Fréttablaðið - 19.06.2015, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 19.06.2015, Blaðsíða 8
19. júní 2015 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 8 BANDARÍKIN Rúmlega tvítugur maður myrti í fyrrakvöld níu manns, sex karla og þrjár konur, í kirkju í borginni Charleston í Suður-Karól- ínu. Lögreglan segir augljóst að kyn- þáttahatur hafi búið að baki. Morð- inginn var hvítur en hin myrtu dökk á hörund. Kirkjan er ein af elstu kirkjum þeldökkra í Bandaríkjunum og á sér merkilega sögu. Meðal hinna látnu var prestur kirkjunnar, Clementa Pinckney, sem einnig var öldunga- deildarþingmaður á ríkisþinginu í Suður-Karólínu. Átta manns létust á vettvangi en fjórir til viðbótar voru fluttir á sjúkrahús og lést einn þeirra á sjúkrahúsi stuttu síðar. Árásarmaðurinn heitir Dylann Storm Roof og er 21 árs gamall. Að sögn Reuters-fréttastofunnar fékk hann byssu frá föður sínum í afmælis gjöf þegar hann varð 21 árs í apríl síðastliðnum. Hann flúði af vettvangi og hófst þegar viðamikil leit að honum. Lögreglan hafði svo hendur í hári hans tæpum sólar- hring síðar í bænum Shelby, um það bil 300 kílómetrum austur af Charl- eston, rétt norðan landamæra Suður- Karólínu. Fréttastofa bandarísku sjón- varpsstöðvarinnar NBC ræddi við fólk sem lifði af skotárásina í kirkj- unni. Það sagði Roof hafa komið inn í kirkjuna þegar fræðslufundur var að hefjast, spurt eftir prestinum og sest við hliðina á honum. Þegar fundinum lauk tók hann upp byssuna, stóð upp og tilkynnti að hann væri þangað kominn til að skjóta svart fólk, og hóf skothríð. Að sögn vitna hlóð hann byssuna fimm sinnum áður en hann hætti og yfirgaf kirkjuna. „Ég verð að gera þetta,“ segir við- mælandi NBC að Roof hafi sagt, þegar reynt var að fá hann ofan af því að skjóta fleiri. „Þið nauðgið kon- unum okkar og eruð að taka völdin í landinu. Og þið verðið að fara.“ Roof er sagður hafa verið rólyndis- piltur en á Facebook-síðu hans er mynd af honum í jakka með fána- merkjum aðskilnaðarstjórnanna í Suður-Afríku og Ródesíu, sem nú heitir Simbabve. Athygli vekur að margir Facebook-vina hans eru þel- dökkir. Kirkjan í Charleston er elsta kirkja Afrísku meþódistakirkjunnar í Suðurríkjum Bandaríkjanna. Hún var stofnuð árið 1791 af hópi svartra manna, bæði frjálsra og þræla. Kirkjan brann 95 árum síðar en var endurreist á 100 ára afmælinu, árið 1891. gudsteinn@frettabladid.is Ármúla 30 | 108 Reyk jav í k | S ími 560 1600 | w w w.borgun. is Í tilefni af kvennafrídeginum og 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna verður lokað hjá okkur í Borgun í dag frá kl. 12:00. Til hamingju með daginn! Allar starfsstöðvar og þjónustuver ríkisskattstjóra verða lokaðar frá kl. 12 í dag í samræmi við tilmæli ríkisstjórnar Íslands vegna 19. júní. Viðskiptavinum er bent á að gagnlegar upplýsingar er að finna á rsk.is og skattur.is. Ríkisskattstjóri - lokað - Samkvæmt tölum frá Bandarísku alríkislögreglunni eru fjöldamorð með skotvopnum framin í Bandaríkjunum á fárra vikna fresti. Á árunum 2000 til 2013 voru 160 fjöldamorð framin í Bandaríkjunum, sem kostuðu rúmlega þúsund manns lífið. Tíðni fjöldamorða í Bandaríkjunum hefur hækkað, úr 6,4 á ári fyrstu sjö ár tímabilsins í 16,4 á ári seinni sjö árin. Flest fjöldamorðin hafa verið framin í verslunum eða verslunarmiðstöðvum, en næstflest í skólum. Að minnsta kosti tvisvar á síðustu árum hafa verið framin fjöldamorð í trúarhúsum: Í ágúst 2012 voru framin fjöldamorð í hofi síkha í Wisconsin, en í apríl 2014 í bænahúsi gyðinga í Kansas City. FJÖLDAMORÐ Á FÁRRA VIKNA FRESTI Fékk skotvopnið í afmælisgjöf Kynþáttahatur bjó að baki þegar Dylann Storm Roof myrti níu manns, sex konur og þrjá karla, í kirkju í borginni Charleston í Suður- Karólínu. Roof hafðist við í kirkjunni í um klukkustund áður en hann hóf skothríð. Sagðist vera þangað kominn til að skjóta svart fólk. DYLANN STORM ROOF Á jakka ódæðismannsins má sjá fána tveggja fyrrverandi aðskilnaðarríkja í Afríku. NORDICPHOTOS/AFP SOUTH CAROLINA 125 miles 200km Charleston, Jun 17, 9pm: Gunman opens fire inside church. White male suspect at large Washington Charleston ndaríkianB Mexikó- flói Atlants- hafið Suður- Karólína HATURSMORÐ Í KIRKJU Hvítur maður myrti á miðvikudags- kvöld níu manns í kirkju í Charleston 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 2 F B 0 6 4 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 3 2 -3 3 0 C 1 6 3 2 -3 1 D 0 1 6 3 2 -3 0 9 4 1 6 3 2 -2 F 5 8 2 8 0 X 4 0 0 7 B F B 0 6 4 s _ 1 8 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.