Fréttablaðið - 16.06.2015, Page 40
16. júní 2015 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 36
KÖRFUBOLTI LeBron James og
félagar í Cleveland Cavaliers eru
komnir upp að vegg eftir tvö töp í
röð í úrslitum NBA-deildarinnar í
körfubolta og Golden State Warriors
geta kórónað magnað nýliðatímabil
þjálfarans Steve Kerr með því að
tryggja sér langþráðan NBA-titil-
inn með sigri í sjötta leiknum sem
fer fram í Quicken Loans-höllinni
og verður í beinni á Stöð 2 Sport í
kvöld.
Það er ekkert skrýtið að körfu-
boltaspekingar jafnt sem körfu-
boltaáhugafólk hafi stillt upp þess-
um lokaúrslitum í ár sem einvígi á
milli LeBrons James og Stephens
Curry sem eru án vafa einstakir
leikmenn í sögu NBA og eiga ótal
met sem sanna þá fullyrðingu.
Styrkur, leikskilningur, sprengi-
kraftur og stöðugar framfarir
LeBrons James hafa fyrir löngu
gert hann að besta körfuboltamanni
heims en á móti kemur að heimur-
inn hefur líklega aldrei áður séð
skotmann eins og hinn 191 sentí-
metra háa Stephen Curry.
Það að leikmaður geti rakið bolt-
ann betur en flestir í deildinni,
búið til skotið sitt upp úr engu og sé
fljótari en flestir að skjóta boltan-
um þegar færið gefst er einstakt í
körfuboltadeild þeirra bestu í heimi
alveg eins og maður byggður eins og
ruðningskappi sem hefur boltameð-
ferð og hraða bakvarðar í bland við
sendingagetu bestu leikstjórnenda.
Summa Akron City spítalinn
En magnaðasta staðreyndin og jafn-
vel enn skemmtilegri en öll stigin,
allar stoðsendingarnar og öll metin
hjá þessum frábæru en ólíku leik-
mönnum er sú ótrúlega tilviljun að
þeir James og Curry komu í heim-
inn á sama spítalanum í Akron í
Ohio-ríki.
LeBron James hefur alla tíð
talað stoltur um æskustöðvar sínar
í Akron og það er hann sem er nú
kominn nær því en nokkur annar að
færa Cleveland sinn fyrsta NBA-tit-
il. Það er hins vegar annar körfu-
boltamaður sem fæddist á Summa
Akron City sjúkrahúsinu sem gerir
sig nú líklegan til að koma í veg
fyrir að draumur LeBrons rætist og
vinna sinn fyrsta NBA-titil í næsta
nágrenni við þar sem hann fæddist
fyrir rúmum 27 árum.
Anthony McClelland og Gloria
Marie James eignuðust Lebron
James á Summa Akron City spít-
alanum 30. desember 1984 og þar
bjó hann þar til að hann sveik lit og
gekk til liðs við Miami Heat sum-
arið 2010. James varð tvisvar meist-
ari með Miami-liðinu en ákvað að
snúa heim fyrir þetta tímabil. Dell
og Sonya Curry eignuðust Stephen
Curry 14. mars 1988 á sama spítala
en Dell Curry og kona hans bjuggu
nálægt spítalanum á þessum tíma
þegar hann spilaði sitt eina tímabil
með Cleveland Cavaliers.
Ættu að vakta fæðingardeildina
Dell Curry grínaðist með það við
blaðamenn fyrir lokaúrslitin að
kannski væri ekki óvitlaust fyrir
njósnara að fara að leita að fram-
tíðarmönnum á fæðingardeildinni
á Summa Akron City spítalanum.
Dell Curry spilaði þó bara þetta
eina tímabil með Cleveland og eyddi
næstu tíu tímabilum hjá Charlotte
Hornets.
Það leit þó allt út fyrir að Lebron
James væri að fara alla leið með
Cleveland-liðið þar sem liðið var
komið í 2-1 í einvíginu. Eftir þrjá
leiki þar sem Ástralinn Matthew
Dellavedova stal sviðsljósinu frá
besta leikmanni tímabilsins, Steph-
en Curry, hefur þessi snaggaralegi
skotmaður sýnt snilli sína á ný í síð-
ustu leikjum.
Stephen Curry lék svo sem ekki
illa í fyrstu leikjunum en á sama
tíma var LeBron James að skila
tölum sem enginn hafði áður séð
á stærsta sviði NBA-deildarinnar.
Það var ekki fyrr en í fjórða leik-
hlutanum í fimmta leiknum í fyrri-
nótt þar sem fólk sá af hverju hann
var kosinn mikilvægasti leikmaður
tímabilsins.
Stephen Curry skoraði 17 af 37
stigum sínum í fjórða leikhlutan-
um, þar af fimmtán þeirra eftir að
Lebron James kom Cleveland í 80-79
þegar sjö mínútur og 47 sekúndur
voru eftir af leiknum.
Rosalegar tölur hjá Lebron
Fram að þessari tæplega átta
mínútna sýningu Currys var
það allt eins líklegt að Lebron
James myndi bæði taka titilinn
og útnefninguna besti leikmaður
úrslitanna þrátt fyrir að vera nán-
ast einn síns liðs að leiða væng-
brotið lið Cleveland sem hefur
misst tvo stjörnuleikmenn í
meiðsli í úrslitakeppninni.
Frammistaða LeBrons
James er þegar komin í hóp
þeirra allra bestu í sögu
lokaúrslitanna og með sigri
í seríunni færi hann langt
með að tryggja sér sæti
við hlið Michaels Jordan
við borð þeirra allra
bestu í NBA-sögunni.
En ef 40 stiga, 14 frá-
kasta og 11 stoðsend-
inga leikur er ekki
nóg, hvað dugar þá?
Stephen Curry
skoraði sjö þrista
í síðasta leik og þá
alla með varnar-
menn Cleveland-liðs-
ins andandi ofan í hálsmálið.
Það var ekki nóg því eins og
á einnig við um Lebron James
þá er nánast ómögulegt að
stoppa Stephen Curry þegar
hann skiptir í stórstjörnugír-
inn.
Draumur um úrslitaleik
Hreinn úrslitaleikur um
NBA-titilinn væri drauma-
endir á skemmtilegri seríu og
það er ekki annað að heyra en
að Lebron James hafi sjálfur
trú á þessu ennþá ef marka
má viðtal við hann eftir síð-
asta leik.
„Ég missi aldrei trúna
af því að ég er besti leik-
maðurinn í heiminum.
Leikur sex er á okkar
heimavelli og við höfum nóg af
vopnum í okkar liði til að vinna
hann,“ sagði LeBron James og ef
einhver getur komið jafn löskuðu
liði og Cleveland í sjöunda leik þá
er það kóngurinn af Akron.
ooj@frettabladid.is
Komu í heiminn á sama spítalanum
Körfuboltakapparnir Stephen Curry og LeBron James hafa slegið hvert metið á fætur öðru í úrslitakeppninni en þeir eiga fl eira sam-
eiginlegt en að vera að endurskrifa NBA-söguna og vera komnir með liðin sína alla leið í úrslitaleikina um NBA-meistaratitilinn. Golden
State Warriors, lið Currys, getur tryggt sér fyrsta titil sinn í 40 ár með sigri á heimavelli Cleveland í sjötta leiknum í kvöld.
TVEIR
FRÁBÆRIR
LEIKMENN
Lebron
James og
Stephen
Curry hafa
sýnt snilli
sína í úrslita-
keppninni
í ár.
FRÉTTABLAÐ
IÐ
/EPA
NÍUNDA EM? Guðjón Valur Sigurðsson hefur spilað alla leiki Íslands á EM karla
nema tvo eða 48 af 50 leikjum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
➜ Þjóðir sem hafa verið
með á níu Evrópumót-
um í handbolta í röð
ÍSLAND 330 ÞÚSUND ÍBÚAR
KRÓATÍA 4,3 MILLJÓNIR
DANMÖRK 5,7 MILLJÓNIR
SPÁNN 46,4 MILLJÓNIR
FRAKKLAND 66,1 MILLJÓN
RÚSSLAND 146 MILLJÓNIR
➜ Flest Evrópumót þjóða
12 EVRÓPUMÓT
Króatía, Spánn, Frakkland, Rússland
11 EVRÓPUMÓT
Danmörk, Þýskaland, Svíþjóð
10 EVRÓPUMÓT
Ungverjaland, Slóvenía
9 EVRÓPUMÓT
Ísland, Serbía
HANDBOLTI Íslenska karlalands-
liðið í handbolta tryggði sér um
helgina sæti á Evrópumótinu í
handbolta með flottum tólf marka
sigri á Svartfellingum í Höllinni
og handboltaliðið kom Íslandi um
leið í fámennan hóp handboltarisa
álfunnar á þessari öld.
Strákarnir okkar hafa nú verið
með á níu Evrópumótum í röð
eða öllum Evrópukeppnum karla-
handboltans á 21. öldinni. Því hafa
aðeins fimm aðrar þjóðir náð eða
Danmörk, Frakkland, Króatía,
Spánn og Rússland sem öll eru
með meira en fjórar milljónir íbúa.
Guðjón Valur Sigurðsson, fyrir-
liði íslenska liðsins, var með á EM
í Króatíu 2000 og getur því tekið
þátt í sínu níunda Evrópumóti eftir
sex mánuði en Guðjón Valur verð-
ur 36 ára í ágúst.
Frakkar, Spánverjar, Króatar
og Rússar hafa verið með á öllum
Evrópukeppnum sögunnar og það
breyttist ekki núna. Danir hafa
bara misst af einu Evrópumóti
(1998) alveg eins og Svíar (2006)
og Þjóðverjar (2014). Ísland er í 10.
sætinu á þeim lista. - óój
Í hópi fastagesta á EM
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
2
C
-C
C
8
C
1
6
2
C
-C
B
5
0
1
6
2
C
-C
A
1
4
1
6
2
C
-C
8
D
8
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K