Fréttablaðið - 27.06.2015, Page 36
FÓLK|HELGIN
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýs-
endum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala
og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið
ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
GESTIR
Erlendir
gestalistamenn
verða með Sirkus
Ísland í sumar, til
dæmis hin sterka
Mama Lou sem er
mikil kraftakona.
SIRKUSDROTTNING Margrét Erla hefur tilheyrt sirkushópnum frá upphafi og segir sirkuslífið afar skemmtilegt. MYND/GVA
Margét Erla var á þönum þegar við náðum tali af henni, enda nóg að gera áður en haldið er af stað með
heila sirkuslest í Herjólf. „Okkur dreymir
um að fara með sirkusinn úr landi ein-
hvern tíma og þetta verður góð æfing,“
segir hún. Um 30 manns fara til Eyja þar
sem risatjaldið verður sett upp eftir helgi.
Hluti hópsins verður áfram í borginni til að
halda sirkusskólanum gangandi en hann
er afar vinsæll hjá börnum og unglingum
á aldrinum 8-14 ára. Margrét Erla segir að
þau séu að ala upp nýja kynslóð af sirkus-
listamönnum og margir efnilegir séu að
vaxa úr grasi.
Margrét Erla upplýsir einnig að ýmsu
þurfi að redda áður en haldið er af stað í
ferðalag og dagurinn í dag muni að mestu
fara í það. Íslenski sirkusinn er búinn
að sanna gildi sitt og áhorfendur bíða
spenntir. „Sumir trúa því ekki að það séu
íslenskir listamenn að sýna og við erum
oft spurð um það,“ segir Margrét. Sirkus
Íslands verður á nokkrum bæjarhátíðum
um landið í sumar og svo einnig í borginni.
Sýningar verða fram til 24. ágúst en þá fara
þrír listamannanna til Hollands þar sem
þeir stunda nám í listinni.
FÁ VINK OG BROS
„Það er langur undirbúningur sem fylgir
sirkusferðalagi. En þegar kemur að ferða-
laginu er allt klárt og allir vel undir það
búnir,“ segir Margrét Erla. Vegfarendur um
Suðurland munu eflaust taka eftir þessari
miklu lest á morgun en sirkusfólkið stopp-
ar gjarnan í vegasjoppum til að teygja úr
sér og skemmtir þá börnum í leiðinni. Að
auki fá þau mörg vink á leiðinni og bros
frá bæði ungum og öldnum. Tveir gámar
og vagn fylgja rútu hópsins auk einkabíla.
Sirkus Íslands hefur ekki áður sýnt listir
sínar í Eyjum svo það er mikil tilhlökkun í
loftinu. Sumir listamennirnir eru fjölskyldu-
fólk og makar og börn fá að vera með í
þessu ævintýri. Margrét Erla er barnlaus
en kærasti hennar, Hjalti Þór Þórsson,
hefur aðstoðað hópinn. Á ferð sinni um
landið fær hópurinn að sofa í skólum eða
félagsheimilum.
GANGA Í ÖLL STÖRF
Eftir að sirkustjaldið var keypt í fyrra
breyttust möguleikar til alvöru sirkus-sýn-
inga á Íslandi og sannarlega hefur hópn-
um verið vel tekið hvar sem hann hefur
komið. Áður voru atriðin aðallega sýnd á
götum úti eða á skemmtunum en þau urðu
mun tilkomumeiri eftir að tjaldið kom til
sögunnar. „Sirkus-sýningarnar hafa vakið
áhuga margra ungmenna sem dreymir
um að vinna í fjölleikahúsi,“ segir Margrét
Erla sem hefur unnið með sirkusnum frá
upphafi í öllum mögulegum störfum. „Við
göngum í öll störf til að spara kostnað,
hvort sem það er í miðasölu, búa til mat
eða skemmta á sviði,“ útskýrir hún. „Þetta
er mjög skemmtilegt líf þótt það geti líka
verið erfitt. Það er ótrúlega margt sem þarf
að halda utan um svo hlutirnir gangi upp.“
GESTALISTAMENN
Sýningar í Eyjum hefjast miðvikudaginn
1. júlí og standa yfir í eina viku. Í Eyjum
verður gestalistamaður sem hefur notið
mikillar hylli. Það er hin sterka, bandaríska
sirkusdrottning Mama Lou, sem hefur
vakið mikla athygli. Auk þess verður Paula
Alvala, sem kemur frá Brasilíu, með í för í
sumar. Von er á fleiri erlendum gestalista-
mönnum í sumar.
Sirkusinn verður á Klambratúni 9. til
12. júlí og aftur í ágúst. Þess á milli verður
hann á Húnavöku á Blönduósi, Frönskum
dögum á Fáskrúðsfirði og Síldarævintýrinu
á Siglufirði. ■ elin@365.is
SIRKUSFLAKKARAR
HALDA AF STAÐ
ÆVINTÝRI M argrét Erla Maack er ein af sirkusdrottningum Íslands. Líf henn-
ar snýst að mestu um listir og kúnstir sirkusfólksins. Á morgun heldur sirkus-
lestin í árlegt sumarferðalag sem hefst í Vestmannaeyjum.
BREYTTI ÖLLU Þegar sirkustjaldið kom til sögunnar í fyrra breyttust mögu-
leikar sirkushópsins til mikilla muna. MYND/FACEBOOK
Fáanlegt í nær öllum apótekum landsins, Heilsuhúsið, Hagkaup,
Fjarðarkaup, Orkusetrið, Lifandi Markaður, Sportlíf, Heilsuver,
Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is og Heimkaup
Gullkryddið
Liðir - bólgur
CURCUMIN
Allt að 50 sinnum
áhrifameira
en hefðbundið
Túrmerik!
CURCUMIN (gullkryddið)
er virka innihaldsefnið í
Túrmerik rótinni og hefur
verið notað til lækninga
og til matargerðar í yfir
2000 ár í Asíu. Hátt í 3.000
rannsóknir hafa verið gerðar
á þessari undrarót undafarna
áratugi.
• Liðamót
• Bólgur
• Gigt
•
Fáanlegt í nær öllum apótekum landsins, Heilsuhúsið,
Hagkaup, Fjarðarkaup, Orkusetrið, Lifandi Markaður, Heilsuver,
Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is og Heimkaup
Svefnvandi, kvíði, depurð
MAGNOLIA
OFFICINALIS
Börkur af plöntunni
MAGNOLIA
OFFICINALIS, sem vex
í fjallahéruðum Kína,
hefur verið notaður við
svefnvandamálum, kvíða
og þunglyndi í yfir 2000
ár í Asíu.
Heilbrigður svefn
“Hjálpar þér að losna
úr vítahringnum og ná
stjórn á svefninum”
Dr. Michael Breus
www.thesleepdoctor.com
• Heilbrigður svefn
• Upphaf svefns
• Samfelldur svefn
• Þunglyndi og kvíði
Skútuvogur 1H | 104 Reykjavík | S: 5858900 | www.jarngler.is
Sjálfvirkur hurðaropnunarbúnaður
fyrir húsfélög og fyrirtæki, ásamt uppsetningu og
viðhaldi Hentar vel fyrir aðgengi hreyfihamlaðra.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
2
B
-9
5
7
C
1
6
2
B
-9
4
4
0
1
6
2
B
-9
3
0
4
1
6
2
B
-9
1
C
8
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
1
0
4
s
_
2
6
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K