Fréttablaðið - 16.06.2015, Qupperneq 32
16. júní 2015 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 28
AFREK Segulsvið eftir Sigurð Pálsson í leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur var eitt af
afrekum þeirra hjóna á leikárinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Í kvöld verður Gríman 2015 hald-
in hátíðleg í Borgarleikhúsinu og
verðlaun veitt fyrir bestu frammi-
stöðuna, að mati dómnefndar, á
þessu leikári. Ber að nefna að
verðlaunaafhendingin er haldin
í Borgarleikhúsinu annað árið í
röð sem kemur á óvart en sú hefð
hefur skapast að stóru leikhús-
in tvö skiptist á að hýsa hátíðina.
Engar opinberar útskýringar má
finna fyrir breytingunni en eins
og alltaf verður spennandi að sjá
hverjir hreppa styttu. Á þessum
hátíðardegi er tilvalið að fara yfir
leikárið sem nú er ljúka. Hafa skal
í huga að þessi pistill er alls ekki
tæmandi, hugmyndin er að stikla
á stóru.
Þjóðleikhúsið
Þjóðleikhúsið lagði af stað með
„Íslenskan vetur“ þar sem íslensk
sviðsverk af öllu tagi voru í fyrir-
rúmi. En þrátt fyrir frambæri-
lega hugmynd og breiðan leikvöll
byggðan á klassískum leikverkum,
leikgerðum upp úr þekktum skáld-
skap og einstaka nýjum leikritum
náði leikárið aldrei almennilegu
flugi. Ævintýri í Latabæ átti að
byrja veturinn með fítonskrafti
en sýningin missti marks og lokaði
fyrir áramót. Sjálfstætt fólk fékk
ágætis gagnrýni en leið örlítið
fyrir vinsældir Engla alheimsins
sem sló svo rækilega í gegn á fyrra
leikári. Leikgerðirnar Karitas og
Konan við 1000° voru sterkar sýn-
ingar en hápunktar Þjóðleikhúss-
ins voru Segulsvið og samvinnu-
sýningin Ofsi sem rædd verða
frekar síðar í pistlinum. Kraft-
laus Fjalla-Eyvindur og Halla lok-
aði síðan frekar dræmu leikári hjá
Þjóðleikhúsinu.
Borgarleikhúsið
Hinum megin við Miklubrautina
í Borgarleikhúsinu var annar og
kraftmeiri bragur. Fjölbreytt dag-
skrá var í boði en Lína Langsokk-
ur keyrði leikárið í gang, farsinn
Beint í æð varð vinsæll og Öldin
okkar í boði Hunds í óskilum lét
leikhúsgesti veltast um úr hlátri.
Dúkkuheimili Ibsens sýndi að
klassísk verk hafa nær óendan-
lega möguleika á frumlegri fram-
setningu en sýningin varð því
miður að víkja en aukasýningar
verða næstkomandi haust. Ástæð-
an fyrir stuttum sýningartíma
Dúkkuheimilis á stóra sviðinu
var þrekvirkið Billy Elliott sem
sló rækilega í gegn þar sem þrír
ungir drengir stálu hjörtum lands-
manna. Birgir Sigurðsson sneri
aftur með leikritið Er ekki nóg að
elska? sem sýndi að gölluð sýning
heftir ekki vinsældir því miðarn-
ir mokuðust út. Pólitíska verkið
Peggy Pickett sér andlit guðs lok-
aði síðan sterku leikári hússins.
Sjálfstæði og samvinna
Samvinna sjálfstæðra sviðs-
listahópa, sem eiga kannski sinn
heimavöll í Tjarnarbíói og að ein-
hverju leyti í Gaflaraleikhúsinu í
Hafnarfirði, við stóru húsin tvö
hefur verið einkar frjó og skilað
sér rækilega í tilnefningum þetta
árið. Þjóðleikhúsið hýsti sviðs-
listahópinn Aldrei óstelandi og úr
varð sýningin Ofsi sem var snið-
ug kúvending á leikgerðinni. Í
Borgar leikhúsinu bar hæst sam-
vinnusýningarnar Ekki hætta að
anda með Háaloftinu og Hystory í
boði Sokkabandsins, en síðari sýn-
ingin bar af. Einnig er nauðsynlegt
að nefna Frystiklefann á Rifi sem
er virkilega spennandi vettvangur
fyrir sviðslistir.
En ekki er hægt að skrifa um
samvinnu án þess að nefna hjónin
Sigurð Pálsson skáld og Kristínu
Jóhannesdóttur leikstjóra sérstak-
lega. Á einu leikári stóðu þau að
þremur glæsilegum verkum; einu
útvarpsverki, Segulsviði í Þjóð-
leikhúsinu og að lokum Endatafli í
Tjarnarbíói, sem var algjört leik-
húshnossgæti.
Allt þetta líf
Mikil gróska er í samtímadansi á
Íslandi um þessar mundir, bæði
hjá Íslenska dansflokknum sem
og í sjálfstæða geiranum, t.d. sýn-
ingum Reykjavík Dance Festival
sem nýlega tilkynnti samstarf við
listahátíðina LÓKAL. Tjarnar-
bíó hefur einnig verið vettvang-
ur sjálfstæðra sýninga af öllum
gerðum en þarf kannski að skapa
sér skýrari listræna stefnu fyrir
næsta ár því að í heildina voru
sýningarnar frekar misjafnar.
Endurkomur voru nokkuð áber-
andi þetta árið en Sigurður Sigur-
jónsson, Stefán Jónsson og Steinn
Ármann Magnússon og Þór Tul-
inius sneru aftur á sviðsfjalirnar.
Mikill happafengur er í þessum
mönnum og vonandi fá leikkon-
urnar svipað tækifæri á næsta
ári, Elva Ósk Ólafsdóttir sprett-
ur strax upp í hugann. Leikgerð-
ir hafa lengi verið vinsælar í leik-
húsum landsins en virðast vera á
einhverju undanhaldi ef marka
má Grímutilnefningarnar því
fleiri frumsamin handrit eru á
lista yfir leikrit ársins en aðlag-
aðir textar. Barnasýningar eru
nú fleiri og fjölbreyttari sem er
mikið fagnaðar efni en Lífið – stór-
skemmtilegt drullumall sem Tíu
fingur stóðu fyrir og Kuggur og
leikhúsvélin í Þjóðleikhúsinu eru
gott dæmi. Leikstjórar á borð við
Hörpu Arnardóttur og Ólaf Egil
Egilsson, nýliða í leikstjórnar-
stólnum, sýndu listrænt þor og
uppskáru eftir því. Leikkonan
Arndís Hrönn Egilsdóttir verður
alltaf sterkari en Þorsteinn Bach-
mann og Þór Tulinius voru sérlega
eftirminnilegir.
Útvarpsleikhúsið hélt sínu striki
og á Viðar Eggertsson heiður skilið
fyrir dagskrávinnu sína þar sem
klassískum upptökum, þáttum um
sviðslistir og nýjum íslenskum
verkum er blandað saman á áhuga-
verðan hátt. Fleiri mættu taka sér
tíma til að leggja við hlustir næsta
haust.
Sviðslistir á Íslandi eru að ganga
í gegnum ákveðna umbrotatíma en
miklar breytingar hafa átt sér stað
síðustu misseri. Guðmundur Ingi
Þorvaldsson hefur nú verið eitt og
hálft ár í starfi framkvæmdastjóra
Tjarnarbíós, Kristín Eysteinsdótt-
ir var ráðin listrænn stjórnandi
Borgarleikhússins snemma árið
2014 og Ari Matthíasson var ráð-
inn þjóðleikhússtjóri, eftir tafir,
síðastliðinn nóvember en tók við
um áramótin.
Steinunn Birna Ragnarsdóttir
er nýlega tekin við sem óperu-
stjóri Íslensku óperunnar en ráðn-
ing hennar olli miklu fjaðrafoki.
Íslenska óperan sætti gagnrýni
vegna ráðningaraðferða stjórn-
arinnar. Steinunn á því á bratt-
ann að sækja, þá kannski sérstak-
lega vegna velgengni Don Carlo.
Nú stendur yfir leit að nýjum list-
rænum stjórnanda fyrir Íslenska
dansflokkinn en einnig gustaði um
fyrrverandi stjórnanda hópsins.
Umsækjendur voru átta, en lík-
legasti kandídatinn hlýtur að vera
dansarinn og danshöfundurinn
Erna Ómarsdóttir sem hefur verið
listrænn ráðgjafi dansflokksins
um tíma.
Framundan
Af þessum sökum verður næsta
leikár gríðarlega spennandi þar
sem Guðmundur Ingi og Krist-
ín fá tækifæri til að kynna nýtt
verkefnaval byggt á sínum eigin
áherslum, Ari og Steinunn stimpla
sig inn og nýr stjórnandi Íslenska
dansflokksins er enn óskrifað blað.
Lítill vafi er á að sjálfstæðu sviðs-
listahóparnir koma líka sterkir inn
þannig að samkeppnin er gríðarleg
þar sem listrænn metnaður verður
vonandi í fyrirrúmi.
Gríman er uppskeruhátíð sviðs-
listar á Íslandi og þrátt fyrir
þrengri rekstrargrundvöll en oft
áður hefur þetta fagfólk og lands-
menn allir miklu að fagna. Íslend-
ingar eru einna duglegastir þjóða
að mæta á sviðslistaviðburði og
vonandi verður næsta leikár ennþá
betra.
Takk fyrir mig og gleðilega
sviðslistahátíð!
Umbrotatímar á íslensku leiksviði
Leikárinu lýkur formlega með afh endingu Grímuverðlauna í Borgarleikhúsinu í kvöld og því er hér stiklað á stóru á liðnu leikári.
Sigríður Jónsdóttir
leiklistargagnrýnandi Fréttablaðsins
Borgartúni 30, 105 Reykjavík,
sími 515 5800, rannis@rannis.is
www.rannis.is
Gríman er upp-
skeruhátíð sviðslistar
á Íslandi og þrátt fyrir
þrengri rekstrargrund-
völl en oft áður hefur
þetta fagfólk og lands-
menn allir miklu
að fagna.
SLÓ Í GEGN Billy Elliot í leikstjórn Bergs Þórs Ingólfssonar í Borgarleikhúsinu var líkast til vinsælasta leiksýning ársins.
MENNING
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
2
D
-A
0
D
C
1
6
2
D
-9
F
A
0
1
6
2
D
-9
E
6
4
1
6
2
D
-9
D
2
8
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K