Fréttablaðið - 16.06.2015, Side 6
16. júní 2015 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 6
1. Hver voru úrslitin í leik Íslands og
Svartfjallalands í handbolta?
2. Hvað vill Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri fá á Hlemm?
3. Hvað hefur iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra farið í margar utanlands-
ferðir frá 2013?
SVÖR:1. 34-22 fyrir Ísland. 2. Matarmarkað. 3. 23.
Lyfjaauglýsing
20% afsláttur
af 100g og 150g Voltaren Gel í júní
Enn ríkir fullkomin óvissa um
hvernig þingstörfum verður hátt-
að og hvaða mál verða að lögum
fyrir þingfrestun. Hlé var gert á
þingfundi í gær svo formenn þing-
flokka gætu reynt að ná saman.
Ekkert áþreifanlegt kom út úr
fundinum, en þó mjakast menn í
átt til samkomulags.
Rammaáætlun og makríll eru
enn helstu deilumálin, en þó er
ágreiningur um fleiri mál.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins halda ráðherrar Fram-
sóknarflokksins málum ríkis-
stjórnarinnar harðar fram en
ráðherrar Sjálfstæðisflokksins.
Hjá þeim síðarnefndu ríkir meiri
vilji til samkomulags. Í dag eru
18 dagar síðan fresta átti þingi
samkvæmt starfsáætlun, áætlun
sem Einar K. Guðfinnsson, forseti
Alþingis, lagði ríka áherslu á að
allt þingið skyldi halda.
Samkomulag á þessu stigi geng-
ur út á það að ríkisstjórnin legg-
ur fram lista með þeim málum
sem hún setur í forgang að klára.
Stjórnarandstaðan mætir því með
lista yfir þau mál sem hún gæti
sæst á að yrðu að lögum. Og eins og
alltaf þegar komast þarf að sam-
komulagi þurfa báðir aðilar að gefa
eftir til að hægt sé að ná saman.
Það sem hefur einkennt stöð-
una núna er að djúpt hefur verið
á slíkum forgangslista frá stjórn-
inni. Fyrir þinginu liggja á áttunda
tug mála frá ráðherrum og stjórn-
arandstæðingar hafa kallað eftir
forgangslista svo hægt sé að semja.
Þingmenn sem Fréttablaðið
ræddi við sögðust í gær aldrei hafa
upplifað annan eins hnút. Lítið
hefur verið fundað og erfiðlega
gengið að finna grundvöll að sam-
komulagi.
Málið er þó betur á veg komið
eftir fundarhöld gærdagsins. Þeir
bjartsýnustu töldu mögulegt að
samkomulag næðist í dag. Það
gerir þó málin flókin að semja þarf
um allan þann fjölda mála sem
fyrir liggur, að hnýta alla lausa
enda. Þannig getur eitt mál sem út
af stendur fellt samkomulagið, en
á sama hátt vinnast mál hratt eftir
að saman næst.
Þegar samkomulag er í höfn
gæti þingið þurft nokkra daga til
að ljúka almennum málum, en ekki
er ólíklegt að haftafrumvörpin fái
ítarlegri umræðu. Þingið gæti því
verið að störfum út mánuðinn.
kolbeinn@frettabladid.is
Þokast í samkomulagsátt
Þingflokksformenn reyndu að ná saman um þingfrestun í gær. Ekkert samkomulag náðist en mjakast í rétta
átt. Framsóknarflokkurinn harðari á málum en Sjálfstæðisflokkurinn. Samkomulag gæti verið í fæðingu.
SÁTTAFAÐMUR Össur Skarphéðinsson og Bjarni Benediktsson á góðri stundu. Stjórnarandstaðan hefur kvartað yfir því að
samningar um þingstörf gangi illa við stjórnarliða sem kvarta yfir því sama gagnvart stjórnarandstöðu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SAMFÉLAG „Það skiptir mestu
máli að skólagöngu barnanna
verði ekki raskað á nokkurn hátt,
en það byggir eingöngu á trausti
almennings til okkar,“ segir Fríð-
ur Birna Stefánsdóttir, fram-
kvæmdastjóri ABC barnahjálpar
á Íslandi.
Fréttablaðið greindi frá því á
dögunum að deilur stæðu milli
ABC barnahjálpar á Íslandi og
ABC barnahjálpar í Kenía. Þór-
unni Helgadóttur, formanni sam-
takanna í Kenía, var sagt upp
störfum fyrr á árinu en hún er
föst á því að staða hennar í Kenía
sé óbreytt, enda sé um tvö aðskil-
in félög að ræða. ABC á Íslandi
heldur því hins vegar fram að
félagið eigi ABC í Kenía.
Þá greindi Fréttablaðið frá
því að Þórunn sakaði ABC á
Íslandi um mútur í Kenía þar
sem stjórnin beri fé á einstaka
starfsmenn innan skólans í Kenía
í þeim tilgangi að taka yfir skól-
ann með valdi.
Aðspurð hvort ásakanir um
mútur í Kenía
eigi sér stoð
svarar Fríður
því neitandi.
„Ég vísa ásök-
ununum til föð-
urhúsanna. Við
erum að hugsa
u m b ö r n i n
númer eitt, tvö
og þrjú og látum
þau mál í forgang,“ segir Fríð-
ur og bætir við að framfærsla
barnanna hafi borist í maí og
júní. Þórunn segir hins vegar að
engar greiðslur hafi borist í maí
og júní.
„Mér sýnst Þórunn hafa unnið
mjög gott starf í Kenía og mér
finnst ekki í lagi að það sé búið
að loka fyrir greiðslur til henn-
ar,“ segir Matthildur Þórðardótt-
ir, styrktaraðili barns í Kenía
hjá ABC. „Enginn segir manni
neitt. Ég veit ekki hvað verður
um barnið sem ég er að styrkja.
Verður það í skólanum hjá Þór-
unni eða ekki?“ - ngy
Framkvæmdastjóri ABC barnahjálpar á Íslandi vísar ásökunum um mútur í Kenía til föðurhúsanna:
Illvígar deilur innan hjálparsamtaka ABC
FRÍÐUR BIRNA
STEFÁNSDÓTTIR
VIÐSKIPTI Velta íslenskra fyrir-
tækja var langmest á höfuðborgar-
svæðinu í fyrra samkvæmt tölum
Hagstofunnar, eða yfir 70 prósent
heildarveltunnar.
Halldór Hall-
dórsson, formað-
ur Sambands
sveitarfélaga,
segir tölurnar
ekki gefa rétta
mynd. „Það vill
nú svo til að flest
stór fyrirtæki,
tryggingafélög,
flutningafyrir-
tæki og stórar keðjur, eru með lög-
heimili í Reykjavík,“ segir hann.
Veltan verði til á öllu landinu þótt í
gögnum mælist hún bara í Reykja-
vík.
Af 3.500 milljarða heildarveltu
árið 2014 mælast um 1.660 millj-
arðar í Reykjavík. Kópavogur,
Hafnarfjörður og Garðabær koma
í humátt þar á eftir. Fjórða stærsta
sveitarfélagið hvað veltu fyrir-
tækja varðar er Akureyri. - sa
HALLDÓR
HALLDÓRSSON
70% á höfuðborgarsvæðinu:
Velta í fyrra var
3.500 milljarðar
AKUREYRI Eingöngu kvenbæjar-
fulltrúar munu sitja og stýra
bæjarstjórnarfundi Akureyrar-
bæjar í dag klukkan fjögur. Þetta
er gert í því tilefni að hundrað ár
eru síðan konur fengu kosninga-
rétt hérlendis. Þetta kemur fram
í fréttatilkynningu sem Akur-
eyrar bær sendi frá sér í gær.
Allar konur sem hafa verið
bæjarstjórnarfulltrúar á Akur-
eyri eru hvattar til að mæta í
bæjarstjórnarsalinn og hlýða
á fundinn en að honum loknum
munu bæði núverandi og fyrrver-
andi kvenbæjarfulltrúar borða
saman til að fagna afmælinu. - þea
Fagna 100 ára kosningarétti:
Eingöngu kven-
bæjarfulltrúar
FRÉTTASKÝRING
Hvað líður þinglokum?
➜ Bjartsýnustu menn telja
ekki útilokað að semjist um
þinglokin í dag. Eitt mál sem
út af stendur gæti fellt sam-
komulagið. En náist saman
gerast hlutir hratt.
VEISTU SVARIÐ?
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
2
D
-7
4
6
C
1
6
2
D
-7
3
3
0
1
6
2
D
-7
1
F
4
1
6
2
D
-7
0
B
8
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K