Fréttablaðið - 27.06.2015, Blaðsíða 14
ERTU
FRAMKVÆMDASTJÓRI MANNAUÐSSVIÐS
Kanntu að velja demanta?
WOW air stefnir á verulegan vöxt næstu árin og því vantar okkur fleiri hendur til að halda
utan um dýrmætan mannauð flugfélagsins. Ert þú góður mannþekkjari með blússandi
WOW faktor? Við leitum að orkumiklum og þjónustuliprum snillingi sem vill fara á flug með
okkur. WOW air leggur mikinn metnað í að búa til einstakt umhverfi bæði fyrir gesti okkar og
starfsfólk. Starfið felur meðal annars í sér stýringu á mannauðsmálum félagsins, umsjón
með ráðningum, starfsþróunar- og færslumálum ásamt aðkomu að kjarasamningum. Ef þú
hefur haldbæra reynslu af mannauðsmálum, samningagerð og átt auðvelt með að spotta
gott fólk ásamt því að hlúa vel að því þá viljum við heyra frá þér.
Umsóknir og nánari upplýsingar um starfslýsingu og hæfniskröfur er að finna á www.hagvangur.is
YFIRMAÐUR OG ÁBYRGÐARMAÐUR
STARFSEMI Á JÖRÐU NIÐRI
Director Ground Operations (Nominated Post Holder)
Ertu með flugsýn?
WOW air leitar að metnaðarfullum einstaklingi til að takast á við áhugaverð og krefjandi
verkefni á flugrekstrarsviði flugfélagsins. Um er að ræða ábyrgð á starfsemi á flugvöllum,
samskiptum og samningagerð við þjónustuaðila, innritunarkerfi og öðru sem skilgreint er í
handbókum félagsins og af Samgöngustofu. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri
sviðsins (e. Accountable Manager). Flugrekstur WOW air er í miklu uppbyggingarferli og hér
er verið að leita að öflugum stjórnanda með mikla reynslu til að leiða og byggja upp þennan
mikilvæga hluta rekstursins. Fagmennska, frumkvæði og sjálfstæði í starfi eru allt góðir
kostir að hafa.
Nánari upplýsingar um starfslýsingu og hæfniskröfur er að finna á www.starf.wow.is
STARFSMAÐUR Í SKJALAVÖRSLU
OG SKIPULAGSDEILD
(Technical Records & Library / Planning Supporting Staff)
Við leitum að talnaglöggum og skipulögðum einstaklingi sem spáir í smáatriðum.
Er skipulag þitt fag? Þá erum við mjög líklega að leita að þér.
Nánari upplýsingar um starfslýsingu og hæfniskröfur er að finna á www.starf.wow.is
FLUGVIRKI MEÐ A320 TÝPURÉTTINDI
(Aircraft Mechanic - A320 Series / B1 and B2 Certifying Staff)
Dreymir þig um að skrúfa A320 flugvélar sundur og saman? Við leitum að framúrskarandi
flugvirkja sem er æstur í að dekra við flugvélarnar okkar nótt sem nýtan dag!
Nánari upplýsingar um starfslýsingu og hæfniskröfur er að finna á www.starf.wow.is
STARFSMAÐUR Í
VERKFRÆÐIDEILD / HREYFLAR
(PowerPlant Engineer / Engineering Supporting Staff)
Hreyfa hreyflar við þér? Við leitum að fluggáfuðum verkfræðingi eða flugvirkja sem lifir fyrir
flugvélahreyfla. Góð samskipta- og samstarfshæfni og jákvætt hugarfar eru góðir kostir að
hafa.
Nánari upplýsingar um starfslýsingu og hæfniskröfur er að finna á www.starf.wow.is
YFIRLÖGFRÆÐINGUR
Hvernig ertu á lagabókstafinn?
Vegna aukinna umsvifa vantar okkur fleiri hendur til að halda utan um samninga félagsins
og því leitum við að kraftmiklum og jákvæðum aðila til að slást í hóp harðduglegra
starfsmanna WOW air. Um mjög fjölbreytt og krefjandi starf er að ræða þar sem
viðkomandi mun meðal annars koma að samningum um flugvélakaup, kjaramálum,
fjármögnun, samkeppnismálum svo og margvíslegum lögfræðitengdum málefnum
félagsins. Um nýja stöðu er að ræða og því er þetta frábært tækifæri fyrir metnaðarfullan
og útsjónarsaman einstakling til að móta starfið eftir sínu höfði. Starfið heyrir beint undir
forstjóra. Ef þú hefur lög að mæla þá viljum við heyra frá þér!
Umsóknir og nánari upplýsingar um starfslýsingu og hæfniskröfur er að finna á www.hagvangur.is
STARFSMAÐUR Í ÚRVINNSLU OG
EFTIRLIT MEÐ BÓKUNUM
Fer ekkert framhjá þér?
WOW air leitar að nöskum snillingi til að hafa eftirlit með bókunum og tryggja gæði þeirra.
Færni í íslensku og ensku, sem og vilji til að læra og takast á við nýja hluti eru allt frábærir
kostir að hafa. Um sumarstarf er að ræða en líkur eru á að ráðning verði framlengd og þá
sem 50% - 100% staða í vetur.
Nánari upplýsingar um starfslýsingu og hæfniskröfur er að finna á www.starf.wow.is
YFIRMAÐUR SKIPULAGSDEILDAR
(Manager Planning)
WOW air leitar að yfirmanni Skipulagsdeildar á Tæknisviði. Viðkomandi þarf að vera súper
skipulagður og talnaglöggur með eindæmum. Ertu framúrskarandi stjórnandi og góð
fyrirmynd sem hugsar í lausnum? Þá viljum við heyra frá þér.
Nánari upplýsingar um starfslýsingu og hæfniskröfur er að finna á www.starf.wow.is
VERALDARVANIR VEFFORRITARAR
Ertu með puttann á púlsi vefheimsins?
Við leitum að framúrskarandi forriturum til að slást í WOW hópinn. Hefurðu gaman af því
að vinna í málum eins og Javascript, Ruby, Python, Java eða C#? Deilirðu við fólk um hvort
React, Angular, Ember.js eða nýjasta MVWhatever frameworkið sé betra? Vinnurðu
deilurnar? Eða var skorið úr um þær í Fußball? Ertu með háskólamenntun í tölvunarfræði,
verkfræði eða býrðu yfir mikilli reynslu af vefforritun? Þá viljum við heyra frá þér.
Nánari upplýsingar um starfslýsingu og hæfniskröfur er að finna á www.starf.wow.is
VERKEFNASTJÓRI Á
UPPLÝSINGATÆKNISVIÐI
Talar þú tölvum?
Við þurfum fleiri hausa og hendur á vef- og upplýsingatæknisvið WOW air. Þar starfa
snillingarnir sem bera ábyrgð á vali og/eða sköpun lausna til þess að uppfylla þarfir
flugfélagsins í sölu, þjónustu og rekstri. Framúrskarandi samskiptahæfileikar, færni í ensku
og íslensku sem og vilji til að læra og takast á við nýja hluti eru allt frábærir kostir að hafa. Það
væri ekki verra ef þú værir líka góð/ur í að spila Fußball (færni í Fußball er þó ekki skilyrði).
Nánari upplýsingar um starfslýsingu og hæfniskröfur er að finna á www.starf.wow.is
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
2
B
-4
1
8
C
1
6
2
B
-4
0
5
0
1
6
2
B
-3
F
1
4
1
6
2
B
-3
D
D
8
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
1
0
4
s
_
2
6
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K