Ægir

Årgang

Ægir - 01.07.2013, Side 24

Ægir - 01.07.2013, Side 24
24 T Æ K N I Traust geymsla – og öruggur flutningur alla leið! Frystigámar til sölu eða leigu Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | Sími 568 0100 AT H YG LI E H F. -0 2- 13 Eigum á lager 20 og 40 ft. frystigáma. Bjóðum einnig gámahús, geymslugáma og salernishús í ýmsum stærðum og gerðum. Fjöldi sérlausna í boði, sniðnar að þörfum hvers og eins. www.stolpiehf.is Hafðu samband! „Wise er söluaðili Microsoft Dynamics NAV á Íslandi og er í fararbroddi í upplýsinga- tækni með sérstaka áherslu á bókhald, ráðgjöf, hugbúnað- argerð og innleiðingar ásamt öflugri og persónulegri þjón- ustu. Ein af þekktari vörulín- um fyrirtækisins er WiseFish, lausnir fyrir sjávarútveginn, en fyrirtækið þjónustar nú fjölda sjávarútvegsfyrirtækja innanlands sem utan. Mikil sókn er á erlendum mörkuð- um og má þá helst nefna Nýja Sjáland. WiseFish spannar alla virðiskeðju sjávarútvegs- ins frá fiskeldi og veiðum til sölu og dreifingar,“ segir Stefán Torfi Höskuldsson, þróunarstjóri NET lausna og vörustjóri Wise Peripherals. Betri yfirsýn og rekjanleiki í rauntíma Wise Peripherals er viðbót við WiseFish hugbúnaðinn og hefur verið í þróun um nokkurra ára skeið. Lausnin segir Stefán Torfi að sé full- komlega samþætt viðskipta- hugbúnaðinum Dynamics NAV, ásamt ýmsum jaðar- tækjum s.s. vogum, skönn- um, strikamerkjaprenturum o.fl. „Wise Peripherals gerir fyr- irtækjum kleift að skipuleggja gagnasöfnunarferlið með strikamerkingu og beinum samskiptum við jaðartæki og kemur í veg fyrir handvirkan innslátt og innsláttarvillur. Nákvæm birgðastjórnun er á öllum stigum ferlisins sem veitir góða yfirsýn yfir birgðir til sölu og dreifingar og til gerðar framleiðsluáætlunar. Með samþættingu við Dynamics NAV er kostur á að fá rauntímagögn í skýrslum beint úr viðskiptakerfinu og fullan rekjanleika alla leið,“ segir Stefán Torfi. Kostina við kerfið segir Stefán Torfi marga. Í fyrsta lagi sé Wise Peripherals sveigjanleg lausn sem geti tengst vélbúnaði frá mörgum birgjum. Notendur eru því ekki bundnir við ákveðna birgja heldur geta valið þá eftir sínum þörf- um. Í öðru lagi sé fullkominn rekjanleiki niður á framleiðsludag, veiðiferð eða kassa, allt til enda söluferlis. Með sam- þættingu við við- skiptahug- búnað fyrir- tækisins og tengingum við jaðartæki sé einnig hægt að nálgast allar upplýsingarnar á einum stað. Með því sparist tími við innslátt og leit að gögnum auk þess sem hættan á innsláttarvillum er úr sög- unni. Loks er hægt að tengj- ast þráðlausum handtölvum og skönnum ásamt staðlaðri virkni Wise Peripherals sem var sérstaklega hannað fyrir snertiskjái. Reynslumikið fyrirtæki undir nýju nafni Fyrirtækið Wise var áður þekkt undir merkinu Mari- tech en nafninu var nýlega breytt til að samræma betur markaðsstefnu félagsins við dótturfélag Wise í Kanada, WiseDynamics . Wise hefur áratuga reynslu á markaðnum og þjónar stórum og fjölbreyttum hópi viðskiptavina. Wise er einn öflugasti söluaðili á Microsoft Dynamics NAV viðskiptahug- búnaðinum á Íslandi og hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir starfsemi sína þ.á.m. að vera hluti af Forsetaklúbbi Microsoft, en þar eru saman komin 5% af bestu þjónustu- aðilum Microsoft í heiminum. Starfsmenn Wise lausna ehf. eru um 80 talsins. Ný lausn fyrir Wisefish hugbúnaðinn Stefán Torfi Höskuldsson, þróunarstjóri .NET lausna og vörustjóri hjá Wise.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.