Ægir - 01.06.2013, Qupperneq 23
23
F I S K V I N N S L A
„Við erum kannski ekki að
byrja á besta tímanum, en
höfum bjartsýnina engu að
síður að leiðarljósi og teljum
að þetta muni ganga,“ segir
Guðmundur Garðarsson einn
eigenda nýrrar fiskvinnslu í
Ólafsfirði, en hún heitir Knoll-
ur ehf. Félagar hans í rekstr-
inum eru þeir Árni Helgason
og Óli Hjálmar Ingólfsson.
Knollur er til húsa við
Múlaveg 7 í Ólafsfirði, rúm-
lega 700 fermetra húsnæði
sem félagið keypti undir
reksturinn. Efri hæð hússins
leiga þeir út og þar fer einnig
fram vinnsla á matvælum.
Húsið var áður í eigu fjöl-
skyldu Guðmundar en hún
rak um langt árabil fyrirtækið
Garðar Guðmundsson hf.
Guðmundur þekkir vel til í
sjávarútvegi, var lengi skip-
stjóri á móti mági sínum á
bátnum Guðmundi Ólafi ÓF
91 sem fjölskylda hans gerði
út frá Ólafsfirði. Árni Helga-
son hefur lengi starfað sem
verktaki en Óli Hjálmar starf-
aði áður hjá Ólafsfjarðarbæ,
m.a. sem umsjónarmaður
skíðasvæðis og knattspyrnu-
valla bæjarins.
Saman í búskap
Leiðir félaganna þriggja sem
nú hafa stofnað nýtt sjávarút-
vegsfyrirtæki í Ólafsfirði liggja
þó saman í gegnum landbún-
að. Þeir eiga í sameiningu
ásamt fleirum um 50 kindur
og eru með fjárhús á Kleifun-
um. „Við höfum lengi verið
saman í tómstundabúskap og
haft gaman af. Eitt leiddi svo
af öðru og við ákváðum að
reyna fyrir okkur með þessa
fiskvinnslu og ég hef fulla trú
á að hún muni ganga ágæt-
lega,“ segir Guðmundur.
Hjá Knolli er flakaður fisk-
ur, einkum þorskur og ýsa og
eru afurðir seldar ferskar á
markaði í Frakklandi. Varan
er send frá Ólafsfirði til Seyð-
isfjarðar þar sem hún er flutt
með Norrænu til Danmerkur
og ekið þaðan á markað í
Frakklandi. „Fiskurinn er
kominn á markað á mánu-
dagsmorgni, flutningurinn
hefur bara gengið vel,“ segir
Guðmundur.
Nægt hráefni til vinnslunnar
Árni á hlut í bát, sá heitir
Skjöldur og rær frá Ólafsfirði
og landar hann hráefni til
vinnslu hjá Knolli. Þá segir
Guðmundur að félagið eigi
einnig í viðskiptum við
nokkra strandveiðibáta.
Skjöldur er á línu en afla-
brögð hafa ekki verið alltof
góð undanfarið segir Guð-
mundur, en telur að úr muni
rætast. Strandveiðibátarnir
hafa komið að landi með há-
marks dagsafla, 650 kíló eftir
daginn og er það góð viðbót.
„Við höfum hingað til ekki
haft nægt hráefni til vinnsl-
unnar til að halda fullum
dampi sem var í sjálfu sér
ágætt meðan við erum að
komast inn í hlutina, en það
mun lagast með tilkomu
strandveiðibátanna,“ segir
hann.
Flökin eru skorin í bita,
hnakkastykki, millibita, styrtlu
og þunnildi. Guðmundur seg-
ir að vel gangi að selja afurðir
á markaði ytra, en vissulega
mætti verðið vera hærra.
„Fiskverð er mjög lágt um
þessar mundir, en sagan sýnir
að það potast alltaf aðeins
upp þegar líður á sumarið.
Við vonum að sú verði einnig
raunin nú,“ segir hann. Fisk-
urinn hefur hlotið afbragðs-
dóma hjá kaupendum og allt
selst sem sent er á markað.
Verðið mun hækka
Guðmundur segir að fiskur-
inn sé allur nýttur, engu hent.
Þunnildi eru send til Ektafisks
á Hauganesi, hausar, afskurð-
ur og dálkar til fyrirtækins
Norlandia í Ólafsfirði sem er
fiskþurrkun, lifrin fer á Akra-
nes og slóg er sent á Sauðár-
krók þar sem það nýtist í
dýrafóður.
Starfsemi fyrirtækisins
hófst í febrúar síðastliðnum
og segir Guðmundur að
vissulega hefji þeir félagar
reksturinn á erfiðum tímum
þegar fiskverð er í lágmarki.
„En það þýðir ekki annað
en vera bjartsýnn, við eigum
ekki von á öðru en verð fari
hækkandi þegar fram líða
stundir. Varan líkar ljómandi
vel og við erum ánægðir með
það. Það blæs okkur bara
baráttuanda í brjóst að byrja
þegar á móti blæs,“ segir
Guðmundur.
Knollur, nýtt sjávarútvegsfyrirtæki í Ólafsfirði
Flök seld á markað í Frakklandi
Bjartsýnir eigendur fiskvinnslunnar Knolls í Ólafsfirði í vinnslusalnum. Frá vinstri: Árni Helgason, Guðmundur Garðarsson og Óli Hjálmar Ingólfsson.