Ægir - 01.06.2013, Side 18
18
Nýr hvalaskoðunarbátur, Am-
bassador, kom til heimahafn-
ar á Akureyri fyrir skömmu en
hann verður gerður út í hvala-
skoðunarferðir á Eyjafirði í
sumar og siglir frá Torfunefs-
bryggju. Báturinn er í eigu
samnefnds fyrirtækis, en að
því standa nokkrir einstak-
lingar og er Bjarni Bjarnason
hinn kunni skipstjóri Súlunnar
stjórnarformaður í félaginu.
Framkvæmdastjórn félagsins
er í höndum Magnúsar Guð-
jónssonar og Vignis Sigur-
sveinssonar sem jafnframt eru
skipstjórar á bátnum.
Magnús segir að ferða-
langar geti víða farið í hvala-
skoðunarferðir á norðan-
verðu landinu. Í Eyjafirði er
slík þjónusta í boði m.a. á
Hauganesi, Dalvík og Ólafs-
firði, „en þjónustu af þessu
tagi hefur alveg vantað í höf-
uðstað Norðurlands, Akureyri
og við hyggjumst bæta úr
því,“ segir hann. „Þetta er
nýjung í ferðaþjónustu í bæn-
um og erum þess fullviss að
henni verður vel tekið.“
Fyrrverandi lögreglubátur og
einkaskemmtiferðaskip
Ambassador er glæsilegur
bátur, 28,5 metra langur og
gengur á 22 hnútum. Hann
tekur um 100 manns í ferð.
„Báturinn var á sínum tíma
smíðaður í Þýskalandi og var
lengi gerður út þar í landi
sem lögreglubátur. Síðar
komast kann í einkaeigu, var
lystilega gerður upp árið
1998 sem einkaskemmtiferða-
skip en var afskaplega lítið
notaður. Við hlökkum til að
bjóða upp á siglingar um
Eyjafjörð á þessu glæsilega
skipi,“ segir Magnús.
Magnús segir að rekstur
bátsins skapi á milli 10 til 15
heilsársstörf þannig að um
kærkomna viðbót við at-
vinnulíf bæjarins sé að ræða
auk þess sem reksturinn
muni auka enn á fjölbreytni í
þeirri afþreyingu sem ferða-
fólki standi til boða í bænum.
Mikill fjöldi ferðamanna sækir
Akureyri heim á hverju sumri
og er gert ráð fyrir að allt að
200 þúsund erlendir gestir
muni spóka sig á götum bæj-
arins á sumarmánuðunum.
Miðnætursiglingar
Ambassador leggst að Torf-
unefsbryggju, fast við miðbæ
Akureyrar og er því fyrir aug-
Enn fleiri
gera út á
hvala-
skoðun
H V A L A S K O Ð U N
Fyrrum lögreglubáturinn Ambassador siglir nú með ferðamenn
um Eyjafjörð þar sem hvalir gleðja augu þeirra.