Fréttablaðið - 16.06.2015, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 16.06.2015, Blaðsíða 38
16. júní 2015 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 34 Mörkin: 0-1 Jón Arnar Barðdal (42.), 0-2 Halldór Orri Björnsson (72.). FYLKIR (4-3-3): Bjarni Þórður Halldórsson 6 - Stefán Ragnar Guðlaugsson 5, Tonci Radovnikovic 6, Ásgeir Eyþórsson 7, Tómas Joð Þorsteinsson 7 - Jóhannes Karl Guðjónsson 6 (86. Ásgeir Örn Arnþórsson -), Ásgeir Börkur Ásgeirsson 5, Oddur Ingi Guðmundsson 4 (67. Ingimundur Níels Óskarsson 6) - Ragnar Bragi Sveinsson 5, Andrés Már Jóhannesson 6 (80. Hákon Ingi Jónsson -), Albert Brynjar Ingason 5. STJARNAN (4-3-3): Sveinn Sigurður Jóhannesson 7 - Heiðar Ægisson 7, *Brynjar Gauti Guðjónsson 8, Daníel Laxdal 7, Hörður Árnason 8 - Þorri Geir Rúnarsson 4, Michael Præst 5, Jón Arnar Barðdal 6 (89. Atli Jóhannesson -) - Arnar Már Björg- vinsson 4 (46. Halldór Orri Björnsson 7), Ólafur Karl Finsen 6, Jeppe Hansen 4 (81. Veigar Páll Gunnarsson -). Skot (á mark): 13-7 (4-5) Horn: 5-1 Varin skot: Bjarni 3 - Sveinn 4 0-2 Fylkisvöllur Áhorf: 977 Guðmundur Ársæll G. (6) PEPSI-DEILDIN 2015 STAÐAN FH 8 6 1 1 19-8 19 Breiðablik 8 5 3 0 15-5 18 Fjölnir 8 5 2 1 12-7 17 Valur 8 4 2 2 15-10 14 KR 8 4 2 2 14-10 14 Stjarnan 8 3 3 2 10-10 12 Fylkir 8 2 3 3 9-11 9 Leiknir R 8 2 2 4 10-11 8 Víkingur 8 1 3 4 11-16 6 ÍA 8 1 3 4 4-10 6 Keflavík 8 1 1 6 7-17 4 ÍBV 8 1 1 6 7-18 4 NÆSTU LEIKIR Sunnudagur 21. júní: 17.00 Valur - ÍBV, 20.00 FH - Breiðablik. Mánudagur 22. júní: 19.15 Leiknir - Fylkir, Víkingur - Fjölnir, ÍA - Keflavík, 20.00 Stjarnan - KR. Mörkin: 0-1 Ásgeir Marteinsson (44.), 1-1 Almarr Ormarsson (61.). KR (4-3-3): Stefán Logi Magnússon 4 - Aron Bjarki Jósepsson 5 (85. Gonzalo Balbi -), Skúli Jón Friðgeirsson 6, Grétar Sigfinnur Sigurðarson 5, Gunnar Þór Gunnarsson 5 - Kristinn Jóhannes Magnússon 5, Pálmi Rafn Pálmason 6, Jacob Schoop 6 - Almarr Ormarsson 7, Óskar Örn Hauksson 6, Sören Fredriksen 5 (75. Þorsteinn Már Ragnarsson -). ÍA (4-3-3): Árni Snær Ólafsson 5 - Þórður Þor- steinn Þórðarson 6, Ármann Smári Björnsson 6, Gylfi Veigar Gylfason 6, Darren Lough 5 - Ingimar Elí Hlynsson 5, Albert Hafsteinsson 5, *Jón Vilhelm Ákason 7 - Ólafur Valur Valdimarsson 7 (87. Hallur Flosason -), Arsenij Buinickij 5, Ásgeir Marteinsson 7 (71. Steinar Þorsteinsson -). Skot (á mark): 13-10 (6-6) Horn: 11-2 Varin skot: Stefán Logi 5 - Árni Snær 4 1-1 KR-völlur Áhorf: 1477 Þorvaldur Árnason (7) Mörkin: 1-0 Aron Sigurðarson (59.), 2-0 Þórir Guð- jónsson (88.), 3-0 Aron (90.). FJÖLNIR (4-3-3): Þórður Ingason 6 - Arnór Eyvar Ólafsson 6, Daniel Ivanovski 7 (87. Atli Már Þorbergsson -), Bergsveinn Ólafsson 5, Viðar Ari Jónsson 6 - Ólafur Páll Snorrason 7 (90. Ægir Jarl Jónasson -), Emil Pálsson 6, Gunnar Már Guðmundsson 6 - *Aron Sigurðarson 8, Þórir Guðjónsson 7, Guðmundur Karl Guðmundsson 6 (70. Ragnar Leósson -). LEIKNIR (4-3-3): Eyjólfur Tómasson 5 - Eiríkur Ingi Magnússon 5, Halldór Kristinn Halldórsson 5, Óttar Bjarni Guðmundsson 4, Charley Fomen 5 - Atli Arnarsson 4, Sindri Björnsson 5 (82. Elvar Páll Sigurðsson -), Hilmar Árni Halldórsson 6 - Amath Diedhiou 4 (59. Kolbeinn Kárason 5), Kristján Páll Jónsson 4 (82. Elvar Páll Sigurðsson -), Ólafur Hrannar Kristjánsson 4. Skot (á mark): 18-8 (6-4) Horn: 3-6 Varin skot: Þórður 4 - Eyjólfur 3 3-0 Fjölnisvöllur Áhorf: 1347 Þóroddur Hjaltalín (3) FÓTBOLTI Knattspyrnuáhugamenn á Íslandi svífa enn um á bleiku skýi eftir magnaðan sigur strák- anna okkar á Tékkum á Laugar- dalsvellinum á föstudag. Með sigr- inum komst Ísland á topp riðilsins og upp í annan styrkleikaflokk fyrir undankeppni HM 2018 en dregið verður í riðla í næsta mán- uði. Markatalan ein og sér [14- 3] sýnir hvers konar gæðaflokki íslenska knattspyrnulandsliðið er komið í. Hróður íslenska landsliðsins er fyrir löngu farinn að berast út um allar trissur og hefur árangurinn vakið verðskuldaða athygli. En öskubuskuævintýrin gerast víðar en á Íslandi og óvænt úrslit hafa víða litið dagsins ljós. Töframaðurinn Gareth Bale Fyrir fjórum árum var knatt- spyrnan í Wales á mjög svipuðum slóðum og sú íslenska. Staða lið- anna á lista FIFA var svo slæm að bæði voru í allra neðsta styrk- leikaflokki þegar dregið var í riðla – þar sem lið eins og San Marínó, Andorra, Lúxemborg og Liechten- stein eru fastagestir. Wales var í 112. sæti og Ísland í 121. sæti. Á meðan okkar menn blómstruðu og fóru alla leið í umspilið þar sem þeir töpuðu fyrir Króatíu voru þeir velsku í basli í sínum riðli og voru í næstneðsta sæti hans. Meðal annars mátti Wales þola 6-1 tap fyrir Serbíu. Síðan þá hefur uppgangur liðs- ins verið jafn og þéttur. Það hefur aðeins tapað einum leik í tæp tvö ár (vináttuleik gegn Hollandi í júní í fyrra) og um leið rokið upp styrk- leikatöfluna. Sigur liðsins á Belgíu á föstudag, þar sem hinn magnaði Gareth Bale skoraði eina mark leiksins, mun væntanlega fleyta liðinu alla leið upp í sjöunda sæti næsta styrkleikalista FIFA og þar með upp í efsta styrkleikaflokk Öskubuskuævintýri Evrópu Ísland er ekki eina landið sem hefur rokið upp styrkleikalista FIFA undanfarin ár. Wales og Rúmenía eru á mikilli siglingu og skjóta mörgum stórþjóðum ref fyrir rass. Færeyjar láta einnig til sín taka svo um munar. fyrir HM-dráttinn í næsta mánuði. Bale hefur skorað fimm af þrett- án mörkum Wales í keppninni til þessa. Wales hefur aðeins einu sinni komist á stórmót – á HM 1958. „Þetta sýnir hversu langt við höfum náð sem þjóð,“ sagði Liver- pool-maðurinn Joe Allen um árang- urinn. „Og það er frábær tilfinning að sjá allt erfiðið borga sig.“ Rúmenar svífa hátt Rúmenía þekkir það vel að spila á stórmótum en eftir HM 1994, þar sem Gheorghe Hagi fór með eft- irminnilegt lið Rúmena í 8-liða úrslitin, hefur liðið tvisvar komist á stórmót. Rúmenar hafa þó oftast staðið sig afar vel í undankeppnunum og aldrei fallið langt niður á styrk- leikalista FIFA. Þó að engin stór- stjarna sé í liðinu og fáir spili með evrópskum stórliðum hafa úrslit- in sannað að fáir standast Rúmen- um snúning þessa stundina. Liðið er enn ósigrað í sínum riðli í und- ankeppni EM og verður, rétt eins og Wales, í efsta styrkleikaflokki fyrir undankeppni HM 2018 sem fjórða besta Evrópuþjóðin. Færeyjar í fjórða flokki Fleiri ævintýri hafa verið að ger- ast víða um Evrópu og eitt besta og nærtækasta dæmið er í Færeyj- um. Sigur liðsins á Grikkjum um helgina kom á hárréttum tíma því samkvæmt útreikningum spek- inga um FIFA-listann verða Fær- eyjar í fyrsta sinn á meðal 100 efstu þjóða á listanum og í fjórða styrkleikaflokki fyrir undan- keppni HM 2018. Í þeim flokki verða einnig öflug- ar knattspyrnuþjóðir eins og Tyrk- land, Slóvenía, Írland og Noregur. Þar á bæ þykir mörgum það sjálf- sagt slæmur vitnisburður að vera settur í sama flokk og smálið Fær- eyja en það ber vitni um hversu góður árangur þessarar 50 þúsund manna þjóðar í raun er. Dregið verður í riðla í undan- keppni EM í St. Pétursborg þann 25. júlí og verður þá stuðst við nýj- asta styrkleikalista FIFA sem ekki kemur út fyrr en 9. júlí. En hér til hliðar má sjá hvernig flokkarnir líta út miðað við útreikninga Dales Johnson, blaðamanns ESPN. eirikur@frettabladid.is HM 2018 Styrkleikaflokkar fyrir undankeppni HM 2018 miða við stöðu liða á styrkleikalista FIFA sem kemur ú 9. júlí. Hér má sjá niðurröðunina sam- kvæmt útreikningum Dale Johnson hjá ESPN miðað við úrslit síðustu leikja. 1. STYRKLEIKAFLOKKUR Þýskaland, Belgía, Holland, Rúmenía, England, Wales, Portúgal, Spánn og Króatía/Ítalía. 2. STYRKLEIKAFLOKKUR Króatía/Ítalía, Slóvakía, Austurríki, Sviss, Tékkland, Frakkland, Ísland, Danmör og Bosnía. 3. STYRKLEIKAFLOKKUR Pólland, Úkraína, Skotland, Ungverjaland, Svíþjóð, Albanía, N-Írland, Serbía og Grikkland. 4. STYRKLEIKAFLOKKUR Tyrkland, Slóvenía, Ísrael, Írland, Noregur, Búlgaría, Færeyjar, Svartfjallaland, Eistland. 5. STYRKLEIKAFLOKKUR Kýpur, Lettland, Armenía, Finnland, Hvíta-Rússland, Makedónía, Aserbaídsjan, Litháen, Moldóva. 6. STYRKLEIKAFLOKKUR Kasakstan, Lúxemborg, Liechtenstein, Georgía, Malta, San Marínó og Andorra. ÆVINTÝRIN GERAST VÍÐA Eins og sakir standa gætu Wales og Ísland dregist saman í riðil í undankeppni HM 2018 sem tvö hæst skrifuðu liðin. Færeyjar gætu svo bæst í hópinn sem fjórða sterkasta liðið. Frá vinstri eru Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði Íslands, Gunnar Nielsen, markvörður Stjörnunnar og færeyska liðsins, og Gareth Bale, stórstjarna Wales. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR/GETTY Eru með þriggja stiga forskot á toppi síns riðils Hafa unnið Grikki tvisvar á sjö mánuðum Hafa unnið 5 af 6 leikjum sínum og eru með 11 mörk í plús SPORT SJÓÐHEITT KOLAGRILL í garðinn, á pallinn eða í ferðalagið. KOLAGRILL TILBÚIÐ Á 3 MÍNÚTUM Verð frá kr. 34.000,- Veit á vandaða lausn Opið mán - fös 8.30 - 17.00 FÓTBOLTI Sjöttu umferð Pepsi-deildar kvenna lýkur í kvöld með fjórum leikjum. Þar ber helst að nefna leik Vals og Breiðabliks á Vodafone-vellinum. Blikakonur eru með 13 stig á toppi deildar- innar og geta með sigri endurheimt fjögurra stiga forskot á Stjörnuna sem vann öruggan 5-1 sigur á Þór/KA í fyrra- dag. Breiðablik hefur skorað flest mörk allra í deildinni (16) og Valsvarnarinnar bíður erfitt verkefni að stoppa Fanndísi Friðriksdóttur og Thelmu Hjaltalín Þrastardóttur og stöllur þeirra í framlínu Blika. Selfoss getur unnið fimmta leikinn í röð þegar Afturelding kemur í heimsókn en Sunnlendingar eru aðeins einu stigi á eftir Breiðabliki. ÍBV getur líka stimplað sig fyrir alvöru inn í toppbaráttuna með því að vinna Fylki á útivelli. Þá mætast KR og Þróttur í botnslag vestur í bæ en bæði lið eru aðeins með eitt stig, líkt og Afturelding. - iþs Heldur sigurganga Blika áfram? FÓTBOLTI Áttundu umferð Pepsi-deildar karla í fótbolta lauk í gærkvöldi með þremur leikjum. Fjölnismenn lyftu sér upp í 3. sæti deildarinnar með 3-0 sigri á Leikni í Grafarvoginum. Aron Sigurðarson skoraði tvö mörk og Þórir Guðjónsson eitt fyrir Fjölni sem hefur aðeins fengið á sig eitt mark á heimavelli í sumar. Leiknismenn hafa hins vegar tapað þremur leikjum í röð. Þeir voru ósáttir við nokkrar ákvarðanir dómaratríósins í gær en svo virtist sem löglegt mark hefði verið tekið af þeim í stöðunni 1-0 í seinni hálfleik. Stjörnumenn gerðu góða ferð í Árbæinn og unnu 0-2 sigur en þetta var fyrsti deildarsigur Íslandsmeistaranna síðan 10. maí. Jón Arnar Barðdal og Halldór Orri Björnsson skoruðu mörk Stjörnunnar en mark þess fyrrnefnda var hans fyrsta í efstu deild. KR og ÍA skildu jöfn, 1-1, á KR-vellinum. Ásgeir Marteinsson kom ÍA yfir á 44. mínútu en Almarr Ormarsson jafnaði eftir rúmlega klukkutíma leik. Vesturbæingar eru í 5. sæti deildarinnar, fimm stigum á eftir toppliði FH, en ÍA er með sex stig í 10. sæti, tveimur stigum frá fallsæti. - iþs Fjölnismenn komnir upp í 3. sætið HEITUR Þórir Guðjónsson skoraði annað mark Fjölnis. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 2 C -0 7 0 C 1 6 2 C -0 5 D 0 1 6 2 C -0 4 9 4 1 6 2 C -0 3 5 8 2 8 0 X 4 0 0 1 B F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.