Fréttablaðið - 27.06.2015, Qupperneq 26
27. júní 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 26
Fréttablaðið bar niðurstöðurnar undir suma af helstu almanna-tenglum landsins og sérfræðinga
í ímyndarmálum. Mörg-
um þeirra þóttu niður-
stöðurnar koma nokkuð á
óvart og þótti merkilegt
að sjá hvernig spurningin
varpaði nýju ljósi á stöðu
stjórnmálaleiðtoganna hjá
almenningi.
Margir vilja ekki fara út
með neinum
Óneitanlega vekur það
athygli, þegar niðurstöður
könnunarinnar eru skoðað-
ar, að stór hluti almennings
gat ekki hugsað sér að fara
út að borða með neinum
stjórnmálamanni. Af þeim
sem tóku afstöðu til spurn-
ingarinnar vildu 33 prósent
ekki fara út að borða með
neinum. Katrín Jakobsdótt-
ir var tiltölulega langt fyrir
ofan næsta mann. Katrín
þótti eftirsóknarverður
sessunautur við borð veit-
ingahúsa landsins hjá 24
prósentum þeirra sem tóku
afstöðu. 17 prósent vildu
fara út að borða með Bjarna
Benediktssyni, 12 prósent
með Sigmundi Davíð Gunn-
laugssyni forsætisráðherra,
fimm prósent með Helga
Hrafni Gunnarssyni, þrjú
prósent með Guðmundi
Steingrímssyni, og tvö pró-
sent með Árna Páli Árna-
syni.
Sumt kemur á óvart
Álitsgjafar Fréttablaðsins
voru flestir sammála um að
Katrín Jakobsdóttir væri
jarðbundin og jákvæð, sem
gerði hana að ákjósanlegum
borðfélaga. Mörgum komu
óvinsældir Helga Hrafns
Gunnarssonar, þingflokks-
formanns Pírata, á óvart.
Flestir voru einnig sam-
mála um að Guðmundi
Steingrímssyni, formanni
Bjartrar framtíðar, hafi
ekki tekist að sann-
færa almenning um
hversu skemmti-
legur hann sé í
raun. Samhljóm-
ur var einnig
um að niður-
stöðurnar
væru sláandi
fyrir Árna Pál
Árnason, for-
mann Sam-
fylkingar-
innar.
Með hvaða stjórnmálamanni viltu fara
út að borða? Katrínu Jakobsdóttur
24%
KATRÍN
JAKOBSDÓTTIR
Hún er brosmild og
hláturmild. Virkar eins og hún
sé skemmtileg. Held að það sé
hægt að ræða allt á milli
himins og jarðar við hana.
Hún er svo venjuleg. Það
er líka það sem fólk er að
tengja við. Maður sér hana
alveg fyrir sér í útilegu með
fjölskylduna, með krakkana
með sér. Hún er líka svo
rosalega aðgengileg. Maður
rekst á hana í Melabúðinni og
sér hana svo keyra burt á
gamla skutbílnum með
barnastólana aftur í. Hún er
mjög nálægt okkur og ég held
að fólk tengi vel við það.
Hver vill ekki fara út að
borða með skemmtilegri og
huggulegri konu? Lífsglöð og
falleg manneskja.
17%
BJARNI
BENEDIKTSSON
Hann er algjör töffari.
Virkar svolítið utan seilingar
fyrir almenning. Slíkt getur
heillað. Svona eins og að hann
sé partur af lífsstíl sem fólk vill
lifa.
Ég held að öllum þyki
gaman að fara út með spöðum
sem þekkja alla á staðnum.
Bjarni kemur fyrir sem
mjög viðkunnanlegur maður.
Hann er örugglega skemmti-
legur. Ég myndi gjarnan vilja
setjast niður með honum og
ræða um hin ýmsu mál. Svo
skemmir örugglega ekki fyrir
að hann myndi líklega taka
upp veskið og borga að
matnum loknum.
12%
SIGMUNDUR DAVÍÐ
GUNNLAUGSSON
Þrátt fyrir allt hans tal um
mikilvægi þess að vera
jákvæður, þá er einhver ára
neikvæðni í kringum manninn.
Hann virðist bara ekki vera
mjög skemmtilegur borðfélagi
og hefur ekki virst það lengi.
Eða kannski bara alltaf. Hann
var líka svona djúpraddaður og
alvarlegur í sjónvarpinu.
Stór hluti þeirra sem vilja
fara út að borða með Sigmundi
eru líklega kjósendur Fram-
sóknarflokksins. En síðan er
örugglega dágóður hluti sem er
forvitinn um Sigmund. Ég
hugsa að Íslendingar séu ekki
jafn forvitnir um neinn annan
en forsætisráðherrann okkar.
Hann er málglaður og
hress. Sem væri kostur við að
fara út að borða með honum.
Hlýtur að vera gaman að sitja
með honum.
5%
HELGI HRAFN
GUNNARSSON
Það „púllar“ enginn svona
tagl. En hann er samt klárlega
mjög áhugaverður og
örugglega frábær borðfélagi.
Niðurstöðurnar koma mér
nokkuð á óvart.
Þetta kemur mér verulega
á óvart. Helgi hefur staðið sig
ákaflega vel á þingi og á
örugglega mikið í þessu fylgi.
Kannski finnst fólki hann helst
til of nördalegur– fer eftir
úrtakinu sem var notað í
skoðanakönnunni. Held að
hann sé stórskemmtilegur.
Hefur kannski ekki sýnt
mannlegu hliðina í fjölmiðlum.
Ætli þetta sé ekki aðallega
„dress-code“ vandamál? En
svona í alvöru, þá held ég að
vinsældir Pírata séu fyrst og
fremst Helga Hrafni að þakka
og hann sé mjög mikils metinn
sem stjórnmálamaður. En fólk
horfir kannski frekar til hans
sem manns sem leysir
vandamál, ekki „wine og dine“
fígúru.
3%
GUÐMUNDUR
STEINGRÍMSSON
Ég held að hann sé
þrælskemmtilegur. Hann þarf
betra fólk með sér. Hann er
ekki að ná að til fólks, eins
skemmtilegur og hann er.
Hann er eini maðurinn í
þessum hópi sem er þekktur
fyrir að vera hressi gaurinn
með gítarinn. Það sést hvað
hann hefur misst þann sjarma
með því að fara í stjórnmálin.
Guðmundur hefur ekki náð að
yfirfæra það að vera skemmti-
legasti maðurinn í partíinu yfir
í að vera sá skemmtilegasti á
þingi.
Þessar óvinsældir hans
koma manni á óvart. Hann
virkar fjörugur og fyndinn og
gæti verið hinn skemmtilegasti
borðfélagi. Hann þarf að taka
þessar niðurstöður til sín og
breyta ímyndinni.
2%
ÁRNI PÁLL
ÁRNASON
Hann er búinn að vera
frekar umdeildur og fékk lélega
kosningu í eigin flokki. Það
smitar kannski út frá sér? Ég
veit það fyrir víst að hann er
skemmtilegur maður. Ég held
að hann gæti komið mörgum á
óvart.
Maður var að vona hans
vegna að fólk væri bara ekki
búið að kaupa hann sem
þungavigtarstjórnmálamann
en líkaði ágætlega við hann
annars. En svo virðist ekki
vera. Hann hefur ekki fundið
sinn eigin tón í stjórnmálum
og virkar því ekki eins og hann
sjálfur í viðtölum. Eins og hann
sé svolítið að leika stjórnmála-
leiðtoga. Ég held að það fæli
fólk frá.
Guðmundur og Árni Páll
eiga báðir við mikil ímyndar-
vandamál að stríða. Fólk trúir
ekki að Árni Páll meini neitt
með því sem hann segir þótt
það hljómi vel og að Guð-
mundur nái aldrei að fram-
kvæma neitt sem hann meinar
þótt það hljómi vel.
Hvernig túlka sérfræðingarnir niðurstöðurnar?
Nokkrir af helstu almannatenglum og ímyndarsérfræðingum landsins rýna í svör landsmanna um hverjum þeir vilja helst fara með út að borða.
Hvert færi
Heiðar með
leiðtogana á
stefnumót?
Fréttablaðið fékk
Heiðar Jónsson
snyrti til þess að
fara yfir hvað
væri skemmti-
legt að gera
með stjórnmála-
leiðtogunum á
stefnumóti.
ÁLITSGJAFAR Hödd Vilhjálmsdóttir, Hugrún Halldórsdóttir, Heiða Lára Aðalsteinsdóttir,
Gunnar Salvarsson, Andrés Jónsson, Fjalar Sigurðarson, Jón Gunnar Geirdal.
Könnunin var framkvæmd í vikunni. Úrtakið var 800 manns og tóku 682 afstöðu til spurningarinnar.
Hlutfall reiknast út frá þeim sem tóku afstöðu.
Kjartan Atli
Kjartansson
kjartanatli@365.is
Katrín Jakobsdóttir
Maður myndi taka daginn
snemma með henni og vonast
til að hann yrði langur. Fara
með henni á „artý“ kaffihús
og síðan á pönkaða tónleika,
eða jafnvel framúrstefnulega.
Ég held að það myndi verða
skemmtilegt kvöld með
Katrínu.
Bjarni Benediktsson
Stefnumót með Bjarna þyrfti
að tímasetja vel og láta það
hitta á dag þar sem væri fín
og flott móttaka einhvers
staðar. Daman sem færi með
Bjarna á stefnumót gæti þar
„flassað“ fína og flotta „deit-
inu“ sínu. Síðan fara á fínan
en frekar lítinn veitingastað
með tempraðri lýsingu.
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Ég held að „sportý“ kona
myndi jafnvel fara með
Sigmundi Davíð og grilla bara,
auðvitað íslenskt kjöt. Vera
með góðum vinahópi og hafa
það gott. Síðan að skella sér
upp á Helgafell og horfa á sól-
setrið. Held að þetta væri kvöld
sem væri Sigmundi að skapi.
Helgi Hrafn Gunnarsson
Ég held að það væri best að
bjóða Helga Hrafni í skemmti-
legt partí í anda blómatímans.
Yrði bara einfalt og skemmti-
legt. Mikilvægt væri að senda
honum boðskort í partíið í
gegnum tölvupóst.
Guðmundur Steingrímsson
Ef ég væri rík dama myndi ég
vilja taka hann með mér til
New York og fara í Comedy
Cellar. Guðmundur er svo
hress og skemmtilegur maður.
Helgarferð til New York, þetta
gæti ekki klikkað.
Árni Páll Árnason
Hann er voðalega fjölskyldu-
vænn og góður maður. Ef ég
væri kona myndi ég bjóða
honum og góðum vinum, sem
væru með hæfilegan áhuga á
listum og pólitík, heim í mat.
Ég myndi líka bjóða móður
Árna Páls með. Hún er alveg
ofboðslega spennandi kona og
skemmtileg.
Þegar landsmenn eru spurðir að því hvaða stjórnmálaleiðtoga þeir vilja helst fara með út að borða er
Katrín Jakobsdóttir vinsælust. Þetta eru niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins. Bjarni Benedikts-
son, formaður Sjálfstæðisflokksins, þótti næstbest til þess fallinn, en Árni Páll Árnason var óvinsælastur.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
2
B
-7
2
E
C
1
6
2
B
-7
1
B
0
1
6
2
B
-7
0
7
4
1
6
2
B
-6
F
3
8
2
8
0
X
4
0
0
8
A
F
B
1
0
4
s
_
2
6
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K