Ægir - 01.06.2013, Blaðsíða 28
28
H A F N I R
Steinþór Pétursson, fram-
kvæmdastjóri Fjarðabyggðar-
hafna, segir stöðu haf-
narsjóðs sterka og stefnt er á
talsverðar framkvæmdir á
næstu árum. Undir Fjarðabyg-
gðarhafnir falla einar sjö haf-
nir á Austurlandi.
Steinþór segir mikið um
að vera og verkefnin vítt og
breitt á höfnum Fjardabyggd-
ar. Undanfarin ár hefur verið
gert mikið átak í tengslum
við endurnýjun á bryggjum í
smábátahöfnunum á Norð-
firði, Eskifirði, Reyðarfirði,
Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði.
Skipt hefur verið út lúnum
timburflotbryggjum fyrir
steyptar einingar en verkinu
er ekki alveg lokið á Norð-
firði. Þar er einnig að hefjast
stórt verkefni við stækkun
Norðfjarðarhafnar.
„Þetta er verkefni sem að
meginhluta til klárast haustið
2014. Um er að ræða tilfærslu
á varnargörðum og stækkun
athafnarýmis innan hafnarinn-
ar og gerð nýrrar smábáta-
hafnar sem var áður inni á
hafnarsvæðinu,“ segir Stein-
þór. Kostnaðaráætlunin verks-
ins losar um 500 milljónir
króna.
„Við höfum dálítið haldið
aftur af okkur síðastliðin ár.
Við gerum því ráð fyrir því
að fjármagna þessa fram-
kvæmd á þremur árum með
rekstrartekjum og án þess að
fara út í lántökur.“
Álvershöfnin helmingur af
rekstrartekjunum
Fjarðabyggðarhafnir eru
með stærri hafnarsjóðum
landsins og rekstrartekjurnar
hafa verið á bilinu 700-800
milljónir króna á ári. Þar
skiptir að sjálfsögðu miklu
rekstur álvershafnarinnar á
Reyðarfirði. Á síðasta ári voru
tekjurnar um 760 milljónir
króna.
„Það fara samtals í gegn-
um hafnirnar upp undir 25%
af heildarkvóta landsmanna í
tonnum talið. Þar munar að
sjálfsögðu mikið um uppsjáv-
arfiskinn. Álvershöfnin veltir
miklu í vörugjöldum og
margar skipakomur eru í
tengslum við álverið.“
Gróft áætlað skilar höfnin
á Reyðarfirði um helmingi af
öllum rekstrartekjum Fjarða-
byggðarhafna. Steinþór segir
að þótt höfnin skili miklum
tekjum sé allt mjög stórt í
sniðum þegar kemur að við-
haldsframkvæmdum þar.
Þannig nam kostnaður við
endurnýjun á malbiki gáma-
svæðis upp undir 50 milljón-
um króna á síðasta ári.
„Það er mikið álag á svæð-
inu þarna vegna þungaum-
ferðar þannig að rekstrar-
kostnaðurinn er mikill,“ segir
Steinþór.
Fjarðabyggðarhafnir hófu
að markaðssetja sig gagnvart
skemmtiferðaskipum árið
2008 og árangurinn er að
koma í ljós um þessar mund-
ir.
„Við fáum tvö skip núna í
sumar til Eskifjarðar en á
næsta ári eru skráð átta skip.
Þetta fer því hægt en örugg-
lega af stað.“
www.isfell.is
Handfæravörur
Ísfell býður fjölbreytt úrval gæðavöru fyrir handfæraveiðarnar:
Demparar, girni, gúmmí, nælur með sigurnagla, krókar,
sigurnaglar, sökkur og statíf
Starfsstöðvar Ísfells og Ísnets:
• Ísnet Þorlákshöfn - Óseyrarbraut 28
• Ísnet Vestmannaeyjar - Flötum 19
• Ísnet Húsavík - Barðahúsi
• Ísnet Akureyri - Oddeyrartangi
• Ísnet Sauðárkrókur - Lágeyri 1
• Ísfell / Ísnet Hafnarfjörður -
Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is
Fjórðungi heildaraflans
landað í Fjarðabyggð
Steinþór Pétursson, framkvæmdastjóri segir Fjarðabyggðarhafnir eina af fáum
sjálfbærum höfnum sem njóti ekki ríkisframlaga og stendur hún sjálf undir endur-
bótum og nýbyggingum með rekstrartekjum sínum.
Miklar framkvæmdir eru hafnar við Norðfjarðarhöfn sem kosta munu um hálfan
milljarð króna. Þeim lýkur á næsta ári. Mynd: Guðlaugur B. Birgisson