Fréttablaðið - 19.06.2015, Blaðsíða 18
19. júní 2015 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 18
Björt framtíð myndi ekki ná kjörn-
um manni á Alþingi ef kosið yrði
nú. Þetta sýna niðurstöður nýrrar
könnunar Fréttablaðsins. Flokkur-
inn fengi 3,3 prósent atkvæða.
Píratar yrðu langstærsti flokkur-
inn og fengju 37,5 prósent atkvæða.
Þeir myndu fá 26 þingmenn kjörna.
Sjálfstæðisflokkurinn yrði næst-
stærsti flokkurinn á þingi, fengi
29,5 prósent og 20 þingmenn
kjörna. Það er einum þingmanni
meira en flokkurinn fékk kjörna í
síðustu alþingiskosningum.
Brynhildur Pétursdóttir, vara-
formaður þingflokks Bjartrar
framtíðar, segir að niðurstöðurnar
komi sér á óvart. Hún bendir á að
þegar best lét hafi flokkurinn farið
nærri 20 prósenta fylgi í könnun-
um. Ekki sé endilega hægt að gera
ráð fyrir að slíkt fylgi haldist. „En
mér hefði fundist að við ættum að
geta hangið í kjörfylgi og frekar
bætt í. Þannig að mér finnst þetta
vera áhyggjuefni,“ segir hún.
Tvö ný framboð náðu kjörnum
þingmönnum í síðustu kosningum.
Það voru Björt framtíð og Pírat-
ar. Fyrrnefndi flokkurinn fékk
8,3 prósent atkvæða en sá síðar-
nefndi fékk 5,1 prósent. Fylgi þess-
ara tveggja framboða í könnunum
hefur þróast með mjög ólíku móti
á þessu ári. Á meðan Píratar bæta
við sig fylgi minnkar fylgið við
Bjarta framtíð.
Í könnun Fréttablaðsins í nóvem-
ber á síðasta ári voru Píratar með
9,2 prósenta fylgi, en Björt fram-
tíð með 12,5 prósent. Eftir áramót
fór fylgi Píratanna svo að aukast
og hefur vaxið umtalsvert á milli
kannana. Í könnun Fréttablaðsins
18. og 19. mars var Björt framtíð
með 9 prósenta fylgi en Píratar
með 29,1 prósent.
„Píratar eru klárlega að taka
fylgi af okkur og öllum væntan-
lega,“ segir Brynhildur. Hún segir
að þeir sem eru ósáttir við stefnu
ríkisstjórnarflokkanna og ættu
kannski að sjá Bjarta framtíð sem
valkost geri það einhverra hluta
vegna ekki. „Og það er auð vitað
áhyggjuefni,“ segir hún. Það sé
augljóst að Björt framtíð nái ekki
að koma því til skila sem flokkur-
inn sé að gera.
Samkvæmt niðurstöðum skoð-
anakönnunarinnar yrði ekki mynd-
uð tveggja flokka stjórn án Pírata.
Í fyrsta sinn mælast þeir nú með
það mikið fylgi að þeir gætu valið
sér tvenns konar tveggja flokka
stjórn.
Ef þeir kysu að mynda meiri-
hluta með Sjálfstæðisflokknum
yrði það 46 manna meirihluti. Ef
þeir kysu að mynda meirihluta
með Samfylkingunni yrði það 33
manna meirihluti. Þingmenn eru
63 og því getur minnsti mögulegi
þingmeirihluti verið skipaður 32
þingmönnum.
Þingflokkum myndi fækka um einn
Ný könnun Fréttablaðsins sýnir að Björt framtíð fengi engan mann kjörinn ef kosið yrði til Alþingis nú. Píratar bæta enn við sig fylgi og
fengju 26 þingmenn kjörna. Miðað við niðurstöður gætu Píratarnir valið að mynda stjórn með Sjálfstæðisflokknum eða Samfylkingunni.
En mér
hefði fundist
að við ættum
að geta hangið
í kjörfylgi og
frekar bætt í.
Þannig að mér
finnst þetta vera áhyggju-
efni.
Brynhildur Pétursdóttir, varaformaður
þingsflokks Bjartrar framtíðar.
Jón Hákon
Halldórsson
jonhakon@frettabladid.is
➜ Yrði þetta
niðurstaða
kosninga væri
möguleiki á
að mynda
tvenns konar
tveggja flokka
stjórnir.
HEILDARSKIPTING ÞINGSÆTA
Könnun 15. og 16. júní
Kosningar 2013
SVONA SKIPTIST FYLGIÐ MILLI FLOKKA
Framsókn
Sjálfstæðisfl.
Björt framtíð
Samfylkingin
Vinstri græn
Píratar
Kosningar
Könnun 18 og 19. mars
Könnun 15. og 16. júní
Kosningar Könnun 15. og 16. júní
0
1
2
3 3 3
3
3
1
3
2
3
1
2 2
0 0
1
2
3
2 2
1
2 2 2 22
1 1 1 1 1
2
1 1 1
00 00 0 0 0 00 0
1 1 1 1 1 11 1 1
3
111
SKIPTING ÞINGSÆTA EFTIR KJÖRDÆMUM
Norðvestur Suður Reykjavík suður NorðausturSuðvesturReykjavík norður
4 4 4 4 4 4
5 5
annað
2,
80
%
1,
70
%
9,
00
%
3,
30
%
8,
25
%
8,
50
%
11
,6
0%
24
,4
3%
29
,5
0%
23
,4
0%
26
,7
0%
11
,1
0%
16
,3
0%
12
,8
5%
7,
30
%9,
00
%10
,8
7%
37
,5
0%
29
,1
0%
5,
10
%
4
1
6 6
vi
km
ör
k
1,
24
%
vi
km
ör
k
1,
93
%
vi
km
ör
k
3,
16
%
vi
km
ör
k
2,
18
%
vi
km
ör
k
1,
80
%
vi
km
ör
k
3,
35
%
26
5
20
5 7
SKIPTING ÞINGSÆTA
Hringt var í 1.249 manns þar til náðist í
800 manns samkvæmt lagskiptu úrtaki
dagana 15. og 16. júní. Svarhlutfallið
var 64,1 prósent. Þátttakendur voru
valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá.
Svarendur skiptust jafnt eftir kyni, og
hlutfallslega eftir búsetu og aldri. Spurt
var: Hvaða lista myndir þú kjósa ef
gengið yrði til þingkosninga í dag? Ef
ekki fékkst svar var spurt: Hvaða flokk
er líklegast að þú myndir kjósa? Ef ekki
fékkst svar var spurt Er líklegra að þú
myndir kjósa Sjálfstæðisflokkinn, eða
einhvern annan flokk? Það er gert í
samræmi við aðferðafræði sem þróuð
var á Félagsvísindastofnun Háskóla Ís-
lands. Alls tóku 59,4 prósent þeirra sem
náðist í afstöðu til spurningarinnar.
ÓÁNÆGJA Á AUSTURVELLI Hópur fólks lét óánægju sína í ljós í umdeildum mótmælum á þjóðhátíðardaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/LVP
➜ Um aðferðafræði
könnunarinnar
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
1
-6
8
9
C
1
6
3
1
-6
7
6
0
1
6
3
1
-6
6
2
4
1
6
3
1
-6
4
E
8
2
8
0
X
4
0
0
2
B
F
B
0
6
4
s
_
1
8
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K