Fréttablaðið - 27.06.2015, Blaðsíða 76
27. júní 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 32
stjórnmálamaður. Þá meina ég stjórn-
málamaður í þeim skilningi að hann
hefði unun af að stjórna öllu mögulegu,
skipuleggja, vasast í smáatriðum og sópa
til sín æ víðáttumeiri og smásmugu-
legri völdum. Hitler hafði ekki gaman
af slíku. Stjórnsýsla nasistaríkisins var
til dæmis alltaf í skötulíki af því
Hitler var áhugalaus um svo-
leiðis. Hann leit á sig sem
hljómsveitarstjóra og það
átti að duga að hann
sveiflaði sprotunum
duglega, þá skyldu
hlutirnir gerast af
sjálfu sér. Og verkið
sem hljómsveitin
spilaði var ein þeirra
miklu Wagners-ópera
sem mótuðu endan-
lega hugarheim hins
unga Hitlers þegar
honum tókst, fátækum
og ræfilslegum, að laum-
ast inn á sýningar Vínaróper-
unnar í æsku, og lét sig dreyma
um að hann væri Siegfried, hinn mikli
norræni sigurvegari. Lífsafstaða og hug-
sjón Hitlers var æ síðan sú að hann væri
aðalpersóna í slíkri óperu, og líf hans
væri hamslaust listaverk. Og það hefði
ekki þurft að útskýra fyrir honum merk-
ingu þess að vera tilbúinn til að „brenn-
ast um seint / í eldi og eiga / þó allskost-
ar völ“. Ég hygg að sumum lesendum
þyki kannski óþægilegt að sjá þessu
þrælmenni lýst sem hugsjónamanni og
listamanni, en það verður svo að vera.
Hugsjónir geta jú verið hræðilegar og
list bæði yfirborðskennd og þjófstolin og
þar á ofan mannfjandsamleg.
Fjórði þáttur Niflungahringsins
Lengi framan af gekk hljómsveitarstjór-
anum Hitler reyndar allt í haginn og
allir hans draumar uppfylltust – fyrst
fann hann sitt Rínargull, Valkyrjur
hans þeystu vopnfráar á skýjum til sig-
urs hvarvetna, og hann í hlutverki Sieg-
frieds hló að dauðanum og ríki hans
myndi standa í þúsund ár. En svo
snerist allt í höndum hans, og
ósigurinn blasti við en þá
tók Hitl er honum að sjálf-
sögðu sem fjórðu óper-
unni í Niflungahringn-
um: Götterdämmerung.
Ósigur Þýskalands og
dauði tugmilljónanna
voru ekki annað en
hans prívat Ragnarök
og hann hefði ekki einu
sinni látið sér detta í
hug að reyna að flýja þau
örlög. Málið snýst ekki um
hugrekki í eiginlegum skiln-
ingi, heldur lífstilgang, þessi
skelfilegi maður taldi sig vera að
fullkomna listaverk Wagners og sitt eigið
með dauða sínum í byrginu og hann hafði
einfaldlega ekki hugmyndaflug til að fara
að rækta radísur og dunda við loftkastala-
smíð um Fjórða ríkið í rykugum bakher-
bergjum í Argentínu.
Alveg burtséð frá því að Hitler var
farinn að heilsu og hefði aldrei lifað
lengi þótt hann hefði getað eða vilj-
að sleppa. Svo fréttin er jafn röng og
venjulega. En þó má búast við að hún lifi
enn um sinn góðu lífi og eftir ákveðinn
tíma sjáum við efalaust aftur þá gamal-
kunnu fyrirsögn: Komst Hitler undan til
Argentínu?
Hún birtist nú fyrir fáeinum vikum, þessi gamla vinkona. Þá hafði hún ekki sést lengi, en ég var samt ekki farinn að hafa neinar áhyggjur, ég vissi að hún skyti upp
kollinum fyrr eða síðar. Því hún virðist
einfaldlega ekki geta dáið. Oft fær hún
heldur harkalegar móttökur þegar hún
kemur, já, það er ekki ofmælt að segja að
hún sé stundum barin eins og harðfiskur,
það sé hlegið að henni og hún sé beinlínis
hrakin á brott með grjótkasti. Hún hverf-
ur þá á braut, lætur lítið fyrir sér fara
um hríð, en viti menn, alltaf kemur hún
aftur. Þrautseigju hennar er við brugðið,
það má sannarlega dást að henni fyrir að
gefast aldrei upp.
Ég er að sjálfsögðu að tala um fréttina
um að Adolf Hitler hafi komist lífs af úr
hildarleik síðari heimsstyrjaldar, flúið
úr neðanjarðarbyrgi sínu í Berlín og náð
alla leið til Suður-Ameríku þar sem hann
gerði sér lengi vonir um að geta endur-
reist ríki nasista í Þýskalandi. Það gildir
sem sé einu hversu oft sagnfræðingar og
aðrir sérfræðingar telja sig vera búna að
kveða í kútinn þessa frétt og stjaksetja
hana endanlega, hún birtist alltaf aftur
og alltaf eru einhverjir reiðubúnir að
trúa henni.
Núna virtist hún reyndar óvenjulega
braggleg, enda hafði hún sosum ekki sést
alllanga hríð og hefur því fengið tóm til
að safna almennilegum kröftum. Hún
birtist nú studd gögnum frá bandarísku
alríkislögreglunni FBI, hvorki meira né
minna, útkrotuð skýrsla frá FBI fylgdi
fréttinni hvarvetna, og í henni fólst að til
Adolfs Hitlers og Evu Braun konu hans
hefði sést á flugvelli í Danmörku rétt í
þann mund að sagt er að þau hafi framið
sjálfsmorð í Berlín, og þaðan hefðu þau
flogið á einhvern leyndan stað þar sem
þau hefðu stigið um borð í þýskan kaf-
bát sem hefði farið í langferð suður allt
Atlantshafið og ekki endað fyrr en út
af Argentínuströndum, þar hefði Hitler
verið skotið í land ásamt Evu og þau
gert sér bú á leyndum stað, já, það fylgdi
sögunni að þau hefðu á endanum eignast
dætur tvær þarna í friðsældinni suður
frá, meðan þau biðu eftir að Adolf gæti
tekið aftur við völdum í Þýskalandi, en
það varð nú aldrei sem betur fer, og ein-
hvern tíma á sjöunda áratugnum dó
Hitler á sóttarsæng og enda orðinn nokk-
uð aldraður, en hafði tekist að komast
undan réttvísinni öll þessi ár.
Hvað af dætrum hans varð fylgdi ekki
fréttinni, þær ættu nú að vera orðnar
stútungskellíngar hátt á sjötugsaldri en
virðast að minnsta kosti ekki hafa flagg-
að ætterninu.
Svona birtist fréttin árið 2015, dagblöð
hvarvetna birtu samviskusamlega mynd
af hinni útkrotuðu skýrslu frá FBI og
óljósa ljósmynd sem hefur reyndar verið
á kreiki um skeið og á að sýna fremur
brosmildan Hitler, yfirskeggslausan,
tekin einhvern tíma á efstu dögum hans í
Argentínu.
Getur þetta verið satt? Er þetta
kannski Hitler á myndinni?
En ég ítreka, þetta er sannarlega ekki
ný frétt. Í hinni góðu æskuminninga-
bók móður minnar, Svarthvítum dögum,
segir meðal annars frá því í bráð-
skemmtilegum kafla að bara fáeinum
árum eftir seinni heimsstyrjöldina var
hún barnið að brjótast gegnum þungar
tímaritsgreinar þar sem einmitt þessu
var haldið fram – að Hitler hefði kom-
ist undan á kafbáti. Í reyfara Arnald-
ar Indriðasonar, Napóleonsskjölunum,
er einmitt hin sama frétt drifkraftur
plottsins. Og nú hafa talsmenn þessara
tíðinda tekið internetið í þjónustu sína
og dælt þar inn ýmsum útgáfum fréttar-
innar, prófið að fara á YouTube og sláið
inn „Hitler escape“ og þið munuð fá upp
80.700 myndbönd til að skoða. Og þar eru
mikil fræði á ferðinni, er óhætt að segja.
Hver er hin opinbera útgáfa?
Eins og allir muna var atburðarásin í
mýflugumynd á þá leið að þegar dró að
mánaðamótunum apríl maí 1945 var
Rauði herinn kominn inn í Berlín og
það var barist á götunum, Sovétmenn
voru ekki í nema fimm mínútna göngu-
færi frá bönkernum þegar Hitler og Eva
sviptu sig lífi þann 30. apríl, lík þeirra
voru svo flutt upp á yfirborðið og komið
fyrir í sprengjugíg, hellt yfir þau bensíni
og eldur lagður að. Tveim dögum síðar
gáfust leifar varnarliðsins í Berlín upp
og þann 7. maí var styrjöldinni formlega
lokið. Einföld og rökrétt atburðarás, er
ekki svo?
Aldeilis ekki, segja talsmenn fréttar-
innar um að Hitler hafi komist undan. Á
YouTube-myndböndunum má sjá miklar
útleggingar um leynigöng út úr neðan-
jarðarbyrginu sem Hitler og Eva Braun
hafi getað lúskrast út um en tvífarar
þeirra komið í staðinn, svo sannfærandi
að meira að segja fólkið í byrginu, sem
gjörþekkti þau bæði, varð ekki vart við
neitt – og þar eru heilu völundarhúsin
þar sem fjallað er um af hverju engar
líkamsleifar hafi fundist, og gert lítið úr
þeim kjálkabút sem þó fannst reyndar,
og það er fjallað um dularfullar flugvél-
ar sem eiga að hafa farið á loft frá Berlín
á þessari síðustu stundu – og svo fram-
vegis.
Allt getur þetta virst firna sannfær-
andi, ef maður er veikur fyrir samsæris-
kenningum, og mun ekki plaggið frá FBI
nú verða til þess að renna enn frekari
stoðum undir sögurnar um flótta Hitl-
ers?
Í sem skemmstu máli: Nei. Plaggið frá
alríkislögreglunni bandarísku er ekki til
vitnis um annað en að einhvern tíma kom
einhver rugludallur og fabúleraði eitt-
hvað í eyru FBI-manna um dularfullar
mannaferðir og kafbáta í stríðslok, og
samviskusamur FBI-maður skrifaði um
þetta skýrslu og lagði einhvers staðar í
bunka, meira virði er það plagg nú ekki.
Og sama hversu sannfærandi sem þau
virðast, YouTube-myndböndin, þá er ein-
faldlega ekkert til í þeim sögum að Hitler
hafi komist lifandi úr bönkernum og svo
tjillað í Argentínu sem hamingjusamur
fjölskyldufaðir í áratugi og átt börn og
buru og grafið rætur og muru.
Allar sögusagnir um neðanjarðargöng,
tvífara, flugferðir, kafbáta, ókennilegar
líkamsleifar, þær eru einfaldlega rangar,
og standast ekki neina skoðun.
Stalín vildi ekki staðfesta dauða Hitlers!
Það er líka alveg sama hversu oft er
vitnað til Jósefs Stalíns, en á ráðstefnu í
Potsdam í Þýskalandi í júlí 1945 spurði
Truman Bandaríkjaforseti Sovétleiðtog-
ann hvort Hitler væri dauður eða lifandi
og Stalín er sagður hafa svarað þurr-
lega: „Nei!“ – Hitler lifnar ekki við fyrir
því. Hann dó í bönker sínum þann 30.
apríl og engin óljós skjöl eða þokukennd-
ar myndir af brosmildum gömlum köll-
um fá því breytt, blessunarlega. Fyrir
Stalín vakti ekki annað en pirra Trum-
an, sem hann fyrirleit, og Vesturveldin
yfirleitt sem hann grunaði um græsku
á svo mörgum sviðum að hann virðist
hafa talið rétt að hafa örlög Hitlers uppi
í erminni eins og sína eigin kjarnorku-
sprengju.
Og burtséð frá öllu þrefi um neðri
kjálka Hitlers eða útkrotuð skjöl frá
FBI, þá horfa þeir alltaf framhjá einu
stóru atriði sem vilja trúa því að Hitler
hafi komist lifandi til Argentínu.
Það er sú einfalda en óhrekjanlega
staðreynd að Adolf Hitler hafði ekki
minnsta áhuga á að komast lifandi
undan. Sú hugmynd að hann hefði farið
að bogra gegnum neðanjarðargöng eða
beygja sig undan byssukúlum Rauða
hersins eða hokrast í kafbáti suður
Atlantshafið til að fara að rækta rad-
ísur í Argentínu, hún lýsir einfaldlega
algjörum vanskilningi á persónu Adolfs
Hitlers.
Hitler var listamaður, fremur en
FLÆKJUSAGA
Illugi Jökulsson las
með athygli
fréttir um að
nýbirt skjöl
FBI gæfu til
kynna að
foringi nas-
ista hefði
komist
undan til
Argentínu.
NÝ FRÉTT SLAPP HITLER LIFANDI?
Á
YouTube-
myndbönd-
unum má sjá
miklar
útleggingar
um leyni-
göng út úr
neðanjarð-
arbyrginu
sem Hitler
og Eva
Braun hafi
getað lúskr-
ast út um en
tvífarar
þeirra
komið í
staðinn, svo
sannfærandi
að meira að
segja fólkið
í byrginu,
sem gjör-
þekkti þau
bæði, varð
ekki vart við
neitt.
GÖTTERDÄMM-
ERUNG Brünnhilde
kastar sér í logana
í lok Ragnaraka.
Þannig sá Hitler sig
fyrir sér.
MIKILVÆG SKJÖL
FRÁ FBI? Plaggið
frá alríkislögregl-
unni bandarísku
er ekki til vitnis
um annað en að
einhvern tíma kom
einhver ruglu dallur
og fabúleraði í eyru
FBI-manna um
dularfullar manna-
ferðir og kafbáta í
stríðslok.
HITLER Í
ARGENTÍNU?
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
2
B
-5
0
5
C
1
6
2
B
-4
F
2
0
1
6
2
B
-4
D
E
4
1
6
2
B
-4
C
A
8
2
8
0
X
4
0
0
4
B
F
B
1
0
4
s
_
2
6
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K