Fréttablaðið - 16.06.2015, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 16.06.2015, Blaðsíða 8
16. júní 2015 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 8 Þ Í 14 05 20 15 R R S Hægt er að skoða mat einstakra eigna á Skrá.is. Fasteignaeigendur geta einnig fengið matið sent í bréfpósti með því að hringja í síma 515 5300. Frestur til athugasemda er til 1. september 2015. Frekari upplýsingar er að finna á www.skra.is Í pósthólfi ykkar á mínum síðum á Ísland.is er tilkynning um fasteignamat eigna ykkar sem gildir árið 2016. Fasteignaeigendur ÁSTRALÍA Grunur leikur á að ástr- ölsk stjórnvöld hafi nýtt opinbert skattfé til að múta skipstjórum flóttamannabáta til að snúa frá Ástralíu. Stjórnarand- staðan í ástr- alska þinginu hefur kallað eftir rannsókn vegna máls- ins en Tony Abbott forsætis- ráðherra hefur hafnað ásökunum. Sameinuðu þjóðirnar hafa lýst því yfir að ásakanirnar séu alvar- legar ef þær reynast réttar en starfsmenn Sameinuðu þjóðanna hafa heimildir um að skipstjórar hafi þegið allt að þúsund doll- ara fyrir að flytja flóttamenn til baka. - srs Vilja rannsókn á málinu: Segja stjórnvöld beita mútum TONY ABBOTT SAMFÉLAG Refsiréttarnefnd, sem starfar á vegum innanríkisráðu- neytisins, er að leggja lokahönd á samningu frumvarps um breyting- ar á hegningarlögum. Frumvarpið lýtur að nýju ákvæði um heimilis- ofbeldi. Á Íslandi er ekki að finna ákvæði sem tekur sérstaklega á ofbeldi sem beitt er í nánum samböndum heldur eru ákvæði almennra hegningarlaga látin nægja. Refsiréttarnefnd semur frum- varpið að beiðni Ólafar Nordal innanríkisráðherra og samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er nefndin að leggja lokahönd á gerð frumvarpsins. „Ráðherra hefur ekki fengið frumvarpið á borð til sín og því getum við ekki sagt nákvæmlega hvaða breytingar verða gerðar á hegningarlögunum,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, aðstoðarkona innanríkisráðherra. Þórdís staðfestir þó að verið sé að vinna í umræddu frumvarpi og að ráðherra eigi eftir að fara yfir það. „Stefnt er að því að ráðherra leggi frumvarpið fram í haust,“ segir Þórdís Kolbrún. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins felst frumvarpið í því að endurskoða refsilöggjöfina með hliðsjón af Istan- búlsamningi sem Ísland er aðili að. Samningurinn er alþjóðasamning- ur um að koma í veg fyrir og berjast gegn ofbeldi gagnvart konum og heim- ilisofbeldi. Með frumvarpinu er stefnt að því að mæta ákvæðum samningsins svo Ísland geti fullgilt hann. Þá hefur Fréttablaðið heimildir fyrir því að í frumvarpinu sé tekið á fyrning- arreglum, en í dag er fyrningar- frestur vegna heimilisofbeldis sá sami og annarra ofbeldisbrota. „Með frumvarpinu langar okkur að sjá ótalmargt og þá aðal- lega að lögin skilgreini betur ofbeldi í nánum samböndum,“ segir Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf, sem fagnar vænt- anlegum breytingum á hegningar- lögunum. „Sök vegna heimilisof- beldis fyrnist eftir sömu reglum og gilda um ofbeldi milli ókunn- ugra og þar með er ekki tekið tillit til þess hve þungbært er að kæra ofbeldisverk maka og hve erfitt er að gera það meðan á sambandinu stendur,“ segir Sigþrúður sem seg- ist vilja sjá breytingar á fyrning- arreglum meðal annars. Þá vill hún að umrætt laga- ákvæði fjalli um heimilisofbeldi sem brotasamfellu en ekki sem einstakt afbrot hverju sinni eins og staðan sé í dag. „Við viljum sjá að það sé horft á heimilisofbeldi sem heildarpakka og viljum einnig vernd eftir að sambandi lýkur, til dæmis breyt- ingar á reglum um nálgunarbann,“ segir Sigþrúður og bætir við að þó að sambandi ljúki milli ofbeldis- manns og fórnarlambs sé ekki þar með sagt að öll hætta sé úti. Að lokum segist Sigþrúður von- ast til þess að með lagabreyting- unni verði sérstaða ofbeldisins við- urkennd. nadine@frettabladid.is Lagaákvæði er lýtur að heimilisofbeldi væntanlegt Refsiréttarnefnd hefur samið lagafrumvarp um breytingar á hegningarlögum um nýtt ákvæði sem skilgreinir heimilisofbeldi. Innanríkisráðherra hyggst leggja frumvarpið fram næsta haust. Kvennaathvarfið fagnar vænt- anlegri breytingu og vonast til þess að með lagabreytingunni verði sérstaða ofbeldisins viðurkennd. HEIMILISOFBELDI Framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf segir þungbært að kæra ofbeldisverk maka og vill að tekið verði tillit til þess. NORDICPHOTOS/GETTY SIGÞRÚÐUR GUÐ- MUNDSDÓTTIR MANNRÉTTINDI Mansal hefur tíðk- ast í fiskiðnaði í Taílandi um ára- bil. Human Rights Watch og Anti- Slavery samtökin hafa greint frá slæmum aðstæðum starfsmanna á smábátum í Taílandi. Dæmi eru um að verkamenn frá Búrma gangi kaupum og sölum á milli skipstjóra. ORA kaupir túnfisk frá Taílandi en Leifur Þórsson, framkvæmda- stjóri ORA, leggur mikla áherslu á að starfsfólk sinna viðskiptavina búi við viðunandi starfsskilyrði. „Það er líka þannig að allir sem stunda verslun við Evrópumark- að þurfa að vera með tilheyrandi starfsskilyrði og vottun. Og ef eitt- hvað er að er gerð úttekt á því að viðkomandi standist allar tilsettar kröfur.“ Fyrr á árinu setti Evrópusam- bandið þau skilyrði að taílensk stjórnvöld ynnu markvisst gegn mansali í starfsgreininni og hótaði að setja innflutningsbann á fisk til ESB ef engar bætur yrðu á. Taí- land er þriðja stærsta fiskútflutn- ingsþjóð í heimi. Í fyrra greindi The Guardian frá því að alþjóð- lega fiskveiði- fyrirtækið CP Foods frá Taí- landi verslaði með afurðir sem veiddar hefðu verið af fórnar- lömbum mansals. „Við hjá ORA höfum síðustu áratugi keypt nær allan túnfisk sem við höfum selt hér á landi af taílenska framleiðandanum Thai Union. Allur túnfiskur sem seld- ur hefur verið í nafni ORA á smá- sölumarkaði hefur komið frá þeim framleiðanda.“ Í tilfelli Thai Union höfðu við- skipti við mansalsmenn ekki átt sér stað en forsvarsmenn Thai Union hafa harðlega fordæmt ólög- lega starfsemi af þeim toga. Leifur leggur áherslu á viðun- andi viðskiptavini. „Það skiptir okkur gífurlega miklu máli að þeir sem við stundum verslun við séu ábyrgir framleiðendur.“ - srs ORA fylgist með aðstæðum starfsfólks ytra: Mansal er vandamál í útgerð á Taílandi LEIFUR ÞÓRSSON TAÍLENSKUR FISKUR Stjórnvöld á Taílandi vinna að því að uppræta mansal í fisk- iðnaði. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA SVONA ERUM VIÐ 4.375 lifandi börn fædd-ust á Íslandi árið 2014. Yfir sama tímabil fædd- ust 11 andvana börn hér á landi. 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 2 D -4 7 F C 1 6 2 D -4 6 C 0 1 6 2 D -4 5 8 4 1 6 2 D -4 4 4 8 2 8 0 X 4 0 0 5 A F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.