Fréttablaðið - 16.06.2015, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 16.06.2015, Blaðsíða 32
16. júní 2015 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 28 AFREK Segulsvið eftir Sigurð Pálsson í leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur var eitt af afrekum þeirra hjóna á leikárinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Í kvöld verður Gríman 2015 hald- in hátíðleg í Borgarleikhúsinu og verðlaun veitt fyrir bestu frammi- stöðuna, að mati dómnefndar, á þessu leikári. Ber að nefna að verðlaunaafhendingin er haldin í Borgarleikhúsinu annað árið í röð sem kemur á óvart en sú hefð hefur skapast að stóru leikhús- in tvö skiptist á að hýsa hátíðina. Engar opinberar útskýringar má finna fyrir breytingunni en eins og alltaf verður spennandi að sjá hverjir hreppa styttu. Á þessum hátíðardegi er tilvalið að fara yfir leikárið sem nú er ljúka. Hafa skal í huga að þessi pistill er alls ekki tæmandi, hugmyndin er að stikla á stóru. Þjóðleikhúsið Þjóðleikhúsið lagði af stað með „Íslenskan vetur“ þar sem íslensk sviðsverk af öllu tagi voru í fyrir- rúmi. En þrátt fyrir frambæri- lega hugmynd og breiðan leikvöll byggðan á klassískum leikverkum, leikgerðum upp úr þekktum skáld- skap og einstaka nýjum leikritum náði leikárið aldrei almennilegu flugi. Ævintýri í Latabæ átti að byrja veturinn með fítonskrafti en sýningin missti marks og lokaði fyrir áramót. Sjálfstætt fólk fékk ágætis gagnrýni en leið örlítið fyrir vinsældir Engla alheimsins sem sló svo rækilega í gegn á fyrra leikári. Leikgerðirnar Karitas og Konan við 1000° voru sterkar sýn- ingar en hápunktar Þjóðleikhúss- ins voru Segulsvið og samvinnu- sýningin Ofsi sem rædd verða frekar síðar í pistlinum. Kraft- laus Fjalla-Eyvindur og Halla lok- aði síðan frekar dræmu leikári hjá Þjóðleikhúsinu. Borgarleikhúsið Hinum megin við Miklubrautina í Borgarleikhúsinu var annar og kraftmeiri bragur. Fjölbreytt dag- skrá var í boði en Lína Langsokk- ur keyrði leikárið í gang, farsinn Beint í æð varð vinsæll og Öldin okkar í boði Hunds í óskilum lét leikhúsgesti veltast um úr hlátri. Dúkkuheimili Ibsens sýndi að klassísk verk hafa nær óendan- lega möguleika á frumlegri fram- setningu en sýningin varð því miður að víkja en aukasýningar verða næstkomandi haust. Ástæð- an fyrir stuttum sýningartíma Dúkkuheimilis á stóra sviðinu var þrekvirkið Billy Elliott sem sló rækilega í gegn þar sem þrír ungir drengir stálu hjörtum lands- manna. Birgir Sigurðsson sneri aftur með leikritið Er ekki nóg að elska? sem sýndi að gölluð sýning heftir ekki vinsældir því miðarn- ir mokuðust út. Pólitíska verkið Peggy Pickett sér andlit guðs lok- aði síðan sterku leikári hússins. Sjálfstæði og samvinna Samvinna sjálfstæðra sviðs- listahópa, sem eiga kannski sinn heimavöll í Tjarnarbíói og að ein- hverju leyti í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði, við stóru húsin tvö hefur verið einkar frjó og skilað sér rækilega í tilnefningum þetta árið. Þjóðleikhúsið hýsti sviðs- listahópinn Aldrei óstelandi og úr varð sýningin Ofsi sem var snið- ug kúvending á leikgerðinni. Í Borgar leikhúsinu bar hæst sam- vinnusýningarnar Ekki hætta að anda með Háaloftinu og Hystory í boði Sokkabandsins, en síðari sýn- ingin bar af. Einnig er nauðsynlegt að nefna Frystiklefann á Rifi sem er virkilega spennandi vettvangur fyrir sviðslistir. En ekki er hægt að skrifa um samvinnu án þess að nefna hjónin Sigurð Pálsson skáld og Kristínu Jóhannesdóttur leikstjóra sérstak- lega. Á einu leikári stóðu þau að þremur glæsilegum verkum; einu útvarpsverki, Segulsviði í Þjóð- leikhúsinu og að lokum Endatafli í Tjarnarbíói, sem var algjört leik- húshnossgæti. Allt þetta líf Mikil gróska er í samtímadansi á Íslandi um þessar mundir, bæði hjá Íslenska dansflokknum sem og í sjálfstæða geiranum, t.d. sýn- ingum Reykjavík Dance Festival sem nýlega tilkynnti samstarf við listahátíðina LÓKAL. Tjarnar- bíó hefur einnig verið vettvang- ur sjálfstæðra sýninga af öllum gerðum en þarf kannski að skapa sér skýrari listræna stefnu fyrir næsta ár því að í heildina voru sýningarnar frekar misjafnar. Endurkomur voru nokkuð áber- andi þetta árið en Sigurður Sigur- jónsson, Stefán Jónsson og Steinn Ármann Magnússon og Þór Tul- inius sneru aftur á sviðsfjalirnar. Mikill happafengur er í þessum mönnum og vonandi fá leikkon- urnar svipað tækifæri á næsta ári, Elva Ósk Ólafsdóttir sprett- ur strax upp í hugann. Leikgerð- ir hafa lengi verið vinsælar í leik- húsum landsins en virðast vera á einhverju undanhaldi ef marka má Grímutilnefningarnar því fleiri frumsamin handrit eru á lista yfir leikrit ársins en aðlag- aðir textar. Barnasýningar eru nú fleiri og fjölbreyttari sem er mikið fagnaðar efni en Lífið – stór- skemmtilegt drullumall sem Tíu fingur stóðu fyrir og Kuggur og leikhúsvélin í Þjóðleikhúsinu eru gott dæmi. Leikstjórar á borð við Hörpu Arnardóttur og Ólaf Egil Egilsson, nýliða í leikstjórnar- stólnum, sýndu listrænt þor og uppskáru eftir því. Leikkonan Arndís Hrönn Egilsdóttir verður alltaf sterkari en Þorsteinn Bach- mann og Þór Tulinius voru sérlega eftirminnilegir. Útvarpsleikhúsið hélt sínu striki og á Viðar Eggertsson heiður skilið fyrir dagskrávinnu sína þar sem klassískum upptökum, þáttum um sviðslistir og nýjum íslenskum verkum er blandað saman á áhuga- verðan hátt. Fleiri mættu taka sér tíma til að leggja við hlustir næsta haust. Sviðslistir á Íslandi eru að ganga í gegnum ákveðna umbrotatíma en miklar breytingar hafa átt sér stað síðustu misseri. Guðmundur Ingi Þorvaldsson hefur nú verið eitt og hálft ár í starfi framkvæmdastjóra Tjarnarbíós, Kristín Eysteinsdótt- ir var ráðin listrænn stjórnandi Borgarleikhússins snemma árið 2014 og Ari Matthíasson var ráð- inn þjóðleikhússtjóri, eftir tafir, síðastliðinn nóvember en tók við um áramótin. Steinunn Birna Ragnarsdóttir er nýlega tekin við sem óperu- stjóri Íslensku óperunnar en ráðn- ing hennar olli miklu fjaðrafoki. Íslenska óperan sætti gagnrýni vegna ráðningaraðferða stjórn- arinnar. Steinunn á því á bratt- ann að sækja, þá kannski sérstak- lega vegna velgengni Don Carlo. Nú stendur yfir leit að nýjum list- rænum stjórnanda fyrir Íslenska dansflokkinn en einnig gustaði um fyrrverandi stjórnanda hópsins. Umsækjendur voru átta, en lík- legasti kandídatinn hlýtur að vera dansarinn og danshöfundurinn Erna Ómarsdóttir sem hefur verið listrænn ráðgjafi dansflokksins um tíma. Framundan Af þessum sökum verður næsta leikár gríðarlega spennandi þar sem Guðmundur Ingi og Krist- ín fá tækifæri til að kynna nýtt verkefnaval byggt á sínum eigin áherslum, Ari og Steinunn stimpla sig inn og nýr stjórnandi Íslenska dansflokksins er enn óskrifað blað. Lítill vafi er á að sjálfstæðu sviðs- listahóparnir koma líka sterkir inn þannig að samkeppnin er gríðarleg þar sem listrænn metnaður verður vonandi í fyrirrúmi. Gríman er uppskeruhátíð sviðs- listar á Íslandi og þrátt fyrir þrengri rekstrargrundvöll en oft áður hefur þetta fagfólk og lands- menn allir miklu að fagna. Íslend- ingar eru einna duglegastir þjóða að mæta á sviðslistaviðburði og vonandi verður næsta leikár ennþá betra. Takk fyrir mig og gleðilega sviðslistahátíð! Umbrotatímar á íslensku leiksviði Leikárinu lýkur formlega með afh endingu Grímuverðlauna í Borgarleikhúsinu í kvöld og því er hér stiklað á stóru á liðnu leikári. Sigríður Jónsdóttir leiklistargagnrýnandi Fréttablaðsins Borgartúni 30, 105 Reykjavík, sími 515 5800, rannis@rannis.is www.rannis.is Gríman er upp- skeruhátíð sviðslistar á Íslandi og þrátt fyrir þrengri rekstrargrund- völl en oft áður hefur þetta fagfólk og lands- menn allir miklu að fagna. SLÓ Í GEGN Billy Elliot í leikstjórn Bergs Þórs Ingólfssonar í Borgarleikhúsinu var líkast til vinsælasta leiksýning ársins. MENNING 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 2 D -A 0 D C 1 6 2 D -9 F A 0 1 6 2 D -9 E 6 4 1 6 2 D -9 D 2 8 2 8 0 X 4 0 0 6 A F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.