Ægir - 01.07.2013, Blaðsíða 9
9
Ö R Y G G I S M Á L
það falli vel að starfsemi fyr-
irtækisins, þar sem öryggis-
mál séu í forgangi. Hamar
ehf. vinnur mikið fyrir sjávar-
útveginn. Fyrirtækið er sér-
hæft þekkingarfyrirtæki í
málmiðnaði og véltækni.
Meginstarfsemin er þjónusta
við sjávarútveg og stóriðju.
Hamar er með starfsemi á
fimm stöðum á Íslandi og er
þar með með langstærsta
þjónustunet sambærilegra fyr-
irtækja á Íslandi. Öflug tækni-
deild Hamars sá um hönnun
og útreikninga fyrir smíði
Kristjánsbúrsins.
„Hönnun Kristjánsbúrsins
gengur út á einfaldleika til að
draga úr hættu á bilunum.
Við erum nú að ljúka við
hönnun á öðru búri sem ætl-
að er fyrir frystivörur. Það
búr er einnig unnið í sam-
starfi við Samherja enda
leggja þeir sig fram við að
tryggja öryggi og velferð
sinna manna,“ segir Kári.
Byltingarkennd aðferðafræði
Starfsmenn Promens á Dalvík
fylgdust með smíði og próf-
unum Kristjánsbúrsins. Daði
Valdimarsson, framkvæmda-
stjóri Promens Dalvík ehf.,
segir Kristjánsbúrið byltingar-
kennda aðferðafræði við
meðhöndlun á fiskikerjum.
„Sæplastkerin frá Promens
eru þekkt fyrir endingu, styrk
og öryggi. Undanfarin ár höf-
um við unnið markvisst að
því að endurbæta kerin til að
auka öryggi í meðhöndlun
þeirra. Samstarfið við Hamar
er enn einn áfanginn á þeirri
vegferð og kemur til með að
efla framleiðslu Promens,“
segir Daði. Hann segir búrið
þegar hafa verið tekið í notk-
un hjá nokkrum viðskiptavin-
um. Fyrstu viðbrögð séu
mjög jákvæð og það hefur
spurst út. „Það bíða því marg-
ir spennir eftir að prófa bún-
aðinn.“
Kristján Guðmundsson, sá er búrið er nefnt eftir, flutti áhrifaríka ræðu þegar búrið
var sýnt almenningi á Fiskideginum mikla. Hann slasaðist alvarlega þegar hann
varð undir kerjastæðu í löndun á Dalvík fyrir tveimur árum. Það slys varð kveikjan
að þróun þessa nýja verkfæris við löndun úr skipum sem líkast til á eftir að verða
í almennri notkun bæði hérlendis og erlendis innan tíðar.