Ægir - 01.09.2010, Side 30
30
Ú T F L U T N I N g U R & m A R K A Ð S m á L
Ice Fresh Seafood ehf. selur nærfellt 400 þúsund tonn af sjávarafurðum
á ári fyrir móðurfélagið, Samherja hf.:
Með frábæra vöru í höndum
en stjórnmálaumhverfið á
Íslandi skapar óróa
- segir Gústaf Baldvinsson, framkvæmdastjóri
„Samherji er öflugt fyrirtæki
og við getum gert mikið í
krafti stærðarinnar og þess
magns af fiskafurðum sem við
höfum yfir að ráða. Okkar
rekstur er mjög markaðsdrif-
inn og það þýðir að boðleið-
irnar frá okkur sem vinnum í
sölu- og markaðsmálunum til
þeirra sem eru að vinna á
hverjum degi í framleiðslunni
eru mjög stuttar. Þannig sitj-
um við hér í Hull í Bretlandi
en þurfum ekki nema eitt sím-
tal til framleiðslustjórans í
verksmiðjunni á Dalvík eða til
skipstjóranna á frystitogurum
Samherja úti á sjó til að stýra
framleiðslunni í takti við þau
tækifæri sem við sjáum á
markaðnum. Þetta fyrirkomu-
lag tel ég vera einn af stærstu
þáttunum í árangri Samherja í
markaðsmálum – boðleiðirnar
eru stuttar og sveigjanleikinn
mikill,” segir Gústaf Baldvins-
son, framkvæmdastjóri Ice
Fresh Seafood ehf., sölu- og
útflutningsfyrirtækis Sam-
herja hf.
Gústaf starfar í Hull í Bret-
landi, einni af stöðvum Ice
Fresh Seafood. Fyrirtækið
endurspeglar glögglega um-
fang Samherja hf. á sjávarút-
vegssviðinu. Það hefur um
300 viðskiptavini sem það
þjónustar árlega, á árinu 2009
nam heildarsalan um 390 þús-
und tonnum af fiskafurðum
og veltan var um 56 milljarðar
króna á því ári. Ice Fresh Sea-
food selur fisk til 45 þjóð-
landa og þannig má segja að
allur heimsmarkaðurinn sé
undir í daglegu starfi.
Hörð samkeppni við Norð-
menn á ferka markaðnum
Gústaf segir að á þessum
tíma ársins nái framleiðsla á
ferskum þorskhnökkum há-
marki í verksmiðju Samherja
á Dalvík en sú framleiðsla fer
á markaði í Bretlandi, Belgíu
og Frakklandi. Á þeim af-
urðamörkuðum er hörð sam-
keppni við Norðmenn. „Við
erum að slá öll fyrri met í
framleiðslu á þorskhnökkum
á Dalvík nú í haust og sú
vinnsla gengur frábærlega.
Þegar kemur fram yfir áramót
koma Norðmenn inn af full-
um þunga á þennan markað
og þá beinum við áherslu
okkar í aðrar áttir. Þetta er
lykilatriði í svona samkeppn-
Afurðir Samherja hf. og dótturfyrirtækja fer víða um heim undir merkinu Ice Fresh Seafood. Þátttaka í sýningum er liður í
kynningu þeirra.
Ferskar afurðir eru mikilvægasti þáttur í landvinnslu Samherja hf. en Gústaf segir
þá markaði ekki endalaust taka við. Þar af leiðandi sé ekki hægt að fullyrða um
að innan tiltekins árafjölda verði hægt að framleiða ákveðið hlutfall íslenska fisk-
aflans í ferkar afurðir. Eftirspurn markaðarins ráði alltaf mestu um þróunina.