Fréttablaðið - 27.06.2015, Blaðsíða 4
27. júní 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 4
1.00022.06.2015 ➜ 28.06.2015
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Stein-
grímsson hlynur@365.is, Hjalti Egilsson hjalti@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402:
Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson
jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason
hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
langan hval rak að landi
við Stakksey á Breiðafirði í
vikunni.
17 METRA
þurftu dæmdir
menn að bíða
eftir að hefja
afplánun í fyrra.
383
DAGA
fleiri kindur
hafa drepist
á þessu ári en
í fyrra– fjár-
dauðinn er
óútskýrður.
eintök af ljósmyndabók um
Druslugönguna fara ekki í umferð.
120%
af sterkum
fíkniefnum
fundust í
bakpoka í
gámi við
Sundahöfn.
3 KÍLÓ
hafa sótt um í
Lögregluskól-
anum fyrir kom-
andi skólaár –
sem er met.
160
63% landsmanna styðja ekki ríkisstjórnina,
samkvæmt
könnun
Fréttablaðsins.
SAMGÖNGUR Ein stærsta forsendan
fyrir því að stýrihópur um könnun
á flugvallarkostum á höfuðborgar-
svæðinu mælir með því að flug-
vallarskilyrði í Hvassahrauni verði
fullkönnuð næsta vetur er að hóp-
urinn telur það svæði hafa meiri
þróunarmöguleika en aðrir kostir
sem skoðaðir voru. Þetta kom fram
í máli Rögnu Árnadóttur, formanns
hópsins, í gær.
Samkvæmt upplýsingum Frétta-
blaðsins gæti þetta þýtt að milli-
landaflug verði flutt úr Keflavík
og í Hvassahraun. Millilandaflugið
yrði þá flutt nær höfuðborginni þótt
innanlandsflugið yrði fært úr henni.
Ólöf Nordal, ráðherra samgöngu-
mála, segir að sá möguleiki að hætta
við fyrirhugaða uppbyggingu flug-
vallarins í Keflavík hafi ekki verið
ræddur.
Skipulagsvaldið í Vatnsmýrinni
liggur hjá Reykjavíkurborg. Nýr
flugvöllur yrði aftur á móti varla
byggður án aðkomu ríkissjóðs. Til-
lögur nefndarinnar mælast mjög
misjafnlega fyrir á meðal alþing-
ismanna, en það eru þeir sem fara
með fjárveitingarvaldið.
„Mér finnst óskiljanlegt að þessi
tillaga hafi komið fram,“ segir
Ragnheiður Elín Árnadóttir, ráð-
herra ferðamála. Hún segir að
betur hefði farið á því að skoða
þann möguleika að hafa flugvöll-
inn í Reykjavík. „Fyrst verið er að
fara alla leið til Voga á Vatnsleysu-
strönd þá hefði mér þótt nefndin
geta skoðað þann möguleika að fara
með innan landsflugið til Keflavík-
ur. En ég tek sérstaklega fram að
ég er enginn sérstakur talsmaður
þess,“ segir Ragnheiður Elín. En
ef ákveðið yrði að innanlandsflug-
ið færi úr Vatnsmýrinni þá væri
Keflavík að hennar mati eini raun-
hæfi möguleikinn, vegna kostnaðar-
ins og þeirrar aðstöðu sem þegar er
í Keflavík.
Á Facebook-síðu sinni sagði
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis-
ráðherra að ekki kæmi til að ríkið
greiddi 22 milljarða kostnað fyrir
uppbyggingu nýs flugvallar.
Höskuldur Þórhallsson, formaður
umhverfis- og skipulagsnefndar
Alþingis, og Róbert Marshall, þing-
maður Bjartrar framtíðar, eru sam-
mála um að ekki náist pólitísk sam-
staða um það í þinginu að byggja
nýjan flugvöll í Hvassahrauni.
„Ég held að það verði aldrei
meirihluti fyrir því að byggja
nýjan flugvöll fyrir meira en 25
milljarða króna, ekki svo langt
frá öðrum alþjóðaflugvelli,“ segir
Höskuldur í samtali við Fréttablað-
ið. Það sé tímasóun að velta þess-
um möguleika fyrir sér.
„Ég er nú ekki bjartsýnn á að
það náist samstaða um þessa lend-
ingu flugvallarmálsins,“ segir
Róbert Marshall, fulltrúi Bjartr-
ar framtíðar í umhverfis- og sam-
göngunefnd Alþingis. Hann leggur
áherslu á að ákvörðunin um fram-
tíðarstaðsetningu flugvallarins
verði vönduð.
Katrín Jakobsdóttir, formaður
VG, segir of snemmt að spá um það
hvort einhver sátt geti náðst um
málið á Alþingi. „Mér finnst mikil-
vægt að við byggjum á þessari
vinnu, að sveitarfélögin, Alþingi
og ráðuneytin setjist yfir þetta og
geri tillögur að næstu skrefum.“
jonhakon@frettabladid.is
Nýr flugvöllur í Hvassahrauni
gæti tekið við millilandaflugi
Innanlandsflugvöllur í Hvassahrauni gæti síðar þróast og orðið að alþjóðaflugvelli. Þetta er ein ástæða þess að
Rögnunefndin mælir með Hvassahrauni. Ólíklegt er að samstaða náist um tillögu nefndarinnar á Alþingi.
SKÝRSLAN KYNNT Ragna Árnadóttir sagði á fundinum að Hvassahraun hefði meiri þróunarmöguleika en önnur svæði.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Fyrst verið er að fara
alla leið til Voga á Vatns-
leysuströnd þá hefði mér
þótt nefndin geta skoðað
þann möguleika að fara
með innanlandsflugið til
Keflavíkur.
Ragnheiður Elín Árnadóttir,
ráðherra ferðamála
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ði
r á
sk
ilj
a
sé
r r
ét
t t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
ve
rð
g
et
ur
b
re
ys
t á
n
fy
rir
va
ra
.
Krít
Frá kr. 87.900
m/morgunmat
Netverð á mann frá kr. 87.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í herbergi.
Netverð á mann frá kr. 99.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi.
Marina Sands
2. júlí í
11 nætur
47.750
Flugsæti frá kr.
BANDARÍKIN Hæstiréttur Bandaríkjanna kvað í
gær upp dóm um að samkynja hjónabönd stangist
ekki á við stjórnarskrá landsins. Með úrskurðin-
um verða öll ríki Bandaríkjanna skylduð til þess að
gefa saman fólk af sama kyni. Það er þó búist við að
einhver ríki muni andmæla niðurstöðum dómsins.
Fyrir dóminn voru hjónabönd samkynja para lögleg
í 37 af 50 ríkjum Bandaríkjanna.
„Þetta er ótrúlegur áfangi og sögulegur dagur,“
segir Hilmar Hildarson Magnúsarson, formaður
Samtakanna 78. „Þetta eru gríðarleg vatnaskil sem
hafa átt sér stað í Bandaríkjum á ekkert svo mörg-
um árum. Ég vonast til þess að þetta verði til þess
að efla hinsegin hreyfinguna í Bandaríkjunum og
hafi áhrif víðar,“ segir Hilmar.
Fjölmargir fögnuðu dómnum, meðal annars for-
seti Bandaríkjanna, Barack Obama, sem setti inn
færslu á Twitter og sagði niðurstöðuna vera stórt
skref í jafnréttisbaráttunni. - vh
Samkynhneigð pör mega ganga í hjónaband í öllum ríkjum Bandaríkjanna:
Stórt skref í jafnréttisbaráttunni
DÓMSMÁL „Ég harma niðurstöðu
héraðsdóms og tel ég varhuga-
vert ef opinberir starfsmenn
sem eru í for-
svari viðkvæmra
málaflokka, geti
tjáð sig með
ærumeiðandi
hætti gagnvart
almennum borg-
urum og sakað
þá um refsi-
verða háttsemi
í skjóli tjáning-
arfrelsis,“ segir Týr Þórarins-
son, betur þekktur sem Mummi
í Götusmiðjunni, um að Bragi
Guðbrandsson, forstjóri Barna-
verndarstofu, hafi verið sýknaður
í meiðyrðamáli sem Týr höfðaði á
hendur honum.
Niðurstöðu héraðsdóms verður
áfrýjað til Hæstaréttar að sögn
Týs. - ngy
Áfrýjar máli til Hæstaréttar:
Harmar niður-
stöðu dómsins
TÝR
ÞÓRARINSSON
STJÓRNMÁL Efnt verður til hátíð-
ardagskrár á Arnarhóli á sunnu-
daginn í tilefni af því að þrjátíu
og fimm ár eru liðin frá sögulegu
kjöri Vigdísar Finnbogadóttur í
embætti forseta
Íslands.
Að dagskránni
standa Stofn-
un Vigdísar
Finnbogadótt-
ur í erlendum
tungumálum og
Háskóli Íslands
í samvinnu við
ýmsa aðila sem
beita sér fyrir málefnum sem
Vigdísi eru hugleikin.
Fjöldi listamanna kemur fram,
en dagskránni er ætlað að höfða
til alls almennings, ekki síst ungs
fólks. - ngy
35 ár liðin frá forsetakjöri:
Halda hátíð til
heiðurs Vigdísi
VIGDÍS FINN-
BOGADÓTTIR
MIKIL GLEÐI Fjölmargir fögnuðu niðurstöðu hæstaréttar
Bandaríkjanna. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
2
B
-4
6
7
C
1
6
2
B
-4
5
4
0
1
6
2
B
-4
4
0
4
1
6
2
B
-4
2
C
8
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
1
0
4
s
_
2
6
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K