Fréttablaðið - 27.06.2015, Side 90
27. júní 2015 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 46
Gunnar Leó
Pálsson
gunnarleo@frettabladid.is
The Wolves
are Whisp-
ering
Bang Gang
Evrópa,
Ameríka, Asía
Something
Wrong
Bang Gang
Evrópa, Asía,
Ástralíu.
Ameríka
Tónlistarmaðurinn Barði Jóhannsson hefur margra fjöruna sopið í lífi tónlist-arinnar og unnið að alls kyns verkefnum. Hans meginhugðarefni hefur
þó í gegnum tíðina verið hljóm-
sveitin hans, Bang Gang, en nýj-
asta plata Bang Gang, sem ber tit-
ilinn The Wolves Are Whispering,
kom út á dögunum. Um er að ræða
fyrstu Bang Gang-plötuna með nýju
efni síðan árið 2008.
„Platan er búin að vera ansi lengi
í farvatninu. Ég byrjaði að vinna í
henni fljótlega eftir að Ghosts from
the Past kom út,“ segir Barði. Þó
komu alltaf upp verkefni sem hindr-
uðu það að hann gæti einbeitt sér að
Bang Gang. „Ég var alltaf búinn að
plana að klára hana en þá kom allt-
af eitthvað annað upp. Ég vann eitt-
hvað í henni í þrjá daga en svo ekkert
í fjóra mánuði og jafnvel bara ekkert
í hálft ár. Þó ég hafi tekið tíma frá til
þess að vinna í henni þá kom alltaf
eitthvert annað spennandi verkefni
upp sem gat ekki beðið,“ útskýrir
Barði.
Mixar plötuna sjálfur
Hann ákvað síðasta sumar að eyða
tíma í að klára nýjustu afurðina sína
og er sáttur við afraksturinn. Um er
að ræða fyrstu Bang Gang-plötuna
sem Barði hljóðblandar sjálfur. „Ég
mixaði hana sjálfur en það er eitt-
hvað sem ég hef aldrei gert áður.
Ég hef mixað klassísku verkefnin
mín en aldrei Bang Gang. Það er
til dæmis eitt lag á plötunni sem ég
sem, syng og spila á allt, hingað til
hef ég viljað fá aukaeyru í svoleiðis
aðstæðum en núna fannst mér kom-
inn tími til að taka þetta alla leið
sjálfur. En fyrir vikið hljómar plat-
an nákvæmlega eins og ég vil hafa
hana,“ segir Barði. „Ég var gríð-
arlega lengi að skila henni af mér
því ég vildi vera sáttur. Ég er mjög
ánægður með hana og hefði allavega
ekki geta gert neitt betur.“
Platan er tekin upp í stúdíói sem
Barði á og stýrði hann upptökum
sjálfur og pródúseraði allt, nema tvö
lög sem Arnar Guðjónsson og Blood-
group aðstoðuðu hann við. Hann
segir plötuna vera rökrétt framhald
af fyrri plötum Bang Gang. „Þessi
er aðeins dekkri en Ghosts from
the Past en samt er ég í raun að
fara aftur á bak því það er meira af
elektróník á þessari. Fyrsta platan
var mikið elektró, næsta plata var
blanda af elektró og akústík, svo á
Ghosts from the Past akústík en sú
nýja er svo blanda af öllu þessu.“
Fjögur lög á plötunni semur Barði
með öðrum listamönnum, eitt með
hljómsveitinni Bloodgroup, eitt
með Keren Ann og Bigga Veiru, eitt
lag með Jófríði Ákadóttur úr Sam-
aris og þá syngur og semur Helen
Marnie úr Ladytron eitt lag.
Heillar Kínverja
Ákveðinn draugablær er yfir text-
unum á plötunni og hafði svissnesk-
ur blaðamaður orð á því að tónlistin
og textarnir væru svokallað draum-
kennt draugapopp. „Það er örugg-
lega rétt hjá honum. Það kemur
draugablær fyrir í textunum og
þeir eru frekar þungir. Í textunum
er ég mest að segja hlutina hreint út.
Þeir eru sambland af einhverju sem
maður hefur séð og upplifað en ekki
um eitthvert eitt atvik. Þetta er bara
almenn lýsing á upplifun sem er
samansafn af því sem maður hefur
upplifað um ævina,“ segir Barði um
texta plötunnar.
Barði á sitt eigið fyrirtæki sem
stendur að útgáfu The Wolves Are
Whispering og kemur hún út um
nánast allan heim. „Hún kemur út
í Evrópu, Bandaríkjunum og Kína
og er gefin út af mínu fyrirtæki,
Bang ehf. Ég hef alltaf leigt réttinn
til fyrirtækja úti en í þetta skipti,
þar sem ég er kominn með góð sam-
bönd, ætla ég að gera þetta sjálfur.“
Hann er byrjaður að bóka tón-
leikaferðir víða til að kynna nýju
plötuna og stefnir á að halda útgáfu-
tónleika í Gamla bíói í september.
Að öðrum stöðum ólöstuðum segist
Barði kunna vel við sig í Kína og fá
góðar móttökur þar að jafnaði og
virðist vinsæll þar í landi. „Fólk á
það til að falla í yfirlið í Kína. Síðast
þegar ég var að gefa áritun þar þá
leið yfir einn og það er ekki í fyrsta
skiptið sem það gerist í Kína. Það er
samt skrítið og athyglisvert þegar
fólk grætur og dettur svona út,“
segir Barði léttur í lundu og bætir
við: „Ég skrifa á VISA-kvittanir á
hverjum degi og öllum er sama, svo
þetta er svolítið súrrealískt.“
Dóttirin skemmtilegust
Hann er og hefur ávallt verið mik-
ill vinnuþjarkur, sefur lítið og vinn-
ur eins mikið og hann mögulega
getur. „Ég tók fimmtán ára tímabil
þar sem ég vann út í eitt, svaf eins
lítið og ég mögulega komst upp með.
Mér er mikið í mun að gera hluti vel
og eins að gera hluti sem taldir eru
óhugsandi fyrir einn mann. Mér
hefur tekist það nokkuð vel og náð
að gera margt sem lýtur að prakt-
ískum málum bransans sjálfur og
látið verða af verkefnum sem eru
ópraktísk en mér hefur þótt hress-
andi. Síðustu fimm ár hef ég tekið
frí aðra hverja helgi, þannig að tarn-
irnar eru bara í 10-12 daga í senn.“
Maður með svo mörg verkefni í
gangi hlýtur að þurfa að hlaða batt-
eríin og næra líkama og sál. Hvern-
ig núllstillir þú þig? „Ég geri eitt-
hvað skemmtilegt með dóttur minni,
en hún er skemmtilegasta mann-
eskja í heimi. Svo hef ég stundum
Ghosts
from the
Past
Bang Gang
Evrópu og
Asíu
Lady and
Bird
Lady and
Bird
Á heimsvísu
Häxan
Barði
Jóhannsson
Evrópu og
Kanada
LÍFIÐ
1998
1999
2000
2001
2002
2003
2004
2005
2006
2007
2008
2009
2010
2011
2012
2013
2014
2015
VERK BARÐA
Plötutitill, ár og hvar kom platan út
SAMNINGAR SEM HÖFUNDUR
EMI Publishing | 6 ár 2002-2008
Universal Publishings | 4 ár 2008–2012
You Bang Gang
ísland, EastWest/Warner (FR),
Kórea
De toutes nos forces
(Bande originale du film)
Bardi Johannsson Frakkland
Bang
Gang EP
Bang Gang
Frakkland
Strákarnir okkar (original
soundtrack)
Mínusbarði Ísland
Find What You Get EP
Bang Gang Ameríka
La Ballade of Lady & Bird
A project by Keren Ann
Zeidel & Barði Jóhannsson
Á heimsvísu
Best of Bang Gang
Bang Gang Ísland
Selected Film & Theater
Works Of Bardi Johanns-
son | Barði Jóhannsson
Netútgáfa á heimsvísu
„Sacred Universe EP“
Bardi Johannsson
Netútgáfa á heimsvísu
W Y R
Original
Motion
Picture
Score
Daniel
Hunt &
Bardi Johannsson
Netútgáfa á heimsvísu
“Losers Can Win EP
Starwalker Evrópa og Japan
Hefði ekki getað gert neitt betur
Tónlistarmaðurinn Barði Jóhannsson sendi á dögunum frá sér fj órðu breiðskífu Bang Gang, The Wolves Are Whispering.
Þessi mikli vinnuþjarkur er með mörg járn í eldinum en hleður batteríin með því að gera eitthvað skemmtilegt með dóttur sinni.
Ég geri eitthvað
skemmtilegt með dóttur
minni, en hún er skemmti-
legasta manneskja í heimi.
Svo hef ég stundum tekið
líkamsræktarátök, hef
samt ekki sinnt því sem
skyldi í tvö ár. Fannst mjög
gaman að lyfta. Ef það er
einhver sem er að þjálfa og
langar að massa upp
tónlistarmann, þá er ég til.
ALLS KYNS TÓNLIST
Kvikmyndir og auglýsingar
➜ De Toutes Nos Forces
Frönsk kvikmynd. 700.000 áhorf-
endur í bíó í Frakklandi
➜ Would You Rather
Amerískur tryllir. Ásamt Daniel
Hunt úr hljómsveitinni Ladytron
➜ Auglýsingatónlist
til dæmis fyrir Armani, TVG lest-
irnar, Lancia, Yves Rocher, Citroen,
Gas De France og BankNordik
ÁNÆGÐUR MEÐ ÚTKOMUNA
Barði Jóhannsson var lengi að
skila plötunni af sér því hann
vildi vera sáttur. Þetta er jafn-
framt fyrsta Bang Gang platan
sem hann hljóðblandar sjálfur.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
tekið líkamsræktarsyrpur, hef samt
ekki sinnt því sem skyldi í tvö ár.
Fannst mjög gaman að lyfta. Ef það
er einhver sem er að þjálfa og lang-
ar að massa upp tónlistarmann, þá
er ég til,“ segir Barði sposkur. Þótt
hann hafi ekki haft hátt um það þá
hefur hann gaman af líkamsrækt en
hefur ekki enn fundið tíma til þess
að stunda ræktina af alvöru. Hann
biður stjórnvöld um að lengja sólar-
hringinn, þó það væri ekki nema um
eina klukkustund. „Það væri ekki
verra að hafa 25 eða fleiri klukku-
stundir í sólarhringnum. Maður
þarf ekki að sofa nema í sex til sjö
tíma þannig að ef maður lengir sól-
arhringinn þá getur maður gert
hluti eins og að fara í ræktina,“
segir Barði og hlær.
Flippar ekki í músík
Helstu verkefni sem Barði hefur
unnið við undanfarin ár fyrir utan
Bang Gang eru Starwalker-verk-
efnið en þar vinnur Barði með Jean-
Benoit Dunckel sem er líklega best
þekktur fyrir að vera í hljómsveit-
inni Air. Annað samstarfsverkefni
kallast Lady & Bird þar sem hann
vinnur með Keren Ann en hún
samdi einmitt eitt lag með Barða á
nýju plötunni. „Lady and Bird óper-
an er í vinnslu við að verða teikni-
mynd. Svo er ég að klára klassískt
verk sem ég hef verið að vinna í ein-
hvern tíma þannig að það er alveg
nóg að gera.“
Barði samdi tónlistina við frönsku
kvikmyndina De Toutes Nos Forces
sem fékk um 700.000 manns í bíó í
Frakklandi, eins samdi hann tónlist
fyrir ameríska tryllinn Would You
Rather ásam Daniel Hunt úr hljóm-
sveitinni Ladytron. Þá hefur hann
gert tónlist í margar auglýsingar
eins og fyrir Armani, Citroën, Gas
De France, BankNordik og fleiri.
Fyrir utan öll alvarlegu verk-
efnin sem hann hefur unnið að þá
verður blaðamaður að spyrja hvort
hann þurfi ekki stundum að kúpla
sig út úr alvörunni og hreinlega
flippa smá í tónlistinni. „Ég flippa
ekki. Það eru margir aðrir í því að
flippa og það má alveg. Það má allt
í öllu en svo er bara val hjá hverj-
um og einum hvað hann gerir,“ segir
Barði og hlær. Barði kom einmitt
fram með lagið „Ho, Ho, Ho, We say
Hey, Hey, Hey undir nafninu Merce-
des Club í undankeppni Eurovision
árið 2008. Var það flipp? „Eins og
ég sagði áðan þá flippa ég aldrei,
ég hlæ aldrei og er vampíra,“ segir
Barði alvarlegur.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
2
B
-2
8
D
C
1
6
2
B
-2
7
A
0
1
6
2
B
-2
6
6
4
1
6
2
B
-2
5
2
8
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
1
0
4
s
_
2
6
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K