Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.2013, Blaðsíða 27

Ægir - 01.06.2013, Blaðsíða 27
27 F I S K M A R K A Ð I R „Framboðið hefur verið heldur meira en við áætluðum en verðið er heldur lægra en áð- ur. Það hefur samt verið alveg ágætur gangur í þessu hjá okkur,“ segir Þórður Kjartans- son, hjá Fiskmarkaði Suður- nesja, sem rekur fiskmarkaði á fimm stöðum á landinu; Grindavík, Sandgerði, Hafnar- firði, Ísafirði og Höfn í Horna- firði. Heilt yfir starfa um 30 manns hjá Fiskmarkaði Suð- urnesja. „Þetta er reyndar árstíða- bundið hjá okkur. Sumrin hafa undanfarinn áratug verið heldur dauf hjá okkur hérna á suðvesturhorninu og það er eitthvað í lífríkinu sem veldur því. Þó hafa umsvifin verið heldur meiri hjá okkur í Grindavík í ár vegna þess að Gjögursbátarnir hafa verið nokkuð drjúgir við sölu þar,“ segir Þórður. Þá hafa fisk- framleiðendur í Grindavík eins og Stakkavík og Einham- ar verið drjúgir við að selja stærðarflokka sem þeir nýta ekki. Verðmyndun ræðst af erlendum mörkuðum Hann segir að strandveiðarn- ar séu að sjálfsögðu viðbót en gæftirnar gangi niður á suðvesturhorninu yfir sumar- tímann á öllum helstu nytja- tegundum. Það hafi því reynst strandveiðiflotanum á þessu svæði erfitt að ná sín- um skammti á þessum tíma. „Það er eins og veiðin fær- ist norður fyrir þegar hlýnar. En þeir eru reyndar drjúgir strandveiðimennirnir fyrir austan á Höfn og Breiðdals- vík og því svæði öllu.“ Þórður segir verð á mörk- uðum vissulega hafa lækkað og það eigi við um allt landið enda sé þetta bara eitt mark- aðssvæði. „Flutningskostnaður virðist ekki vera afgerandi þáttur í verðmynduninni og það kemur manni reyndar á óvart hve lítil áhrif hann hefur á verð. Verðmyndunin ræðst af því sem erlendir markaðir eru tilbúnir að greiða fyrir sjávar- fangið. Reyndar hafa stærri fyrirtækin líka híft upp verðið þegar þeirra eigin bátar hafa klárað kvótann eða eru ekki að veiðum. Þá hafa þau keypt á mörkuðum og virðist ekki skipta öllu máli hvaða verð eru í gangi. Þau þurfa mörg hve að uppfylla samn- inga og þetta getur ýtt verð- inu upp,“ segir Þórður. Flutningskostnaður ekki afgerandi þáttur í verðmyndun Landað hjá Fiskmarkaði Suðurnesja í Sandgerði.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.