Fréttablaðið - 16.06.2015, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 16.06.2015, Blaðsíða 4
16. júní 2015 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4 SPURNING DAGSINS Héraðsskólinn að Núpi Dýrafirði 1907-1992 Kæru fyrrverandi nemendur, kennarar og starfsfólk. Nú fer að koma að tímamótum, 110 ár frá stofnun Núpsskóla. Til stendur að gefa út bók af því tilefni og að eiga endurfundi á Núpi Jóns- messuhelgina 2017. Undirbúningur er hafinn í höndum stjórnar Holl- vina Núpsskóla. Við hvetjum ykkur til að gerast Hollvinir Núpsskóla og senda upp- lýsingar á póstfangið nupsskoli@nupsskoli.is með kennitölu, nafni, heimilisfangi og netfangi, svo við getum sent ykkur fréttabréf og nánari upplýsingar. Með bestu kveðju. Stjórn Hollvina Núpsskóla Dagur, þarf að fara fram mat á Hlemmi? Já, ef við viljum að markaðurinn hafi eitthvert kjöt á beinunum. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sér fyrir sér að matarmarkaður rísi á Hlemmi innan tíðar. Auglýst verður eftir rekstraraðilum á Hlemmi á næstunni. BYGGÐAMÁL Lagt er til að Gríms- ey verði gefinn 400 tonna byggðakvóti, að ferjusigling- um verði fjölgað umtalsvert sem og áætlunar flugi, húshitun í eynni verði endurbyggð sem og að Íslands- banki afskrifi vaxtakostnað og endursemji um lán við sjávar- útvegsfyrirtæki í eynni. Beinn kostnaður hins o pi nb er a a f þessum hug- my n d u m e r áætlaður í kringum fimm hund- ruð milljónir króna. Aðgerðahópur um að hjálpa atvinnulífi og byggð í Grímsey leggur þessa tillögu á borð for- sætisráðherra. Í hópnum sátu Höskuldur Þórhallsson og Stein- grímur J. Sigfússon sem þing- menn kjördæmisins, Ingi Björns- son og John Júlíus Cariglia frá Íslandsbanka, Þorvaldur Lúðvíks Sigurjónsson frá Atvinnuþróun- arfélagi Eyjafjarðar og lögmaður útgerðar aðila. Fulltrúi Akureyrar var Matthías Rögnvaldsson, for- seti bæjarstjórnar. Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri Akureyrar, segir það skipta miklu máli að ná lausn á þeim vanda sem byggð í Grímsey stendur frammi fyrir. „Búseta í eynni á sér um 800 ára sögu og ég trúi því að allir Íslendingar vilji viðhalda byggð í eynni. Það er einnig ljóst að allir þeir aðilar sem koma að borðinu þurfa að leggja sitt af mörkum til þess að það tak- mark náist,“ segir Eiríkur Björn. Lagt er til að Grímsey fái 400 tonna byggðakvóta og að Byggða- stofnun og ráðuneyti atvinnu- mála móti reglur um hvernig veiðiheimildir nýtist sem best til að styrkja veiðar og vinnslu í Grímsey. Kvótinn er metinn á um 160 milljónir króna. Einnig er lagt til að innanrík- isráðuneytið leggi til fjárveit- ingu til að fjölga ferðum Sæfara sem siglir milli lands og eyjar allt árið um kring og að fjölga flugferðum milli Akureyrar og Grímseyjar. Í þriðja lagi er lagt til að haf- inn verði undirbúningur að því að byggja upp hitaveitu í Gríms- ey sem mun kosta um 80 milljón- ir króna. Í fjórða lagi er lagt til að Akur- eyrarbær og Byggðastofnun starfi saman með málefni Gríms- eyjar og að fleiri tækifæri verði skoðuð fyrir byggð í eynni. Matthías Rögnvaldsson segir vinnuna hafa gengið ágætlega. „Við í nefndinni skoðuðum til að mynda styrki við ferjuflutninga til Vestmannaeyja og við erum í raun að setja fram sams konar tillög- ur og er verið að vinna með þar,“ segir Matthías. sveinn@frettabladid.is Vilja bráðaaðgerðir til bjargar byggð í Grímsey Aðgerðahópur um að bjarga byggð í Grímsey hefur sent forsætisráðherra bréf með tillögum sem gætu rennt stoðum undir byggð í eynni. Lögð er til fjölgun ferju- og flugferða, bætt kynding og byggðakvóti handa Grímsey. EIRÍKUR BJÖRN BJÖRGVINSSON BROTHÆTT BYGGÐ Ef ekkert verður að gert er líklegt að byggð í Grímsey leggist af á næstu árum. Fyrirtæki eru yfirskuldsett og þurfa aðstoð. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Við í nefndinni skoðuðum til að mynda styrki við ferju- flutninga til Vestmanna eyja og við erum í raun að setja fram sams konar tillögur. Matthías Rögnvaldsson, forseti bæjarstjórnar á Akureyri KJARAMÁL Yfir fjörutíu hjúkrunarfræðingar á Land- spítalanum sögðu upp störfum í dag. Mikil ólga er meðal þeirra vegna lagasetningar á verkfall. „Við höfum fengið staðfest og skjalfest 42 upp- sagnarbréf í dag. Það bætist við 21 uppsögn sem áður var komin frá geislafræðing- um, og það kann að vera að fleiri séu á leiðinni,“ sagði Páll Matthías- son, forstjóri Landspítalans, í við- tali við fréttastofu í gær. Fjöldi hjúkrunarfræðinga til við- bótar er sagður íhuga að segja upp störfum, vegna lagasetningarinnar á verkfall þeirra. „Ég mun skila inn uppsögn. Ég er alveg ákveðin í því,“ segir Hrönn Hreiðars dóttir svæfingarhjúkrunar fræðingur. „Maður finnur það að fólk er reitt,“ segir Vigdís Árnadóttir skurðhjúkrunarfræðingur. Páll segir mikið áhyggjuefni ef allar uppsagnirn- ar koma til með að standa. „Það er náttúrulega bara nokkuð sem ég vil ekki hugsa um,“ segir Páll. „Við megum engan mann missa og ég held að við eigum ekki að ganga út frá því að allt þetta frábæra starfs- fólk hætti, heldur að ganga út frá því að fundin verði lausn og sátt. Þannig að allt okkar góða starfs- fólk geti áfram unnið að uppbyggingu heilbrigðis- kerfisins.“ - lvp PÁLL MATTHÍAS- SON MÓTMÆLI Hjúkrunarfræðingar og félagsfólk BHM mótmælti á Austurvelli á föstudag. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Við megum engan mann missa, segir Páll Matthíasson, forstjóri LSH: Á fimmta tug sögðu upp í gær SAKAMÁL Höggmynd Steinunnar Þórarinsdóttur sem stolið var í síð- ustu viku í Kaupmannahöfn fannst á svölum íbúðar í borginni á sunnu- dag. Verkið hafði verið til sýnis á bekk við Amagertorg og var eitt af rúmlega tuttugu listaverkum Stein- unnar sem eru nú til sýnis víðs vegar um borgina. Útlit er fyrir að þjófarnir hafi skilið verkið eftir við Kóngsins nýjatorg en þaðan tók annar maður styttuna. Sá fór með hana heim til sín í leigubíl. Steinunn segir mann- inn líklega ekki hafa þorað að geyma verkið lengur eftir að málið komst í hámæli. Málið vakti athygli eftir að mynd- ir af upphaflega þjófnaðinum rötuðu í fjölmiðla. Myndina tók íslenskur ferðamaður sem átti leið hjá. Eigandi íbúðarinnar hringdi loks í eiganda gallerísins sem sér um sýn- inguna ásamt borginni og tilkynnti um verknaðinn. „Það er auðvitað eðlilegt að verk eins og þetta verði fyrir núningi þar sem það er sett upp í almannarými í stórborg og þá verður bara að taka á því. Kaupmannahafnarborg og Gall- eri Christoffer Ege lund tóku mynd- arlega á málinu og svo auðvit að frá- bær íslensk kona sem var á Strikinu að nóttu til og tók myndirnar sem réðu úrslitum,“ segir Steinunn Þór- arinsdóttir. Sýning hennar mun standa yfir í allt sumar. - þea Stolin stytta Steinunnar Þórarinsdóttur sást á svölum íbúðarhúss í Kaupmannahöfn síðasta sunnudag: Tóku styttuna með sér heim í leigubíl ÞJÓFNAÐUR Höggmynd eftir Steinunni Þórarinsdóttur var stolið af bekk í Kaup- mannahöfn. MYND/STEINUNN ÞÓRARINSDÓTTIR ELDSVOÐI Eldur kviknaði í húsi Bílaleigu Akureyrar í Skeifunni í gær þegar smiðir voru að vinna með logsuðutæki á efri hæð húss- ins. Loginn barst í þakpappa sem kviknaði í. Slökkvilið var kallað á staðinn um klukkan þrjú og tókst vel að slökkva eldinn. Bílaleiga Akureyrar er til húsa í Skeifunni 9 og stendur við hlið svæðisins þar sem eldurinn í þvottahúsinu og efnalauginni Fönn kviknaði fyrir um ári. Skaðinn í þessum bruna varð þó öllu minni en í þeim bruna. - þea Eldsvoði í Skeifunni í gær: Kviknaði í út frá logsuðutæki BRUNI Eldur kviknaði í húsnæði Bíla- leigu Akureyrar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM HEILBRIGÐISMÁL Svifryk var yfir heilsuverndarmörkum á höfuð- borgarsvæðinu í gær. Heilbrigðis- eftirlit Reykjavíkur segir um að ræða ryk eða þurra mistur sem berst af landinu til borgarinnar með austlægum áttum. Eftir hádegi í gær mátti sjá hálf- tímagildi svifryks við mælistöð- ina á Grensásvegi yfir 320 míkró- grömm á rúmmetra. Í gærkvöldi voru loftgæði sögð slæm á öllum mælistöðvum í Reykjavík. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum í borg- inni og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. - ngy Aukið svifryk í borginni: Mengun yfir mörkum í gær 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 2 C -C C 8 C 1 6 2 C -C B 5 0 1 6 2 C -C A 1 4 1 6 2 C -C 8 D 8 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.