Fréttablaðið - 27.06.2015, Side 10
27. júní 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR |
SAMFÉLAG „Þessi uppþot og óeirðir
á svæðinu er eitthvað sem við sjáum
ekki. Það sem Þórunn hefur sagt á
við engin rök að styðjast,“ segja
Samúel Ingimarsson og Ástríður
Júlíusdóttir. Þau eru bæði starfs-
menn ABC á Íslandi og voru ráðin
tímabundið til starfa sem fulltrúar
á vettvangi í Kenía.
Fréttablaðið hefur greint frá ill-
vígum deilum ABC barnahjálpar
á Íslandi og ABC í Kenía. Þórunni
Helgadóttur var sagt upp störfum
en hún vill meina að staða henn-
ar í Kenía sé óbreytt, enda sé um
tvö aðskilin félög að ræða. ABC á
Íslandi bendir hins vegar á sam-
þykktir ABC í Kenía og að Þórunn
þiggi laun samkvæmt ráðningar-
samningi við ABC á Íslandi.
Þá sakar Þórunn samtökin á
Íslandi um mútur í Kenía og ólög-
mæta yfirtöku samtakanna. Sam-
tökin á Íslandi segja þær ásakanir
ekki eiga við rök að styðjast. Þórunn
hafi brugðist trausti samtakanna
gróflega. Þá hafi hún reynt að sölsa
undir sig félagið í Kenía og eignir
samtakanna.
„Fyrrverandi formaður virðist
ekki vilja sleppa takinu og gerir allt
til þess að berjast fyrir því. Þetta
er neyðarástand og við erum hérna
til þess að brúa bilið þar til nýr for-
maður tekur við,“ segir Ástríður en
hún og eiginmaður hennar Samúel
fóru til Kenía í júní.
„Börnin, kennararnir og stjórn-
endur í skólanum í Kenía fagna
breytingunum. Þeim leið illa áður,“
segir Samúel og á við formanns-
breytinguna í Kenía. „Þetta voru
löngu tímabærar breytingar.“
Hjónin segja nú frið ríkja í skólan-
um. „Nemendurnir eru að læra, þeir
fá fæðu og þeim líður vel,“ segir
Ástríður sem harmar að styrktar-
foreldrar hafi áhyggjur af börnum
sínum. ABC á Íslandi hefur boðað
til kynningarfundar með stjórnar-
mönnum, framkvæmdastjóra og
lögmanni ABC í næstu viku þar sem
fjallað verður um stöðu mála.
Samúel segir deilurnar óhjá-
kvæmilega hafa áhrif í Kenía. ,,Í
Kenía byggist allt á samskiptum
og það er auðvitað sárt fyrir fólkið
að standa á milli í þessu stríði. Við
Ástríður mætum þó bara endalausri
hlýju.“
Þórunn greindi Fréttablaðinu frá
því að lögregluyfirvöld í Kenía væru
komin í málið og hefðu vísað Samúel
úr landi vegna ólögmætrar yfirtöku
á starfseminni. Samúel og Ástríð-
ur segja hins vegar lögreglu ekk-
ert hafa með málið að gera, heldur
rannsaki það stofnun á vegum ken-
ískra yfirvalda sem hafi eftirlit með
hjálparstofnunum. „Við erum samt
ekki í Kenía til þess að leysa deil-
ur milli Þórunnar og stjórnarinnar.
Við erum ekki hér til að berjast. Hér
erum við vegna barnanna, starfsins
og fólksins. Þetta eru meðal annars
munaðarlaus börn sem verið er að
mennta og fæða,“ segir Ástríður og
bætir við að það sé svo mikilvægt að
starfið fái að vera í friði fyrir deil-
unni. nadine@frettabladid.is
Mikilvægt að ABC fái
frið fyrir deilunum
Enn standa illvígar deilur milli ABC barnahjálpar á Íslandi og í Kenía. Samúel
Ingimarsson og Ástríður Júlíusdóttir voru ráðin tímabundið til starfa í Kenía.
Börnunum líður vel en deilurnar hafa óhjákvæmilega áhrif.
Í NAÍRÓBÍ „Börnin, kennararnir og stjórnendur fagna breytingunum,“ segir Samúel
Ingimarsson, starfsmaður ABC. MYND/ÁSTRÍÐUR
„Þórunn hefur í fjölmiðlum reynt að grafa undan starfi ABC og
trausti stuðningsaðila og ekkert dregið undan í þeim efnum.
Það er betra að starfið sé hjá þeim sem vilja vernda það.
Venjulegt fólk sem teldi sig vera beitt órétti myndi ekki fara
beint í fjölmiðla til þess að skaða hjálparstarf,“ segir Einar
Gautur Steingrímsson, lögmaður ABC barnahjálpar á Íslandi, og
líkir málinu við söguna af Salómon konungi. „Þegar tvær konur deildu um hvor
átti barnið þá lét hann þá konu hafa barnið sem vildi vernda það en ekki þá sem
vildi skaða það.“
Venjulegt fólk færi ekki í fjölmiðla
Nám í höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð
hjá Upledger á Íslandi hefst 13. ágúst 2015
Námið er kennt í önnum og eru fimm annir til að klára námið
og geta orðið skráður græðari.
Á fyrstu önninni eru kennd grunnatriði meðferðarinnar.
Þau eru sett upp í 10 þrepa kerfi, sem er sérstaklega hannað og hugsað til að þjálfa
færni og næmni meðferðaraðilans en hefur einnig þann kost að meðferðarþiggjandi
er að fá frábæra meðhöndlun á öllum líkama.
Þeir sem hafa tekið þennan fyrsta áfanga í náminu geta tekið
hestanámskeiðið sem haldið verður 1.-4. október.
Kennari er Erla Ólafsdóttir sjúkraþjálfari, CST.
Nánari upplýsingar um námið og skráning í síma 863-0610 eða erla@upledger.is
www.upledger.is
DÓMSMÁL Norvik, fyrrverandi
eigandi Krónunnar, hefur höfðað
skaðabótamál á hendur Högum,
eiganda Bónuss, fyrir Héraðsdómi
Reykjaness vegna brota á sam-
keppnislögum á árunum 2005 og
2006. Bónus átti á þessum tíma í
verðstríði við Krónuna og Nettó.
Samkeppniseftirlitið sektaði
Haga um 315 milljónir króna árið
2008 vegna umræddra brota. Í
úrskurði Samkeppniseftirlitsins
kom fram að Bónus, sem væri mark-
aðsráðandi fyrirtæki, hefði selt
mjólk og mjólkurvörur langt undir
kostnaðarverði með þeim afleiðing-
um að verslanir Bónuss voru rekn-
ar með tapi. Þá hafi forsvarsmenn
Haga sagt í fjölmiðlum að tap fyrir-
tækisins vegna verðstríðsins hafi
numið 700 milljónum króna.
Andri Árnason, lögmaður Norvik,
segir matsmenn vera að störfum og
vildi því ekki tjá sig um hve háar
skaðabætur væri farið fram á í mál-
inu. - ih
Fyrri eigandi Krónunnar vill bætur vegna brota:
Norvik krefur Haga
um skaðabætur
Í BÚÐINNI
Bónus seldi
mjólkur-
vörur langt
undir kostn-
aðarverði.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GVA
STJÓRNSÝSLA Hægt hefur gengið
að vinna að fækkun mála sem
söfnuðust upp í verkfalli BHM og
bíða þinglýsingar hjá Sýslumann-
inum á höfuðborgarsvæðinu.
Tæplega ellefu þúsund skjöl
voru óafgreidd þegar lögfræð-
ingar hjá sýslumanni komu aftur
til starfa á mánudaginn í síð-
ustu viku. Síðan þá hafa bæst við
um tvö þúsund ný skjöl. Þuríð-
ur Árnadóttir, staðgengill sýslu-
mannsins á höfuðborgarsvæð-
inu, býst við að málunum hafi
lítið fækkað þótt embættið hafi
ekki enn nákvæmar tölur yfir
hve mörg mál hafi verið afgreidd.
„Það er ekki farið að vinna það
niður að ráði enn þá,“ segir Þur-
íður.
Embættið hefur þegar ráðið
sex lögfræðinga og fleiri gætu
bæst við á næstu dögum. Hvern-
ig gangi að vinna á halanum sem
myndast hafi í verkfallinu velti á
því hvernig gangi að þjálfa nýtt
starfsfólk. Þá séu lögfræðingar
sem hafi verið í verkfalli margir
á leið í sumarfrí. Þuríður segir
að það gætu liðið margir mán-
uðir þar til eðlilegt ástand skap-
ast á ný.
Þuríður bendir á að vinna við
fullnustugerðir á borð við nauð-
ungarsölur hafi ekki enn lent af
fullum þunga á embættinu. „Í
fullnustugerðunum kemur þung-
inn ekki fyrr en nokkrum vikum
eftir að hægt er að hefjast handa
við að vinna, því það eru það
langir boðunarfrestir og lögboðn-
ir auglýsinga- og tilkynninga-
frestir,“ segir Þuríður en fyrstu
nauðungarsölurnar fara fram á
mánudaginn. - ih
Sex lögfræðingar ráðnir til að flýta fyrir afgreiðslu:
Bunkarnir lækka
hægt hjá sýslumanni
BLAÐAÐ Í SKJÖLUNUM Þuríður Árna-
dóttir, staðgengill sýslumanns skoðar
hluta skjalabunkans sem bíður afgreiðslu
hjá embættinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
2
B
-6
9
0
C
1
6
2
B
-6
7
D
0
1
6
2
B
-6
6
9
4
1
6
2
B
-6
5
5
8
2
8
0
X
4
0
0
7
A
F
B
1
0
4
s
_
2
6
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K