Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.2013, Blaðsíða 6

Ægir - 01.07.2013, Blaðsíða 6
6 R I T S T J Ó R N A R P I S T I L L Færeyingar og hjálparhöndin Árið 2008 bræddi íslenska hagkerfið svo hraustlega úr sér að allur heimurinn man það enn. Hverjir buðu fyrstir allra fram aðstoð sína? Jú, litla eyþjóðin, 50 þúsund manna fiskveiðisam- félagið, snaraði rúmum 6 milljörðum á borðið, ígildi þess að Íslendingar réttu þeim 35 milljarða við svipað tækifæri - miðað við höfðatölur. Minni mitt er kannski ekki það besta norðan Alpafjalla, en ég man ekki betur en að Færeyingar færu svo gott sem á haus- inn fyrir u.þ.b. aldarfjórðungi. Þjóðarframleiðslan dróst saman um þriðjung og fólksflótti brast á sem enn markar færeyskt samfélag. Réttum við frændum okkar hliðstæða hjálparhönd? Það held ég ekki og stundum man ég óþægilega hluti betur en þægilega: einhverjum fannst viðeigandi á þessu tímabili að leggja til að taka af þeim þær litlu veiðiheimildir sem Færeying- ar hafa innan íslensku lögsögunnar. Það var í eitt af þessum skiptum sem ég hef skammast mín fyrir að vera Íslendingur. Arthúr Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda, í grein á heimasíðu sambandsins. Kjarasamningar eru meinsemdin Íslenskir kjarasamningar stöðva alla alla sókn íslenskra fiski- skipa í lögsögu annarra ríkja. Allar þjóðir sem stunda veiðar utan eigin landhelgi verða að kaupa veiðileyfi af viðkomandi strandþjóð. Íslenskir kjarasamningar gera ekki ráð fyrir þessu. Þess vegna eru engin íslensk skip að veiða í lögsögu annarra ríkja með því að leigja þar heimildir. Því er kannski kominn sá tími að Samtök atvinnulífsins og stéttarfélögin setjist niður til að komast að niðurstöðu um það hvort eitthvert vit er í því að veiða í lögsögu annarra þjóða eða ekki. Þá verður að gera sér kjarasamninga um þær veiðar. Það þýðir ekki að sjómenn eigi að taka þátt í kvótakaupum. Það eiga þeir ekki að gera. Spurningin snýst að menn setjist niður og reikni út hvort það sé arðbært bæði fyrir útgerð og sjómenn að veiða á erlendum miðum. Guðmundur Kristjánsson, útgerðarmaður í Brimi hf. í viðtali við síðuna kvotinn.is U M M Æ L I Áramót eru jafnan tími til að líta um öx og horfa fram á veg. Nýlið- in mánaðamót marka jafnframt áramót í fiskveiðum - nýtt kvóta- ár er hafið með nýjum úthlutunum aflaheimilda. Margar útgerðir hafa líkast til verið orðnar aðþrengdar í heimildum en athyglis- vert er að á þeim tíma þegar þrengdi hvað mest að í aflaheimild- um tókst furðuvel að halda uppi atvinnustigi í byggðarlögunum. Það sýnir kannski öðru fremur hvernig sjávarútvegurinn og hugs- un í greininni hefur breyst frá því sem áður var. Stýring á veiðum er nákvæmari en áður var og beintengdari eftirspurn á mörkuð- um. Áður fyrr var kapphlaupið alls ráðandi og magnhugsunin ríkjandi. Þá birtust myndir af risaköstum togara og uppsveifla mældist í hugtakinu aflahrota. Nú vilja menn ekki sjá risaköst heldur þvert á móti forðast allt slíkt. Magnhugsunin hefur vikið fyrir verðmætahugsuninni. Og það er vel. Það að gera sem allra mest úr því sem hafið gefur er um leið hugsun sem gengur út á að ganga sem allra best um auðlindina. Aldrei er of oft minnt á að útgerðarmenn og sjómenn eru náttúruverndarsinnar í raun - þó oft sé öðru haldið fram. Sjávarútveginum og þjóðinni allri er mikið fagnaðarefni að nú aukast aflaheimildir í þorski. Með því fæst milljarða innspýtingin í efnahagslífið og veitir ekki af. Ísland hefði aldrei komist í gegnum þrengingar að undanförnu nema hafa sem bakhjarl sjávarútveg í þeim rekstri sem raun ber vitni. Og greinin mun verða hryggjar- stykki í því að efnahagslífið komist á styrkari stoðir á nýjan leik, fái hún að þróast á eðlilegan hátt. Sagan segir okkur að áhrifa aukins afla gætir hratt - alveg á sama hátt og snöggar niðursveifl- ur í fiskafla hafa ruggað þjóðarskútunni hressilega. Breytingin á síðari árum er hins vegar fólgin í fleiri stoðum innan sjávarút- vegsins, þegar dregist hefur saman í þorskveiðum hefur uppsjáv- arveiðin eflst og öfugt. Þetta hefur hins vegar ekki gerst af sjálfu sér - allt byggist þetta á því að fólk innan greinarinnar hefur séð tækifæri, verið opið fyrir nýrri tækni, framleitt hágæðaafurðir og aldrei látið staðar númið í því að gera betur í dag en í gær. Þann- ig verður framþróun. Íslendingar hafa farið þá leið að byggja almennt á vísindaleg- um rannsóknum á fiskistofnum, taka ekki verulega áhættu þegar vísindalegar rannsóknir hafa hringt viðvörunarbjöllum. Um útfærslu verða menn örugglega aldrei sammála en í þeirri stöðu sem þorskstofninn er nú verður ekki dregin önnur ályktun en það hafi skilað árangri að draga úr veiðum í þeim tilgangi að byggja stofninn upp. Með sífellt betri veiðitækni og skipum er auðveld- lega hægt að ganga svo nærri fiskistofnum að þeir eigi sér ekki viðreisnar von nema á löngum tíma. Kollsteypur af því tagi vill lík- ast til enginn þó allir óski sér þess að geta veitt meira og selt meira. Íslendingar hafa hamrað á nauðsyn þess að vísindin komi meira inn í deilurnar um makrílinn. Að Evrópusambandið viður- kenni nauðsyn þess að fá skýrari mynd af makrílstofninum í norðurhöfum og göngum hans. Nýbirtar niðurstöður fiskifræð- inga frá Íslandi, Færeyjum og Noregi styðja þessa skoðun fremur en hitt. Vísitala makríls hefur aldrei mælst hærri á norðurhafs- svæðinu og þess vegna er óþolandi að sitja undir ásökunum um rányrkjuveiðar Íslendinga á þessari fisktegund sem sannanlega gengur mun meira inn í lögsöguna en áður. Mælingin sýnir 17% stofnsins í lögsögunni og því skyldu Íslendingar ekki eiga fullan rétt á til að nýta hann eins og aðrir? Jóhann Ólafur Halldórsson ritstjóri skrifar Í upphafi nýs kvótaárs
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.