Fréttablaðið - 19.06.2015, Side 18

Fréttablaðið - 19.06.2015, Side 18
19. júní 2015 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 18 Björt framtíð myndi ekki ná kjörn- um manni á Alþingi ef kosið yrði nú. Þetta sýna niðurstöður nýrrar könnunar Fréttablaðsins. Flokkur- inn fengi 3,3 prósent atkvæða. Píratar yrðu langstærsti flokkur- inn og fengju 37,5 prósent atkvæða. Þeir myndu fá 26 þingmenn kjörna. Sjálfstæðisflokkurinn yrði næst- stærsti flokkurinn á þingi, fengi 29,5 prósent og 20 þingmenn kjörna. Það er einum þingmanni meira en flokkurinn fékk kjörna í síðustu alþingiskosningum. Brynhildur Pétursdóttir, vara- formaður þingflokks Bjartrar framtíðar, segir að niðurstöðurnar komi sér á óvart. Hún bendir á að þegar best lét hafi flokkurinn farið nærri 20 prósenta fylgi í könnun- um. Ekki sé endilega hægt að gera ráð fyrir að slíkt fylgi haldist. „En mér hefði fundist að við ættum að geta hangið í kjörfylgi og frekar bætt í. Þannig að mér finnst þetta vera áhyggjuefni,“ segir hún. Tvö ný framboð náðu kjörnum þingmönnum í síðustu kosningum. Það voru Björt framtíð og Pírat- ar. Fyrrnefndi flokkurinn fékk 8,3 prósent atkvæða en sá síðar- nefndi fékk 5,1 prósent. Fylgi þess- ara tveggja framboða í könnunum hefur þróast með mjög ólíku móti á þessu ári. Á meðan Píratar bæta við sig fylgi minnkar fylgið við Bjarta framtíð. Í könnun Fréttablaðsins í nóvem- ber á síðasta ári voru Píratar með 9,2 prósenta fylgi, en Björt fram- tíð með 12,5 prósent. Eftir áramót fór fylgi Píratanna svo að aukast og hefur vaxið umtalsvert á milli kannana. Í könnun Fréttablaðsins 18. og 19. mars var Björt framtíð með 9 prósenta fylgi en Píratar með 29,1 prósent. „Píratar eru klárlega að taka fylgi af okkur og öllum væntan- lega,“ segir Brynhildur. Hún segir að þeir sem eru ósáttir við stefnu ríkisstjórnarflokkanna og ættu kannski að sjá Bjarta framtíð sem valkost geri það einhverra hluta vegna ekki. „Og það er auð vitað áhyggjuefni,“ segir hún. Það sé augljóst að Björt framtíð nái ekki að koma því til skila sem flokkur- inn sé að gera. Samkvæmt niðurstöðum skoð- anakönnunarinnar yrði ekki mynd- uð tveggja flokka stjórn án Pírata. Í fyrsta sinn mælast þeir nú með það mikið fylgi að þeir gætu valið sér tvenns konar tveggja flokka stjórn. Ef þeir kysu að mynda meiri- hluta með Sjálfstæðisflokknum yrði það 46 manna meirihluti. Ef þeir kysu að mynda meirihluta með Samfylkingunni yrði það 33 manna meirihluti. Þingmenn eru 63 og því getur minnsti mögulegi þingmeirihluti verið skipaður 32 þingmönnum. Þingflokkum myndi fækka um einn Ný könnun Fréttablaðsins sýnir að Björt framtíð fengi engan mann kjörinn ef kosið yrði til Alþingis nú. Píratar bæta enn við sig fylgi og fengju 26 þingmenn kjörna. Miðað við niðurstöður gætu Píratarnir valið að mynda stjórn með Sjálfstæðisflokknum eða Samfylkingunni. En mér hefði fundist að við ættum að geta hangið í kjörfylgi og frekar bætt í. Þannig að mér finnst þetta vera áhyggju- efni. Brynhildur Pétursdóttir, varaformaður þingsflokks Bjartrar framtíðar. Jón Hákon Halldórsson jonhakon@frettabladid.is ➜ Yrði þetta niðurstaða kosninga væri möguleiki á að mynda tvenns konar tveggja flokka stjórnir. HEILDARSKIPTING ÞINGSÆTA Könnun 15. og 16. júní Kosningar 2013 SVONA SKIPTIST FYLGIÐ MILLI FLOKKA Framsókn Sjálfstæðisfl. Björt framtíð Samfylkingin Vinstri græn Píratar Kosningar Könnun 18 og 19. mars Könnun 15. og 16. júní Kosningar Könnun 15. og 16. júní 0 1 2 3 3 3 3 3 1 3 2 3 1 2 2 0 0 1 2 3 2 2 1 2 2 2 22 1 1 1 1 1 2 1 1 1 00 00 0 0 0 00 0 1 1 1 1 1 11 1 1 3 111 SKIPTING ÞINGSÆTA EFTIR KJÖRDÆMUM Norðvestur Suður Reykjavík suður NorðausturSuðvesturReykjavík norður 4 4 4 4 4 4 5 5 annað 2, 80 % 1, 70 % 9, 00 % 3, 30 % 8, 25 % 8, 50 % 11 ,6 0% 24 ,4 3% 29 ,5 0% 23 ,4 0% 26 ,7 0% 11 ,1 0% 16 ,3 0% 12 ,8 5% 7, 30 %9, 00 %10 ,8 7% 37 ,5 0% 29 ,1 0% 5, 10 % 4 1 6 6 vi km ör k 1, 24 % vi km ör k 1, 93 % vi km ör k 3, 16 % vi km ör k 2, 18 % vi km ör k 1, 80 % vi km ör k 3, 35 % 26 5 20 5 7 SKIPTING ÞINGSÆTA Hringt var í 1.249 manns þar til náðist í 800 manns samkvæmt lagskiptu úrtaki dagana 15. og 16. júní. Svarhlutfallið var 64,1 prósent. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni, og hlutfallslega eftir búsetu og aldri. Spurt var: Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til þingkosninga í dag? Ef ekki fékkst svar var spurt: Hvaða flokk er líklegast að þú myndir kjósa? Ef ekki fékkst svar var spurt Er líklegra að þú myndir kjósa Sjálfstæðisflokkinn, eða einhvern annan flokk? Það er gert í samræmi við aðferðafræði sem þróuð var á Félagsvísindastofnun Háskóla Ís- lands. Alls tóku 59,4 prósent þeirra sem náðist í afstöðu til spurningarinnar. ÓÁNÆGJA Á AUSTURVELLI Hópur fólks lét óánægju sína í ljós í umdeildum mótmælum á þjóðhátíðardaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/LVP ➜ Um aðferðafræði könnunarinnar 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 2 F B 0 6 4 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 3 1 -6 8 9 C 1 6 3 1 -6 7 6 0 1 6 3 1 -6 6 2 4 1 6 3 1 -6 4 E 8 2 8 0 X 4 0 0 2 B F B 0 6 4 s _ 1 8 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.