Fréttablaðið - 27.06.2015, Síða 90

Fréttablaðið - 27.06.2015, Síða 90
27. júní 2015 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 46 Gunnar Leó Pálsson gunnarleo@frettabladid.is The Wolves are Whisp- ering Bang Gang Evrópa, Ameríka, Asía Something Wrong Bang Gang Evrópa, Asía, Ástralíu. Ameríka Tónlistarmaðurinn Barði Jóhannsson hefur margra fjöruna sopið í lífi tónlist-arinnar og unnið að alls kyns verkefnum. Hans meginhugðarefni hefur þó í gegnum tíðina verið hljóm- sveitin hans, Bang Gang, en nýj- asta plata Bang Gang, sem ber tit- ilinn The Wolves Are Whispering, kom út á dögunum. Um er að ræða fyrstu Bang Gang-plötuna með nýju efni síðan árið 2008. „Platan er búin að vera ansi lengi í farvatninu. Ég byrjaði að vinna í henni fljótlega eftir að Ghosts from the Past kom út,“ segir Barði. Þó komu alltaf upp verkefni sem hindr- uðu það að hann gæti einbeitt sér að Bang Gang. „Ég var alltaf búinn að plana að klára hana en þá kom allt- af eitthvað annað upp. Ég vann eitt- hvað í henni í þrjá daga en svo ekkert í fjóra mánuði og jafnvel bara ekkert í hálft ár. Þó ég hafi tekið tíma frá til þess að vinna í henni þá kom alltaf eitthvert annað spennandi verkefni upp sem gat ekki beðið,“ útskýrir Barði. Mixar plötuna sjálfur Hann ákvað síðasta sumar að eyða tíma í að klára nýjustu afurðina sína og er sáttur við afraksturinn. Um er að ræða fyrstu Bang Gang-plötuna sem Barði hljóðblandar sjálfur. „Ég mixaði hana sjálfur en það er eitt- hvað sem ég hef aldrei gert áður. Ég hef mixað klassísku verkefnin mín en aldrei Bang Gang. Það er til dæmis eitt lag á plötunni sem ég sem, syng og spila á allt, hingað til hef ég viljað fá aukaeyru í svoleiðis aðstæðum en núna fannst mér kom- inn tími til að taka þetta alla leið sjálfur. En fyrir vikið hljómar plat- an nákvæmlega eins og ég vil hafa hana,“ segir Barði. „Ég var gríð- arlega lengi að skila henni af mér því ég vildi vera sáttur. Ég er mjög ánægður með hana og hefði allavega ekki geta gert neitt betur.“ Platan er tekin upp í stúdíói sem Barði á og stýrði hann upptökum sjálfur og pródúseraði allt, nema tvö lög sem Arnar Guðjónsson og Blood- group aðstoðuðu hann við. Hann segir plötuna vera rökrétt framhald af fyrri plötum Bang Gang. „Þessi er aðeins dekkri en Ghosts from the Past en samt er ég í raun að fara aftur á bak því það er meira af elektróník á þessari. Fyrsta platan var mikið elektró, næsta plata var blanda af elektró og akústík, svo á Ghosts from the Past akústík en sú nýja er svo blanda af öllu þessu.“ Fjögur lög á plötunni semur Barði með öðrum listamönnum, eitt með hljómsveitinni Bloodgroup, eitt með Keren Ann og Bigga Veiru, eitt lag með Jófríði Ákadóttur úr Sam- aris og þá syngur og semur Helen Marnie úr Ladytron eitt lag. Heillar Kínverja Ákveðinn draugablær er yfir text- unum á plötunni og hafði svissnesk- ur blaðamaður orð á því að tónlistin og textarnir væru svokallað draum- kennt draugapopp. „Það er örugg- lega rétt hjá honum. Það kemur draugablær fyrir í textunum og þeir eru frekar þungir. Í textunum er ég mest að segja hlutina hreint út. Þeir eru sambland af einhverju sem maður hefur séð og upplifað en ekki um eitthvert eitt atvik. Þetta er bara almenn lýsing á upplifun sem er samansafn af því sem maður hefur upplifað um ævina,“ segir Barði um texta plötunnar. Barði á sitt eigið fyrirtæki sem stendur að útgáfu The Wolves Are Whispering og kemur hún út um nánast allan heim. „Hún kemur út í Evrópu, Bandaríkjunum og Kína og er gefin út af mínu fyrirtæki, Bang ehf. Ég hef alltaf leigt réttinn til fyrirtækja úti en í þetta skipti, þar sem ég er kominn með góð sam- bönd, ætla ég að gera þetta sjálfur.“ Hann er byrjaður að bóka tón- leikaferðir víða til að kynna nýju plötuna og stefnir á að halda útgáfu- tónleika í Gamla bíói í september. Að öðrum stöðum ólöstuðum segist Barði kunna vel við sig í Kína og fá góðar móttökur þar að jafnaði og virðist vinsæll þar í landi. „Fólk á það til að falla í yfirlið í Kína. Síðast þegar ég var að gefa áritun þar þá leið yfir einn og það er ekki í fyrsta skiptið sem það gerist í Kína. Það er samt skrítið og athyglisvert þegar fólk grætur og dettur svona út,“ segir Barði léttur í lundu og bætir við: „Ég skrifa á VISA-kvittanir á hverjum degi og öllum er sama, svo þetta er svolítið súrrealískt.“ Dóttirin skemmtilegust Hann er og hefur ávallt verið mik- ill vinnuþjarkur, sefur lítið og vinn- ur eins mikið og hann mögulega getur. „Ég tók fimmtán ára tímabil þar sem ég vann út í eitt, svaf eins lítið og ég mögulega komst upp með. Mér er mikið í mun að gera hluti vel og eins að gera hluti sem taldir eru óhugsandi fyrir einn mann. Mér hefur tekist það nokkuð vel og náð að gera margt sem lýtur að prakt- ískum málum bransans sjálfur og látið verða af verkefnum sem eru ópraktísk en mér hefur þótt hress- andi. Síðustu fimm ár hef ég tekið frí aðra hverja helgi, þannig að tarn- irnar eru bara í 10-12 daga í senn.“ Maður með svo mörg verkefni í gangi hlýtur að þurfa að hlaða batt- eríin og næra líkama og sál. Hvern- ig núllstillir þú þig? „Ég geri eitt- hvað skemmtilegt með dóttur minni, en hún er skemmtilegasta mann- eskja í heimi. Svo hef ég stundum Ghosts from the Past Bang Gang Evrópu og Asíu Lady and Bird Lady and Bird Á heimsvísu Häxan Barði Jóhannsson Evrópu og Kanada LÍFIÐ 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 VERK BARÐA Plötutitill, ár og hvar kom platan út SAMNINGAR SEM HÖFUNDUR EMI Publishing | 6 ár 2002-2008 Universal Publishings | 4 ár 2008–2012 You Bang Gang ísland, EastWest/Warner (FR), Kórea De toutes nos forces (Bande originale du film) Bardi Johannsson Frakkland Bang Gang EP Bang Gang Frakkland Strákarnir okkar (original soundtrack) Mínusbarði Ísland Find What You Get EP Bang Gang Ameríka La Ballade of Lady & Bird A project by Keren Ann Zeidel & Barði Jóhannsson Á heimsvísu Best of Bang Gang Bang Gang Ísland Selected Film & Theater Works Of Bardi Johanns- son | Barði Jóhannsson Netútgáfa á heimsvísu „Sacred Universe EP“ Bardi Johannsson Netútgáfa á heimsvísu W Y R Original Motion Picture Score Daniel Hunt & Bardi Johannsson Netútgáfa á heimsvísu “Losers Can Win EP Starwalker Evrópa og Japan Hefði ekki getað gert neitt betur Tónlistarmaðurinn Barði Jóhannsson sendi á dögunum frá sér fj órðu breiðskífu Bang Gang, The Wolves Are Whispering. Þessi mikli vinnuþjarkur er með mörg járn í eldinum en hleður batteríin með því að gera eitthvað skemmtilegt með dóttur sinni. Ég geri eitthvað skemmtilegt með dóttur minni, en hún er skemmti- legasta manneskja í heimi. Svo hef ég stundum tekið líkamsræktarátök, hef samt ekki sinnt því sem skyldi í tvö ár. Fannst mjög gaman að lyfta. Ef það er einhver sem er að þjálfa og langar að massa upp tónlistarmann, þá er ég til. ALLS KYNS TÓNLIST Kvikmyndir og auglýsingar ➜ De Toutes Nos Forces Frönsk kvikmynd. 700.000 áhorf- endur í bíó í Frakklandi ➜ Would You Rather Amerískur tryllir. Ásamt Daniel Hunt úr hljómsveitinni Ladytron ➜ Auglýsingatónlist til dæmis fyrir Armani, TVG lest- irnar, Lancia, Yves Rocher, Citroen, Gas De France og BankNordik ÁNÆGÐUR MEÐ ÚTKOMUNA Barði Jóhannsson var lengi að skila plötunni af sér því hann vildi vera sáttur. Þetta er jafn- framt fyrsta Bang Gang platan sem hann hljóðblandar sjálfur. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR tekið líkamsræktarsyrpur, hef samt ekki sinnt því sem skyldi í tvö ár. Fannst mjög gaman að lyfta. Ef það er einhver sem er að þjálfa og lang- ar að massa upp tónlistarmann, þá er ég til,“ segir Barði sposkur. Þótt hann hafi ekki haft hátt um það þá hefur hann gaman af líkamsrækt en hefur ekki enn fundið tíma til þess að stunda ræktina af alvöru. Hann biður stjórnvöld um að lengja sólar- hringinn, þó það væri ekki nema um eina klukkustund. „Það væri ekki verra að hafa 25 eða fleiri klukku- stundir í sólarhringnum. Maður þarf ekki að sofa nema í sex til sjö tíma þannig að ef maður lengir sól- arhringinn þá getur maður gert hluti eins og að fara í ræktina,“ segir Barði og hlær. Flippar ekki í músík Helstu verkefni sem Barði hefur unnið við undanfarin ár fyrir utan Bang Gang eru Starwalker-verk- efnið en þar vinnur Barði með Jean- Benoit Dunckel sem er líklega best þekktur fyrir að vera í hljómsveit- inni Air. Annað samstarfsverkefni kallast Lady & Bird þar sem hann vinnur með Keren Ann en hún samdi einmitt eitt lag með Barða á nýju plötunni. „Lady and Bird óper- an er í vinnslu við að verða teikni- mynd. Svo er ég að klára klassískt verk sem ég hef verið að vinna í ein- hvern tíma þannig að það er alveg nóg að gera.“ Barði samdi tónlistina við frönsku kvikmyndina De Toutes Nos Forces sem fékk um 700.000 manns í bíó í Frakklandi, eins samdi hann tónlist fyrir ameríska tryllinn Would You Rather ásam Daniel Hunt úr hljóm- sveitinni Ladytron. Þá hefur hann gert tónlist í margar auglýsingar eins og fyrir Armani, Citroën, Gas De France, BankNordik og fleiri. Fyrir utan öll alvarlegu verk- efnin sem hann hefur unnið að þá verður blaðamaður að spyrja hvort hann þurfi ekki stundum að kúpla sig út úr alvörunni og hreinlega flippa smá í tónlistinni. „Ég flippa ekki. Það eru margir aðrir í því að flippa og það má alveg. Það má allt í öllu en svo er bara val hjá hverj- um og einum hvað hann gerir,“ segir Barði og hlær. Barði kom einmitt fram með lagið „Ho, Ho, Ho, We say Hey, Hey, Hey undir nafninu Merce- des Club í undankeppni Eurovision árið 2008. Var það flipp? „Eins og ég sagði áðan þá flippa ég aldrei, ég hlæ aldrei og er vampíra,“ segir Barði alvarlegur. 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 1 F B 1 0 4 s _ P 1 0 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 9 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 2 B -2 8 D C 1 6 2 B -2 7 A 0 1 6 2 B -2 6 6 4 1 6 2 B -2 5 2 8 2 8 0 X 4 0 0 1 B F B 1 0 4 s _ 2 6 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.