Fréttablaðið - 27.06.2015, Side 52
| ATVINNA |
Sundlaug Seltjarnarness óskar eftir að ráða sundlaugarvörð
til starfa.
Í starfinu felst m.a. sundlaugarvarsla, gæsla búningsklefa karla,
þrif og þjónusta við sundlaugargesti á öllum aldri.
Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri og vel á sig kominn
líkamlega, þjónustulundaður, góður í samskiptum við alla aldurs-
hópa, þrifinn, tala mjög góða íslensku og síðast en ekki síst heilsu-
hraustur.
Ath. að viðkomandi þarf að standast sundpróf fyrir sundlaugar-
verði.
Um er að ræða vaktavinnu og framtíðarstarf.
Umsóknir og fyrirspurnir skulu berast á tölvupóstfangið
haukur@seltjarnarnes.is fyrir 1. ágúst 2015.
Íþrótta- og tómstundasvið Seltjarnarnesbæjar
Sundlaugarvörður
,,hóar þar smali og rekur á ból”
Óskum að ráða grunnskólakennara í umsjónarkennslu í 3.
bekk fyrir næsta skólaár í 80-100 % starf
Nánari upplýsingar um starfið veitir
Sveinbjörn Markús Njálsson skólastjóri í síma 8215-007 og einnig
má senda fyrirspurnir á
netfangið markus@alftanesskoli.is og
Erna I. Pálsdóttir aðstoðarskólastjóri
í símum 540470, 8215-009 og á
netfang: erna.palsdottir@alftanesskoli.is.
Sjá nánar á vef www.gardabaer.is og
www.alftanesskoli.is
Umsóknarfrestur er til 10. júlí 2015.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi
Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um
rafrænt á heimasíðu Garðabæjar með því að
fylla út atvinnuumsókn.
Skólastjóri
Húsasafn Þjóðminjasafns Íslands auglýsir eftir
Verkefnisstjóra
Helstu verkefni verkefnisstjóra tengjast viðgerðum og viðhaldi á
húsum í húsasafni Þjóðminjasafns, s.s. áætlunargerð, samnings-
gerð, öryggismál, samstarf við rekstraraðila, fræðsla, þátttaka
í rannsóknarvinnu og skýrslugerð og eftirlit með viðhaldsfram-
kvæmdum. Verkefnin eru unnin í samstarfi við safnvörð húsa-
safns sem stýrir málaflokknum, sem heyrir undir rannsókna- og
varðveislusvið Þjóðminjasafns, í umboði þjóðminjavarðar.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun og reynsla sem nýtist í starfi. Háskólapróf á bygg-
ingasviði æskilegt.
• Þekking á íslenskum byggingararfi nauðsynleg, ásamt reynslu
af skipulagningu og verkstjórn verkefna í byggingariðnaði.
Þekking á gömlum húsum og viðhaldi þeirra áskilin.
• Reynsla af rannsóknarstörfum og skýrslugerð æskileg.
• Lipurð í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
nauðsynlegt.
• Frumkvæði og sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð.
• Tölvukunnátta nauðsynleg: s.s. Word, Excel og PowerPoint,
sem og grunnþekking á stafrænni ljósmyndun.
• Gott vald á íslensku og ensku og/eða norðurlandatungumáli,
bæði í rituðu og töluðu máli.
• Starfinu fylgja talsverð ferðalög um landið og er bílpróf
nauðsynlegt.
Ráðningarkjör
Um er að ræða fullt starf og er ráðning tímabundin til 12 mánaða
til að byrja með. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála- og
efnahagsráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Umsóknafrestur
Umsóknarfrestur er til og með 6. júlí 2015 og skulu umsóknir með
ferilskrá, afritum prófskírteina og meðmælum eða upplýsingum
um meðmælendur berast skrifstofu safnsins að Suðurgötu 43,
101 Rvk, merkt “húsasafn” eða á póstfangið
starfsumsokn@thjodminjasafn.is.
Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisáætlun stofnunar-
innar. Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt
um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsókn-
ir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Nánari upplýsingar veitir Anna Lísa Rúnarsdóttir, sviðstjóri
rannsókna- og varðveislusviðs (anna.lisa@thjodminjasafn.is) og
Guðmundur Lúther Hafsteinsson safnvörður húsasafns
(gudmundur.luther@thjodminjasafn.is), s. 5302200.
Starfsmaður taki þátt í því að Þjóðminjasafn Íslands nái mark-
miðum sínum sem vísinda- ogþjónustustofnun. Starfsmaður leggi
áherslu á góða þjónustu og ráðgjöf, fagleg og ábyrg vinnubrögð
og jákvætt skapandi andrúmsloft á vinnustað.
Þjóðminjasafn Íslands er háskólastofnun og höfuðsafn á sviði menningarminja og
rannsókna á menningarsögulegum minjum í landinu. Hlutverk þess er að auka og
miðla þekkingu á menningarminjum og sögu íslensku þjóðarinnar. Þjóðminjasafn
Íslands starfar m.a. á grundvelli laga um Þjóðminjasafn Íslands nr. 140/2011,
safnalaga nr. 141/2011 og laga um menningarminjar nr. 80/2012.
Staða íþróttakennara við
Kirkjubæjarskóla
Okkur í Kirkjubæjarskóla vantar íþróttakennara næsta
vetur.
Um er að ræða íþrótta- og sundkennslu í 1. – 10. bekk.
Við leitum að hugmyndaríkum, metnaðarfullum og dug-
andi íþróttakennara sem tilbúinn er að takast á við ný og
fjölbreytt verkefni.
Umsóknarfrestur er til og með 15. júlí og
umsóknir sendist á skolastjori@klaustur.is
Nánari upplýsingar gefur Kjartan Kjartansson
í sími 487 4633/864 0300,
http://www.kbs.is/
http://www.klaustur.is
Á Kirkjubæjarklaustri er gott mannlíf, þar búa um 130 manns
en íbúar Skaftárhrepps eru um 450 talsins. Á Kirkjubæjar-
klaustri er að finna alla nauðsynlega þjónustu s.s. verslun,
banka, heilsugæslustöð, leikskóla, kaffihús og íþróttamiðstöð.
Í íþróttamiðstöðinni er að finna glæsilegt íþróttahús, sundlaug
og tækjasal.
Skaftárhreppur
www.tskoli.is
Skólaliði óskast
við Tækniskólann
Áhugasamir sendi inn umsókn ásamt ferilskrá
á gsi@tskoli.is merkt „Skólaliði“ fyrir 1. ágúst 2015.
Starfssvið skólaliða er dagleg umsjón með húsnæði skólans
auk þjónustu við nemendur og starfsfólk. Fjölbreytt starf sem
hentar báðum kynjum þar sem margþætt reynsla nýtist vel.
Góðir samskiptahæfileikar, jákvæðni og rík þjónustulund mikilvæg.
Tæknileg aðstoð hjá 1984 ehf.
1984 ehf vill ráða starfsmann í tæknilega aðstoð. Starfið felst í
einföldum kerfisstjórnarverkefnum og þjónustu við viðskiptavini í
síma og tölvupósti.
1984 er stærsti vefhýsill á
Íslandi. Við þjónum um 15%
af íslenska markaðinum og
tökum skyldur okkar mjög
alvarlega. Við leggjum
áherslu á að þjóna viðskipta-
vinum okkar dyggilega og af
kurteisi, fagmennsku og
algerum trúnaði.
Umsækjandi þarft að vera mjög öguð persóna, lipur í
samskiptum, tala mjög góða íslensku og hafa gott vald á
ritaðri og talaðri ensku. Nauðsynlegt er að umsækjandi
kunni á skipanalínuumhverfi í GNU/Linux og hafi
almennan áhuga á upplýsingatækni og tölvum.
Umsóknarfrestur er til mánudagsins 6. júlí, 2015.
Umsóknir sendist með tölvupósti á atvinna@1984.is
27. júní 2015 LAUGARDAGUR10
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
2
B
-9
A
6
C
1
6
2
B
-9
9
3
0
1
6
2
B
-9
7
F
4
1
6
2
B
-9
6
B
8
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
1
0
4
s
_
2
6
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K