Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.2013, Blaðsíða 14

Ægir - 01.06.2013, Blaðsíða 14
14 Fór fyrst smápatti á sjó Fyrstu 10 ár ævi sinnar bjó Konráð á Árskógsströnd, for- eldrar hans eru Alfreð Kon- ráðsson, frá Árskógsströnd og Valdís Þorsteinsdóttir úr Hrís- ey. Fjölskyldan flutti svo yfir til Hríseyjar. „Ég byrjaði ung- ur á sjó, var bara smápatti þegar ég fór fyrstu túrana með pabba og afa,“ segir hann. Konráð afi hans Sig- urðsson átti ásamt sonum sín- um, Alfreð og Sigurði, útgerð og gerðu m.a. út bátinn Sól- rúnu EA, sem var 12 tonna eikarbátur. Það var því hægur vandi fyrir strákinn að róa með þeim af og til þó ungur væri. „Sjómennskan byrjaði á Sólrúnu, en þann bát hafði Nói bátasmiður smíðað fyrir afa,“ segir Konráð. Konráð dvaldi mikið hjá afa sínum og ömmu á Ár- skógsströnd eftir að fjölskyld- an flutti og var þar öll sumur fram á fullorðinsár, réri með afa sínum og hjálpaði til við búskapinn sem þar var stund- aður meðfram útgerðinni. Síðar stofnaði Konráð í sam- vinnu við föður sinn og mág, Steingrím Sigurðsson, nýja út- gerð í Hrísey, gerði m.a. út bátinn Þorstein Valdimarsson, sem hét eftir móðurafa Kon- ráðs, en sá var á sínum tíma hreppstjóri í eynni, oft kallað- ur Kóngurinn. Þetta var 55 tonna eikarbátur. Afi hans og föðurbræður sem komu inn í útgerðina stækkuðu líka við sig uppi á fastalandinu, létu smíða nýja Sólrúnu hjá Skipa- smíðastöð KEA árið 1975, sem síðar fékk nafnið Nausta- vík EA 251. Nú ber báturinn nafnið Bjössi Sör og er gerð- ur út í hvalaskoðun á Húsa- vík. Þetta er einn af síðustu bátunum sem smíðaðir voru hér á landi. „Ég réri mörg sumur og einnig vetrarvertíð- ar á þessum bát, var m.a. með frændum mínum á hrefnuveiðum mörg sumur á Naustavíkinni.“ Konráð Alfreðsson formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar Óskastaða fyrir útgerðina að hafa sjómenn samningslausa Æ G I S V I Ð T A L I Ð Konráð Alfreðsson hefur staðið í brúnni hjá Sjómannafélagi Eyjafjarðar í nær aldarfjórðung, verið for- maður félagsins frá því í apríl árið 1989. Hann hefur einnig verið varaformaður Sjómannasambands Íslands undanfarin ár. Fjölmörg mál brenna á sjómannastéttinni um þessar mundir, þeirra stærst er staðan í kjarasamningum sjómanna við viðsemjendur sína, en sjómenn hafa verið samningslausir í tvö og hálft ár. Útvegsmenn og Samtök atvinnulífsins vísuðu kjaraviðræðum til ríkissáttasemjara fyrir um einu ári, í maí í fyrra og þar er deilan enn án þess að nokkuð miði í samkomulagsátt. „Þetta er afskaplega sérkennileg staða, en virðist henta útgerðinni vel,“ segir Konráð. „Útgerðin gerir afskaplega óbilgjarnar kröfur til sjó- manna. Þeir krefjast þess að kostnaðarhlutdeildin hækki, hún er nú um 30% en verði þeim að óskum sínum mun hún hækka verulega og verða nálægt 45%. Sem að mínu mati er algjörlega óásættanlegt.“

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.