Ægir - 01.07.2013, Page 19
19
F R É T T I R
„Afkomutölur Samherja og er-
lendra dótturfélaga fyrir árið
2012 eru góðar og betri en ég
gerði mér vonir um,“ segir
Þorsteinn Már Baldvinsson,
forstjóri Samherja um nýbirta
afkomu félagsins í fyrra. Fé-
lagið skilaði tæplega 16 millj-
örðum króna í hagnað en velta
síðasta ár nam tæpum 90
milljörðum króna. Innan Sam-
herjasamstæðunnar starfa fé-
lög í 11 löndum en árið 2012
var það fjórða í röð sem allar
einingar skila rekstrarhagn-
aði. Rúmlega 55% af starf-
seminni eru erlendis.
Góður afli í Barentshafi
„Veiðar hjá erlendum dóttur-
félögum okkar í Barentshafi
gengu frábærlega. Það var
djörf ákvörðun hjá okkur að
flytja fiskvinnslu Icefresh
GmbH frá Cuxhaven til
Frankfurt sem var opnuð í
maí 2012. Á síðustu 12 mán-
uðum hefur hún tekið til
vinnslu og sölu um 14.000
tonn af fiski. Veltan á þessu
tímabili nemur um 9 milljörð-
um króna en af þessu magni
komu einungis um 120 tonn
frá Samherja á Íslandi. Við
hófum líka rekstur í Namibíu
í byrjun árs 2012 í samstarfi
við heimamenn og gengur
það verkefni ágætlega. Rekst-
ur okkar í Kanada hefur
gengið prýðilega en skip
okkar þar veiddi rúm 8 þús-
und tonn af rækju á síðasta
ári.“
Eignir Samherjasamstæð-
unnar námu í árslok 2012 um
123 milljörðum króna en
heildarskuldir á sama tíma
tæpum 69 milljörðum. Bók-
fært eigið fé var 54,4 milljarð-
ar og eiginfjárhlutfall rösk
44%. Starfsmenn á Íslandi eru
um 700 en árið 2012 var
fyrsta heila árið eftir kaup
Samherja á Útgerðarfélagi Ak-
ureyringa.
Stýrt framhjá skerjum á
mörkuðum
„Við erum ánægð með hvern-
ig sá rekstur hefur gengið.
Veiðar allra tegunda á Íslandi
gengu einnig vel og þrátt fyr-
ir mikla og aukna framleiðslu
hefur okkur tekist að fylgja
þessum vexti eftir í markaðs-
starfinu sem verður sífellt
viðameira í rekstrinum. Þegar
leið á árið í fyrra voru sker
framundan á mörkuðum okk-
ar fyrir sjávarafurðir. Með
samvinnu, útfærslu góðra
hugmynda og mikilli vinnu
starfsfólks tókst að stýra
rekstrinum framhjá þessum
hindrunum.
Ég hef sagt það áður og
segi það enn að sjávarút-
vegur er alþjóðleg atvinnu-
grein og velgengni þar bygg-
ist að stórum hluta á þekk-
ingu starfsfólksins, hvort
heldur er í veiðum, vinnslu
eða markaðssetningu. Árang-
ur okkar er enn markverðari
þegar haft er í huga að á
sama tíma hafa harkalegar og
tilefnislausar aðgerðir Seðla-
banka Íslands gert starfsfólki
og samstarfsaðilum um allan
heim erfitt um vik. Nú sem
fyrr hefur komið í ljós að
þegar einvalalið leggst saman
á árarnar er hægt að ná af-
bragðsárangri,“ segir Þor-
steinn Már Baldvinsson, for-
stjóri Samherja.
Samherji hf. skilaði 16 milljarða hagnaði á síðasta ári:
„Betri afkoma en ég
gerði mér vonir um“
- segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri
Línuskipið Anna er nýjasta fjárfesting Samherja. Skipið var keypt frá Noregi og mun senn hefja veiðar fyrir vinnslu fyrirtækisins á Dalvík.