óskum á neytendamark- aði. Sjálfvirkni verður meiri í nýju línunni en áður hefur þekkst. Lausnir sem skila fjárhagslegum ávinningi hratt „Sveigjanleiki verður lykil- þáttur í nýju vinnslulínunni og að hún geti þjónað bæði ferskfiskvinnslum og fryst- ingu á komandi árum og uppfyllt þarfir framleiðenda bæði hérlendis og erlendis. Aukin nýting, bætt með- höndlun, hávirðisafurðir og aukin sjálfvirkni eru þeir áhersluþættir sem við höfum Marel hannar nýja vinnslulínu fyrir hvítfisk Sjálfvirkni í nýrri hvítfiskvinnslulínu Marel kemur til með að verða meiri en áður hefur þekkst.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.