Fréttablaðið - 27.06.2015, Qupperneq 86
27. júní 2015 LAUGARDAGUR| MENNING | 42
New England Conservatory YPO
er ein þekktasta ungsinfóníuhljóm-
sveit heims og hefur á að skipa 90
framúrskarandi tónlistarnemum
á aldrinum 14-18 ára. Hljómsveit-
in heldur ókeypis tónleika í Eld-
borgarsal Hörpu, sunnudaginn 28.
júní kl. 17.00. „Margir af meðlim-
um sveitarinnar hafa síðar orðið
á meðal virtasta tónlistarfólks
heims, en aðeins þeir bestu komast
inn,“ segir Valdimar Hilmarsson,
sem hefur verið að aðstoða hljóm-
sveitina á Íslandi. „Það er ekki oft
sem fólki gefst kostur á að hlusta
á svona frábæra tónleika og ekki
sakar að þeir eru einnig ókeypis,
en fólk verður þó að tryggja sér
miða í gegnum miðasölu Hörpu.“
Á efnisskrá eru verk eftir Chad-
wick, Gandolfi og Rimsky-Kors-
akov ásamt Poeme Op. 25 eftir
Chausson fyrir fiðlu og hljóm-
sveit. Einleikari er Ari Vilhjálms-
son, einn af okkar fremstu fiðlu-
leikurum, en hann gegndi leiðandi
stöðu í hljómsveitinni á námsárum
sínum í Bandaríkjunum. Stjórn-
andi tónleikanna er hinn heims-
þekkti David Loebel.
Hljómsveitin var með tónleika í
Hofi síðastliðinn sunnudag við frá-
bærar undirtektir og tekur einnig
þátt í tónlistarhátíðinni Við Djúpið
á Ísafirði sem fram fer um þessar
mundir.“ - mg
Ungar stjörnur á uppleið
New England Conservatory Youth Philharmonic Orchestra býður á tónleika.
Það er líflegt menningarlíf norðan
heiða í sumar þar sem Menningar-
félag Akureyrar hefur sett saman
metnaðarfulla dagskrá. Gert er ráð
fyrir uppákomum nær alla daga í
sumar og fara þær fram í Menn-
ingarhúsinu Hofi klukkan 14 og 20
flesta daga. Dagskráin ber yfir-
skriftina Menningarsumarið í
Hofi eða Summer Events in Hof og
er í senn ætluð heimamönnum sem
erlendu og innlendu ferðafólki.
Á meðal viðburða er gaman-ein-
leikurinn Let’s talk Arctic en Bene-
dikt Karl Gröndal fer með öll hlut-
verk þeirrar sýningar og bregður
sér meðal annars í gervi Helga
magra og Þórunnar hyrnu, Jóns
Sigurðssonar og annarra frum-
byggja við Eyjafjörð. Leikstjóri er
Jón Páll Eyjólfsson og hann segir
að sýningin sé vissulega sérhönn-
uð fyrir ferðamenn en auðvitað geti
líka verið forvitnilegt fyrir Íslend-
inga að koma og sjá sýningu með
þessum óvenjulega vinkli.
„Let’s talk Arctic er einhvers
konar uppistands-spunasýning sem
er gerð til þess að bæði fræða og
skemmta í senn, svona info-tain-
ment. Sýningin fer fram á ensku
og er vissulega sniðin að þörfum
ferðamanna enda erum við að leit-
ast við að svara ákveðinni þörf sem
þjónustuaðilar í ferðaþjónustunni
á svæðinu hafa verið að kalla eftir.
Að koma með sýningu með þess-
um hætti er vissulega ákveðin til-
raun en við hér á Akureyri erum
að vinna á tólf en ekki níu mán-
aða viðburðaári eins og algengt
er með menningarhús. Það verð-
ur því mikið að gerast í allt sumar
og má þar nefna fjölda tónleika og
annarra listviðburða, við einfald-
lega framleiðum eins mikið og við
getum. En við verðum svo að bíða
og sjá hvernig tekst til með leik-
sýninguna sem tilraun því Bene-
dikt Karl Gröndal leikari, sem
leikur reyndar einn í sýningunni
bróðurpartinn af þeim sem bjuggu
við Eyjafjörðinn lengi vel, verður
keyrður áfram alveg miskunnar-
laust í allt sumar með fimm sýn-
ingum á viku. magnus@frettabladid.is
Engin miskunn í sumar
Í gærkvöldi var frumsýnd ný uppistands-spunasýn-
ing í Hofi í leikstjórn Jóns Páls Eyjólfssonar.
LEIKSTJÓRINN
Jón Páll Eyjólfs-
son leikstýrir
Let’s talk Arctic
sem var frum-
sýnt á Akureyri
í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
TÓNLIST ★★★★★
Lokatónleikar Reykjavík
Midsummer Music
NORÐURLJÓSUM HÖRPU
SUNNUDAGINN 21. JÚNÍ.
Lokatónleikar Reykjavík Mid-
summer Music hófust á svonefndri
Passacagliu eftir Händel í útsetn-
ingu Johans Halvorsen. Passa-
caglia er dansform sem á rætur
sínar að rekja til Spánar á 17. öld.
Anna-Liisa Bezrodny lék á fiðlu en
Jan-Erik Gustafsson á selló. Spila-
mennskan var sérlega flott, allar
hendingar voru nákvæmar, lifandi
og áleitnar.
Ekki síðri var Vorsónatan, þ.e.
sónata nr. 5 eftir Beethoven. Hún
var flutt af Sayaka Shoji á fiðlu
og Víkingi Heiðari Ólafssyni á
píanó. Sónatan er kölluð þessu
nafni vegna þess hve björt hún
er. Stemningin er vongóð og af-
slöppuð. Leikurinn nú var eftir því
draumfagur og þrunginn skáld-
skap. Þetta var einhver fallegasta
túlkun á Vorsónötunni sem ég hef
heyrt – og ég hef heyrt þær marg-
ar!
Eftir hlé var fyrstur á dag-
skránni strengjakvartett nr. 2
eftir Philip Glass. Kvartettinn
var upphaflega saminn fyrir leik-
gerð á Félagsskap Samuels Becket.
Þar segir frá gömlum manni sem
rifjar upp atburði og persónur úr
lífi sínu í næturmyrkrinu þegar
hann getur ekki sofið. Hann er
einmana, en minningarnar veita
honum félagsskap. Tónlist Glass
er hrífandi, þótt hún sé afstrakt
þá er hún full af merkingu sem
samt er ekki hægt að skilgreina
með orðum. Hér var hún leikin af
Sigrúnu Eðvaldsdóttur á fiðlu og
Pauline Sachse á víólu, auk þeirra
Bezrodny og Gustafsson sem fyrr
voru nefnd. Spilamennskan var í
fremstu röð, fínleg áferð tónmáls-
ins var nostursamlega útfærð og
blæbrigðarík.
Síðasta tónsmíðin á efnis-
skránni var píanókvintettinn
eftir Schumann, sem var leikinn
af Shoji, Bezrodny, Sachse, Gust-
afsson og Víkingi. Þetta er eitt
besta verk Schumanns, atburða-
ríkt og kraftmikið, með líflegri
framvindu sem fimmmenningarn-
ir skiluðu til áheyrenda af öryggi
og dirfsku. Samspilið var akkúrat,
nánast eins og fólkið væri búið að
spila saman um árabil. Þetta var
frábær endir á afar skemmtilegri
tónlistarhátíð.
Jónas Sen
NIÐURSTAÐA: Magnaður loka-
hnykkur á Reykjavik Midsummer
Music. Spilamennskan var svo gott
sem fullkomin, verkefnavalið fjöl-
breytt og spennandi.
Magnaðir tónleikar Helgi Þórsson myndlistarmað-ur opnar í Kling og Bang gall-
eríi í dag undir yfirskriftinni
Benelux verkstæðið. Á sýning-
unni gefur að líta fjölbreytta
flóru nýrra verka en Helgi segir
að hann sé mestmegnis að sýna
ný verk að þessu sinni. „Það var
eiginlega búið að aflýsa þessari
sýningu þar sem Kling og Bang
var að fara að flytja en svo dróst
það og þá stökk ég á þetta með
tiltölulega skömmum fyrirvara.
Maður verður að stökkva á tæki-
færin þegar þau láta á sér kræla
og þetta hentaði mér vel þar sem
mig langaði til þess að hafa þetta
aðallega glænýtt.
Verkin sem ég er með eru
mikið til unnin upp úr skissum,
teikningum og einföldum grafík
prentverkum sem ég hef verið að
gera. Svo eru skúlptúrar sem eru
svona soldið í anda fimmta ára-
tugarins, „forties“-inspíreruð.
Málið er að mig langaði til þess
að gera bara svona klassíska
myndlistarsýningu með stöplum
og skúlptúrum og þetta er sold-
ið þannig – nema bara með svona
smá tvisti.
Hluti af því er líka að það eru
þarna ákveðnar sögur sem eru
gegnumgangandi og koma upp
ítrekað í þessum verkum. Eitt
af því sem hafði mikil áhrif á
mig þegar ég var að vinna að
þessum verkum er að á þessum
tíma var ég að skoða bók eftir
Gerði Helgadóttur og að vinna í
járn og steinsteypu á sama tíma
eftir pöntun. Ég kann að vinna í
járn en hef aldrei nýtt þá þekk-
ingu áður. Svo ég var allt í einu
farinn að beygja víra og log-
sjóða og vinna með steinsteypu.
En ég var reyndar að vinna með
myndhöggvarafélaginu. Fór að
vinna með þeim í önnur efni en
ég er vanur til þess að losa um
smá sköpunarstíflu. Stundum
þarf maður líka bara að vinna
og halda áfram ef maður lendir
í stíflu – það getur nefnilega allt-
af gerst og þá er bara að pína sig
áfram.“
Helgi segir að á sýningunni
sé líka ákveðið nýaldarstef sem
hann hafi lengi verið hrifinn af.
„Það eru pælingar og sögur í
þessu nýaldardóti um framtíðar-
sýn og uppruna mannsins og svo-
leiðis. Þetta eru „space“-aðar og
skemmtilegar hugmyndir sem er
gaman að vinna með.“
Yfirskrift sýningarinnar er
Benelux verkstæðið og Helgi
segir að það megi rekja það til
þess að hann sé að flytja til Hol-
lands á næstunni. „Ég á félaga í
myndlistinni sem búa í Belgíu og
er sjálfur menntaður í Hollandi
og er að fara að flytja þangað
aftur með kærustunni núna á
næstunni. Þá fannst mér tilvalið
að þegar þar að kemur þá förum
við í að stofna Benelux-hreyf-
inguna í myndlist. Mér finnst
þetta líka bara svona skemmti-
legt orð: Benelux. Þetta hefur
heillað mig frá því í landafræð-
inni þegar ég var krakki. Vand-
inn við sambandið er að það
vantar Lúxemborg inn í þetta
svo þetta geti talist Benelux. En
planið er eiginlega að þaðan komi
fjárfestarnir og kaupendurnir
enda meira um bankamenn en
myndlistarmenn í Lúxemborg.
En ég var í átta ár í námi á
sínum tíma í Hollandi og hug-
urinn hefur oft leitað þangað í
gegnum tíðina. Svo kom þetta
upp frekar óvænt og það kemur
eflaust bara eitthvað gott og
skemmtilegt út úr því.“
magnus@frettabladid.is
Fjárfestarnir koma
frá Lúxemborg
Helgi Þórsson opnar sýningu í Kling og Bang í dag en á næstunni fl ytur hann til
Hollands þar sem hann hyggst stofna Benelux-samtök myndlistarmanna.
SÖGUR Það eru pælingar og sögur í nýaldardótinu sem ég hef alltaf haft gaman af, segir Helgi Þórsson. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
SKÚLPTÚR Helgi hefur verið að vinna í
járn og steinsteypu.
MENNING
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
2
B
-4
B
6
C
1
6
2
B
-4
A
3
0
1
6
2
B
-4
8
F
4
1
6
2
B
-4
7
B
8
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
1
0
4
s
_
2
6
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K