Ægir - 01.09.2010, Qupperneq 16
16
„Icelandic Group er sérfræð-
ingur í sjávarfangi. Íslending-
ar kunna að veiða fisk, það er
okkur í blóð borið. Íslendingar
kunna líka að verka fisk en
gífurleg framþróun hefur orðið
á undanförnum árum við
vinnslu á sjávarfangi og óþarft
að nefna þar fyrirtæki á borð
við Marel sem er leiðandi á
heimsvísu í þessum geira.
Sérstaða Icelandic Group
felst aftur á móti í því að selja
íslenskar sjávarafurðir inn á
alþjóðlega markaði,“ segir
Finnbogi Baldvinsson, for-
stjóri Icelandic Group en það
fyrirtæki ber höfuð og herðar
yfir önnur hér á landi þegar
kemur að sölu á íslensku sjáv-
arfangi.
Það er til marks um um-
fang Icelandic að fyrirtækið
er nokkurs konar net sjálf-
stæðra framleiðslu- og mark-
aðsfyrirtækja sem starfa hvert
og eitt á sínum markaði í
Ameríku, Evrópu og Asíu.
Icelandic Group er eitt af tíu
stærstu sjávarútvegsfyrirtækj-
um heims samkvæmt Intra-
fish en tekjur fyrirtækisins
verða til á meginlandi Evrópu
(40%), Bretlandseyjum (28%),
í Norður-Ameríku (18%) og í
Asíu (14%).
Árið 2009 var besta rekstr-
arár félagsins og fyrstu sex
mánuðir þessa árs fylgdu
þeim árangri eftir. Árið 2009
nam hagnaður af reglulegri
starfsemi fyrir skatta um 3
milljörðum króna og á fyrri
hluta þessa árs nam hagnað-
ur fyrir skatta rúmlega 2 millj-
örðum króna, sem er aukning
um 135% á milli ára. Á fyrri
hluta þessa árs velti Icelandic
Group tæplega 80 milljörðum
króna, rekstrarhagnaður nam
4,1 milljarði króna, sem er
20% aukning milli ára. Þá var
arðsemi eiginfjár á fyrri hluta
þessa árs 11%, samanborið
við 4,3% á síðasta ári.
Fiskurinn sannar mikilvægi
sitt
Á heildsölumarkaði selur Ice-
landic til veitingahúsa, mötu-
neyta og annarra stofnana
undir eigin merki en á smá-
sölumarkaði hefur fyrirtækið
hins vegar einbeitt sér með
góðum árangri að framleiðslu
undir merkjum stærri smá-
sölukeðja á borð við Marks &
Spencers, Tesco, Carrefour
og Aldi.
Ingvar Eyfjörð, aðstoðar-
forstjóri Icelandic, segir
glögglega hafa komið á dag-
inn í kjölfar efnahagshrunsins
hversu mikilvægar fiskafurðir
okkar séu fyrir íslenska hag-
kerfið.
„Það er ekki langt síðan að
margir töldu að gamla Ísland
væri sokkið og fjármálamið-
stöðin Island væri tekin við. Í
dag er staðreyndin þó sú að
fiskurinn er aftur mikilvægasti
þátturinn í verðmætasköpun
þjóðarinnar. Íslenskar afurðir
eru samofnar ímynd landsins,
lambið, fiskurinn, smjörið og
Icelandic Group er eitt af 10 stærstu sjávarútvegsfyrirtækjum heims:
Að gera íslenskt sjávarfang að
upplifun neytandans!
Finnbogi Baldvinsson, forstjóri Icelandic Group.
F R É T T I RÚ T F L U T N I N g U R & m A R K A Ð S m á L
Í einni af fiskréttaverksmiðjum Icelandic Group.