Ægir - 01.06.2013, Síða 21
21
Aukin ferskfiskframleiðsla
Framleiðsla ferskra afurða
hefur aukist talsvert hjá
Odda. Samgöngur við Pat-
reksfjörð hjóta að vera viss
hemill á það hversu mikið er
hægt að framleiða og koma
því örugglega á markað. Afar
slakt vegakerfi allt suður í
Dali tengir Patreksfjörð við
höfuðborgarsvæðið. Hafið þið
fundið einhver lausn á þess-
um vanda?
„Ferskfiskframleiðslan er
að nálgast 70% af heildar-
framleiðslunni hjá okkur og
það kallar á að við sendum
daglega frá okkur fisk. Fram-
tíðin liggur í ferskum fiski.
Það hefur gengið ágætlega að
koma afurðunum á markað
þrátt fyrir að við séum í afar
afar slæmu vegasambandi.
Breiðafjarðarferjan Baldur
siglir daglega svo við náum
að senda fisk til Keflavíkur-
flugvallar en hluti ferskfisk-
framleiðslunnar fer raunar í
skip í Reykjavíkurhöfn. En
samkeppnisstaða okkar er
verri þar sem við höfum að-
eins eina ferð á dag. Okkar
lán er að báturinn hefur
gengið nánast alla daga í vet-
ur en gallinn er sá að við
þurfum að binda okkur við
þann tíma sem báturinn er á
Brjánslæk. Við notum bátinn
líka yfir sumartímann, ekki
síður til að fá hráefni til okk-
ar til vinnslu sem við kaupum
annars staðar frá.
Innan við 10% af því hrá-
efni sem fáum til vinnslu er
aðkeypt, enda er nánast úti-
lokað að fá fisk að vegna
kostnaðar. Við kaupum því
ekki hráefni á mörkuðum
nema við séum tilneyddir af
einhverjum ástæðum, t.d. til
að standa við sölusamninga.“
Um 80% hráefnis af eigin
skipum
Oddi hf. vinnur úr rúmlega
3600 tonnum af hráefni á árs-
grundvelli sem skiptist í um
2300 tonn af þorski, 500 tonn
af steinbít og 700 tonn af ýsu.
Rúmlega 80% af því hráefni
sem Oddi hf. vinnur úr kem-
ur frá eigin skipum, Núpi BA-
69 og Brimnesi BA- 800 sem
er línubátur og er að landa
milli 600 og 800 tonnum á
ári. Svo er Oddi í beinum
viðskiptum við tvo báta, ann-
ars vegar Vestra BA-63, sem
er 250 tonna bátur. Hann er
er oft á snurvoð og er mikil-
vægur hlekkur í hráefnisöflun
Odda hf. og má gera ráð fyrir
að hann leggi upp allt að
1.500 tonnum á ári. Einnig á
Oddi hlut í 15 tonna plastbát
sem leggur upp sínum afla
hjá fyrirtækinu en þar að auki
kaupir Oddi talsvert af fiski af
útgerðum á Patreksfirði.
Er mikið um smábátaút-
gerð á Patreksfirði, eru marg-
ir á sjó vegna strandveið-
anna?
„Það eru nokkrir bátar á
strandveiðum,“ segir Sigurð-
ur. „Við höfum verið að
kaupa þann afla á markaði
eða í beinum viðskiptum við
þá. Þeir eru ekki sjálfir að
verka aflann, það er engin
fiskverkun hér á Patreksfirði
nema Oddi, ef undanskilin er
lítilsháttar harðfiskverkun.
Á Patreksfirði er slátrað
Sigurður Viggósson, framkvæmdastjóri Odda.
F I S K V I N N S L A
„Við vorum stærstir á landinu í steinbítsframleiðslu en ekki síðstu tvö til þrjú
árin. Áður vorum við að taka yfir 1.000 tonn af steinbít til vinnslu á ári en
ástæða þess að úr þessari framleiðslu hefur dregið er að kvótinn hefur minnkað
umtalsvert og eins er markaðurinn ekki eins spennandi og hann var hér fyrr á
árum. Aurðaverðið hefur lækkað umtalsvert.“