Fréttablaðið - 16.06.2015, Page 40

Fréttablaðið - 16.06.2015, Page 40
16. júní 2015 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 36 KÖRFUBOLTI LeBron James og félagar í Cleveland Cavaliers eru komnir upp að vegg eftir tvö töp í röð í úrslitum NBA-deildarinnar í körfubolta og Golden State Warriors geta kórónað magnað nýliðatímabil þjálfarans Steve Kerr með því að tryggja sér langþráðan NBA-titil- inn með sigri í sjötta leiknum sem fer fram í Quicken Loans-höllinni og verður í beinni á Stöð 2 Sport í kvöld. Það er ekkert skrýtið að körfu- boltaspekingar jafnt sem körfu- boltaáhugafólk hafi stillt upp þess- um lokaúrslitum í ár sem einvígi á milli LeBrons James og Stephens Curry sem eru án vafa einstakir leikmenn í sögu NBA og eiga ótal met sem sanna þá fullyrðingu. Styrkur, leikskilningur, sprengi- kraftur og stöðugar framfarir LeBrons James hafa fyrir löngu gert hann að besta körfuboltamanni heims en á móti kemur að heimur- inn hefur líklega aldrei áður séð skotmann eins og hinn 191 sentí- metra háa Stephen Curry. Það að leikmaður geti rakið bolt- ann betur en flestir í deildinni, búið til skotið sitt upp úr engu og sé fljótari en flestir að skjóta boltan- um þegar færið gefst er einstakt í körfuboltadeild þeirra bestu í heimi alveg eins og maður byggður eins og ruðningskappi sem hefur boltameð- ferð og hraða bakvarðar í bland við sendingagetu bestu leikstjórnenda. Summa Akron City spítalinn En magnaðasta staðreyndin og jafn- vel enn skemmtilegri en öll stigin, allar stoðsendingarnar og öll metin hjá þessum frábæru en ólíku leik- mönnum er sú ótrúlega tilviljun að þeir James og Curry komu í heim- inn á sama spítalanum í Akron í Ohio-ríki. LeBron James hefur alla tíð talað stoltur um æskustöðvar sínar í Akron og það er hann sem er nú kominn nær því en nokkur annar að færa Cleveland sinn fyrsta NBA-tit- il. Það er hins vegar annar körfu- boltamaður sem fæddist á Summa Akron City sjúkrahúsinu sem gerir sig nú líklegan til að koma í veg fyrir að draumur LeBrons rætist og vinna sinn fyrsta NBA-titil í næsta nágrenni við þar sem hann fæddist fyrir rúmum 27 árum. Anthony McClelland og Gloria Marie James eignuðust Lebron James á Summa Akron City spít- alanum 30. desember 1984 og þar bjó hann þar til að hann sveik lit og gekk til liðs við Miami Heat sum- arið 2010. James varð tvisvar meist- ari með Miami-liðinu en ákvað að snúa heim fyrir þetta tímabil. Dell og Sonya Curry eignuðust Stephen Curry 14. mars 1988 á sama spítala en Dell Curry og kona hans bjuggu nálægt spítalanum á þessum tíma þegar hann spilaði sitt eina tímabil með Cleveland Cavaliers. Ættu að vakta fæðingardeildina Dell Curry grínaðist með það við blaðamenn fyrir lokaúrslitin að kannski væri ekki óvitlaust fyrir njósnara að fara að leita að fram- tíðarmönnum á fæðingardeildinni á Summa Akron City spítalanum. Dell Curry spilaði þó bara þetta eina tímabil með Cleveland og eyddi næstu tíu tímabilum hjá Charlotte Hornets. Það leit þó allt út fyrir að Lebron James væri að fara alla leið með Cleveland-liðið þar sem liðið var komið í 2-1 í einvíginu. Eftir þrjá leiki þar sem Ástralinn Matthew Dellavedova stal sviðsljósinu frá besta leikmanni tímabilsins, Steph- en Curry, hefur þessi snaggaralegi skotmaður sýnt snilli sína á ný í síð- ustu leikjum. Stephen Curry lék svo sem ekki illa í fyrstu leikjunum en á sama tíma var LeBron James að skila tölum sem enginn hafði áður séð á stærsta sviði NBA-deildarinnar. Það var ekki fyrr en í fjórða leik- hlutanum í fimmta leiknum í fyrri- nótt þar sem fólk sá af hverju hann var kosinn mikilvægasti leikmaður tímabilsins. Stephen Curry skoraði 17 af 37 stigum sínum í fjórða leikhlutan- um, þar af fimmtán þeirra eftir að Lebron James kom Cleveland í 80-79 þegar sjö mínútur og 47 sekúndur voru eftir af leiknum. Rosalegar tölur hjá Lebron Fram að þessari tæplega átta mínútna sýningu Currys var það allt eins líklegt að Lebron James myndi bæði taka titilinn og útnefninguna besti leikmaður úrslitanna þrátt fyrir að vera nán- ast einn síns liðs að leiða væng- brotið lið Cleveland sem hefur misst tvo stjörnuleikmenn í meiðsli í úrslitakeppninni. Frammistaða LeBrons James er þegar komin í hóp þeirra allra bestu í sögu lokaúrslitanna og með sigri í seríunni færi hann langt með að tryggja sér sæti við hlið Michaels Jordan við borð þeirra allra bestu í NBA-sögunni. En ef 40 stiga, 14 frá- kasta og 11 stoðsend- inga leikur er ekki nóg, hvað dugar þá? Stephen Curry skoraði sjö þrista í síðasta leik og þá alla með varnar- menn Cleveland-liðs- ins andandi ofan í hálsmálið. Það var ekki nóg því eins og á einnig við um Lebron James þá er nánast ómögulegt að stoppa Stephen Curry þegar hann skiptir í stórstjörnugír- inn. Draumur um úrslitaleik Hreinn úrslitaleikur um NBA-titilinn væri drauma- endir á skemmtilegri seríu og það er ekki annað að heyra en að Lebron James hafi sjálfur trú á þessu ennþá ef marka má viðtal við hann eftir síð- asta leik. „Ég missi aldrei trúna af því að ég er besti leik- maðurinn í heiminum. Leikur sex er á okkar heimavelli og við höfum nóg af vopnum í okkar liði til að vinna hann,“ sagði LeBron James og ef einhver getur komið jafn löskuðu liði og Cleveland í sjöunda leik þá er það kóngurinn af Akron. ooj@frettabladid.is Komu í heiminn á sama spítalanum Körfuboltakapparnir Stephen Curry og LeBron James hafa slegið hvert metið á fætur öðru í úrslitakeppninni en þeir eiga fl eira sam- eiginlegt en að vera að endurskrifa NBA-söguna og vera komnir með liðin sína alla leið í úrslitaleikina um NBA-meistaratitilinn. Golden State Warriors, lið Currys, getur tryggt sér fyrsta titil sinn í 40 ár með sigri á heimavelli Cleveland í sjötta leiknum í kvöld. TVEIR FRÁBÆRIR LEIKMENN Lebron James og Stephen Curry hafa sýnt snilli sína í úrslita- keppninni í ár. FRÉTTABLAÐ IÐ /EPA NÍUNDA EM? Guðjón Valur Sigurðsson hefur spilað alla leiki Íslands á EM karla nema tvo eða 48 af 50 leikjum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR ➜ Þjóðir sem hafa verið með á níu Evrópumót- um í handbolta í röð ÍSLAND 330 ÞÚSUND ÍBÚAR KRÓATÍA 4,3 MILLJÓNIR DANMÖRK 5,7 MILLJÓNIR SPÁNN 46,4 MILLJÓNIR FRAKKLAND 66,1 MILLJÓN RÚSSLAND 146 MILLJÓNIR ➜ Flest Evrópumót þjóða 12 EVRÓPUMÓT Króatía, Spánn, Frakkland, Rússland 11 EVRÓPUMÓT Danmörk, Þýskaland, Svíþjóð 10 EVRÓPUMÓT Ungverjaland, Slóvenía 9 EVRÓPUMÓT Ísland, Serbía HANDBOLTI Íslenska karlalands- liðið í handbolta tryggði sér um helgina sæti á Evrópumótinu í handbolta með flottum tólf marka sigri á Svartfellingum í Höllinni og handboltaliðið kom Íslandi um leið í fámennan hóp handboltarisa álfunnar á þessari öld. Strákarnir okkar hafa nú verið með á níu Evrópumótum í röð eða öllum Evrópukeppnum karla- handboltans á 21. öldinni. Því hafa aðeins fimm aðrar þjóðir náð eða Danmörk, Frakkland, Króatía, Spánn og Rússland sem öll eru með meira en fjórar milljónir íbúa. Guðjón Valur Sigurðsson, fyrir- liði íslenska liðsins, var með á EM í Króatíu 2000 og getur því tekið þátt í sínu níunda Evrópumóti eftir sex mánuði en Guðjón Valur verð- ur 36 ára í ágúst. Frakkar, Spánverjar, Króatar og Rússar hafa verið með á öllum Evrópukeppnum sögunnar og það breyttist ekki núna. Danir hafa bara misst af einu Evrópumóti (1998) alveg eins og Svíar (2006) og Þjóðverjar (2014). Ísland er í 10. sætinu á þeim lista. - óój Í hópi fastagesta á EM 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 2 C -C C 8 C 1 6 2 C -C B 5 0 1 6 2 C -C A 1 4 1 6 2 C -C 8 D 8 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.